Læknablaðið - 15.10.2008, Qupperneq 32
■ UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
KJARAMÁL
„Átök framundan“
- rætt við Birnu Jónsdóttur og Gunnar Ármannsson hjá LÍ
„Það eru hörð átök íramundan," sagði Gunnar Ármannsson, formað-
ur samninganefndar lækna, eftir að viðræður milli LÍ og ríkisins
sigldu í strand 20. september. Af samninganefndinni var þó að heyra
að líkurnar á að viðunandi tilboð kæmi fram á síðustu stundu hefðu
verið hverfandi. Nýr samningur við ljósmæður setti algerlega nýtt
viðmið í viðræðurnar því allt í einu stóð samninganefndin frammi
fyrir því að tilboð ríkisins hljóðaði upp á lægri byrjunarlaun ung-
lækna en byrjunarlaun ljósmæðra.
„Það má ekki undir nokkrum kringumstæðum
samþykkja að nám í læknisfræði sé minna metið til
launa en annað nám í heilbrigðisvísindum," segir
formaður LÍ, Birna Jónsdóttir. Um það virðast allir
læknar vera sammála.
Gunnar Ármannsson segir að aldrei hafi komið
til greina að líta á tilboð ríkisins meðan ekki
var ljóst hvað fólst í miðlunartillögu sáttasemj-
ara til ljósmæðra. „Það hefði verið glapræði að
samþykkja tilboð meðan við vissum ekki hvað
ljósmæðrum hafði verið boðið."
I erindi með viðhorfskönnun sem Læknafélagið
stóð fyrir í sl. viku meðal félagsmanna segir um
tilboð ríkisins:
„Það tilboð sem lá fyrir af hálfu ríkisins sl.
föstudag fól í sér heildarhækkun um 4,93%. Á
laugardaginn var rædd útfærsla sem fól í sér
sölu á hálftíma af frítökurétti (í stað 1,5 tíma í
frítökurétt fyrir hverja klukkustund sem skortir
á fullnægjandi hvíld hefði komið 1 klst.). Tilboð
ríkisins með þessari útfærslu fól í sér 6,1%
heildarhækkun. Samninganefnd lækna lagði fram
gagntilboð sem fól í sér 9,5% hækkun. Þegar
í ljós kom að samninganefnd ríkisins var ekki
reiðubúin til að hækka sitt tilboð slitnaði upp úr
samningaviðræðum. Það liggur því fyrir nú að
ríkið mun ekki bjóða læknum neina samninga
sem fela í sér meiri kjarabætur til þeirra en 4,93%
eða 6,1% með sölu á réttindum. Vilji læknar meiri
kjarabætur verða þeir að sækja þær sjálfir."
Áður en slitnaði uppúr viðræðunum virtust
flestir vera orðnir sammála um að best væri að
Hávar skrifa undir skammtímasamning núna og nýta
Sigurjónsson tímann til næsta vors til að undirbúa samning til
lengri tíma. Margir bentu á að ástandið og um-
ræðan í þjóðfélaginu væri ekki til þess fallið að ná
fram góðum samningi núna. Betra væri að bíða
af sér veturinn. Fáir virtust þó sjá fyrir þá stöðu
sem nú er uppi og að fara yrði í aðgerðir strax.
Spurning er hvort læknar eru almennt tilbúnir til
að sýna fulla hörku í kjarabaráttu sinni og hvernig
stéttin metur hagsmunum sínum best borgið.
„Ég tel að með því að taka ekki tilboði okkar um
9,5% hækkun hafi samninganefnd ríkisins misst af
gullnu tækifæri til að ljúka þessari samningagerð.
Ég er nokkuð sannfærður um að læknar hefðu
samþykkt þann samning, ekki ánægðir, en með
það í huga að undirbúa kröfugerð fyrir næsta vor.
Það var algjörlega ómögulegt fyrir okkur að ganga
að tilboði ríkisins sem fól í sér lægri byrjunarlaun
unglækna en ljósmæðra og með því er í rauninni
verið að gjaldfella læknanámið á algerlega óvið-
unandi hátt," segir Gunnar Ármannsson.
Birna Jónsdóttir segist velta því fyrir sér hvort
lesa megi úr afstöðu ríkisins svar við spurning-
unni hvort íslendingar hafi efni á því að reka
„heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða eins og
fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar"
og meðal annars tíundað í nýsamþykktum lögum
um sjúkratryggingastofnun.
„Læknastéttin hefur þá sérstöðu meðal heil-
brigðisstétta að langflestir sem ljúka námi skila
sér út í þjóðfélagið til starfa sem læknar. Val ein-
staklings sem ekki fær starf og kjör heima við hæfi
er að setjast að erlendis. Um þriðjungur íslenskra
lækna er við nám og störf utan lands og ég held
að læknar sem búsettir eru erlendis muni hugsa
sig tvisvar um núna áður en þeir hyggja á flutning
heim og þeir sem hér eru munu eflaust fara að líta
út fyrir landsteinana eftir störfum."
„Það er ljóst að framundan er stríð á öllum
vígstöðvum. Eflaust verður heildarlaunum lækna
haldið á lofti og þeir sagðir geta unað vel við.
Það er rétt að heildarlaun lækna eru oft há en á
bakvið þær tölur er gríðarlega mikil vinna og
unglæknar sem vilja ná viðunandi tekjum verða
að vinna mjög mikið og taka allar vaktir sem
bjóðast. Grunnlaunin eru einfaldlega of lág," segir
Gunnar.
680 LÆKNAblaðiö 2008/94