Læknablaðið - 15.10.2008, Page 33
U M R Æ Ð U R
O G FRÉTTIR
KJARAMÁL
Undir þetta tekur Bima Jónsdóttir og segir
að fólk vilji einfaldlega ekki virvna svona mikið.
„Tímamir era breyttir. Fólk vill geta lifað af
dagvinnulaunum sínum og læknar hafa haldið
tekjum sínum uppi með mikilli yfirvinnu og enda-
lausum vöktum."
Aðspurður um til hvaða aðgerða læknar geti
gripið annarra en beinna verkfallsaðgerða segir
Gunnar að ýmsir kostir séu til skoðunar. „Verkfall
í heilbrigðisstéttum bitnar á þeim sem síst skyldi,
sjúklingum, og því verður að fara varlega í allt
slíkt. Ég yrði hins vegar ekki hissa þó margir í
stéttinni greiði einfaldlega atkvæði með fótun-
um og hverfi úr landi, til starfa eða sérnáms.
Unglæknamir munu eflaust drífa sig utan og
hefja sémámið fyrr en ella og sérfræðingamir leita
einfaldlega fyrir sér að betur launuðum stöðum
við erlendar stofnanir. Af öðmm aðgerðum sem
læknar geta gripið til má nefna að sérfræðingar
sem orðnir eru 55 ára geta hætt að ganga vaktir,
allir geta hætt að vinna yfirvinnu sem ekki er borg-
að fyrir og svo getur fólk bara farið sér hægar við
vinnuna; oft er unnið mjög hratt undir því álagi
sem er á spítalanum og læknar geta einfaldlega
unnið á því sem kalla má eðlilegan vinnuhraða.
Það dregur eflaust úr afköstunum."
Bima segir að nú muni koma í ljós hvort læknar
séu tilbúnir í átök en þau Gunnar eru bæði sam-
mála um að samstaðan hafi aukist til muna eftir að
ljóst varð hvað fólst í samningi við ljósmæðurnar.
Gunnar Árinannsson,fonnaður samninganefndar lækna.
Læknadagar
2009
19.-23. janúar á Nordica/Hilton hótelinu í Reykjavík
LÆKNAblaðið 2008/94 681