Læknablaðið - 15.10.2008, Side 34
■ UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
FÉLAG UNGRA LÆKNA
Konur hafa ráðin í hendi sér
Sigrún Perla Böðvarsdóttir tók við formennsku í Félagi ungra lækna,
FUL, í sumar er þáverandi formaður, Ragnar Freyr Ingvarsson, hvarf
af landi brott til framhaldsnáms og brúaði hún bilið fram að nýaf-
stöðnum aðalfundi 18. september sl. Nýr formaður var kjörin Hjördís
Þórey Þorgeirsdóttir. Sigrún Perla segir að það hafi ekki komið til
álita af sinni hálfu að gefa kost á sér til formennskunnar en hún hefur
setið í samninganefnd Læknafélags Islands fyrir hönd unglækna og
er því öllum hnútum kunnug frá átökum sumarsins þegar samningar
voru felldir í lok júlí.
Sigrún Perla segist ætla að sitja áfram í samn-
inganefnd fyrir hönd unglækna enda mikilvægt
að reynslan af samningaviðræðum sumarsins nýt-
ist við samningagerð á næstu mánuðum.
„Eg er búin að vera í samninganefnd frá því í
fyrravetur ásamt Bjarna Þór Eyvindssyni sem nú
er farinn utan til framhaldsnáms og við tókum
þátt í undirbúningsvinnu samninganefndar LÍ
áður en sest var að borðinu með samninganefnd
ríkisins. Þegar nefndin gaf okkur loks færi á að
hittast á samningafundi var strax ljóst að það var
ekki mikið í boði. Það voru fyrstu vonbrigðin en
einnig dróst samningaferlið á langinn vegna þess
að samninganefnd ríkisins vildi ekki hitta okkur
fyrr en búið var að semja við ýmsa aðra hópa.
Þetta varð til þess að erfitt reyndist að halda sarnn-
inganefnd LI saman þar sem fólk var búið að gera
alls kyns ráðstafanir í sambandi við sumarfrí og
þegar loks kom að því að samningur lá á borðinu
þá vorum við Bjarni bæði fjarverandi. Okkur var
strax ljóst að þetta væri samningur sem unglæknar
ættu erfitt með að sætta sig við en ég get ekki
svarað því hvort ég hefði skrifað undir hann ef
ég hefði verið á staðnum. En það var augljóst að
unglæknar hefðu með þessum samningi fengið
minna í sinn hlut en ríkið bauð strax í upphafi, en
þar var boðið upp á fasta krónutöluhækkun sem
hefði þýtt mesta prósentuhækkun fyrir þá sem eru
með lægstu launin."
Laun lækna almennt ekki góð
Sigrún Perla segir mikilvægt að hafa í huga að við
síðustu kjarasamningagerð hafi hlutur unglækna
Hávar verið verulega bættur og samninganefnd LÍ hafi
Sigurjónsson í undirbúningsvinnu sinni í vor lagt upp með
að unglæknar héldu fengnum hlut. „Unglæknar
voru hins vegar fljótir að sjá að þeir hefðu fengið
töluvert minna út úr þeim samningi sem samn-
inganefnd LI skrifaði undir í sumar en samn-
inganefnd ríkisins bauð í vor. Það olli verulegri
óánægju. Ég hef hins vegar ekki legið á þeirri
skoðun minni á samningafundum að unglæknum
finnast laun lækna almennt ekki góð miðað við þá
menntun og vinnu sem liggur að baki. Unglæknar
eru því ekki eingöngu að mótmæla launakjörum
sínum í núverandi stöðu heldur einnig launakjör-
um sérfræðinga og horfa þá til þess að einhvern
tíma verða flestir unglæknar sérfræðingar."
Óánægja unglækna með samninginn fór ekki
framhjá neinum sem fylgdist með í sumar og fjöl-
miðlar tóku málið óspart upp enda kannski á þeim
árstíma þegar lítið er um „harðar" fréttir. „Eflaust
hefur áhugi fjölmiðla ýtt enn frekar undir óánægju
unglækna en ég er þó fullviss um að óánægjan
var orðin það mikil að ekki hefði breytt neinu um
niðurstöðu kosningarinnar þó minna hefði verið
fjallað um málið í fjölmiðlum."
Eflaust hafa einhverjir velt því fyrir sér hvort
betur færi að unglæknar semdu sérstaklega við
ríkisvaldið en þá er skemmst að minnast þess
að fyrir sex árum klauf FUL sig frá Læknafélagi
Islands og óskaði eftir því að fá sérsamning við
ríkið. „Það mál fór fyrir Félagsdóm og úrskurður
hans var sá að það væri ekki leyfilegt að semja
sérstaklega við unglækna og við gengum því aftur
til samstarfs við LÍ árið 2003. Á þeim tíma sem lið-
inn er hefur unglæknasamfélagið breyst talsvert.
Okkur hefur fjölgað í félaginu og það stafar fyrst
og fremst af því að unglæknar eru lengur heima
eftir læknanámið en áður enda geta þeir tekið
fyrrihluta af ýmsum sérgreinum hér áður en farið
er utan til að ljúka þeim og sumar greinar er hægt
að taka að fullu heima. Árgangarnir eru einnig
stærri, bæði úr læknadeild HÍ og unglæknar sem
koma heim eftir grunnnám erlendis. Það hefur
verið rætt hvort við ættum í ljósi þessarar fjölg-
unar að taka aftur upp þráðinn um að semja sér
við ríkið. Þær umræður eru alls ekki komnar
lengra en á hugmyndastigið og álit Gunnars
Ármannssonar lögfræðings og framkvæmdastjóra
LI er að það sé ekki skynsamlegt fyrir unglækna
að semja sérstaklega."
682 LÆKNAblaðið 2008/94