Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2008, Síða 55

Læknablaðið - 15.10.2008, Síða 55
STOÐUAUGLYSINGAR Heilsugæslustöðin á Akureyri auglýsir eftir sérfræðingum í heimilislækningum Lausar eru tvær stöður heimilislækna við Heilsugæslustöðina á Akureyri (HAK). Stöðurnar verða veittar frá 1. janúar 2009 eða eftir samkomulagi. Menntunarkröfur: • Óskað er eftir því að umsækjendur hafi sérfræðiréttindi í heimilislækningum. Hæfniskröfur: • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Lipurð í samskiptum og vilji til þverfaglegs samstarfs. • Jákvæðni og sveigjanleiki. Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í störfin. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og Akureyrarbæjar. Nánari upplýsingar um störfin veitir Þórir V. Þórisson, yfirlæknir, í síma 460 4600, netfang: thorir@hak.ak.is Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins. Umsóknarfrestur er til 15. október 2008 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað (FSN) Skurðlæknir til HSA/FSN Staðayfirlæknis handlæknisdeildar við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað, FSN, verður laus í lokárs 2008. FSN hefur verið hluti af Heilbrigðisstofnun Austurlands frá 1999. Við FSN starfa nú fastur skurðlæknir, svæfingalæknir og tveir lyflæknar, auk fjölda aðkomusérfræðinga á ýmsum sviðum. Starfsemi FSN hefur verið í örum vexti undanfarin ár, bæði á skurð- og lyflæknissviði, en auk þess hafa sérfræðilæknar FSN skipt með sér vöktum á heilsugæslu. Á árinu 2007 var lokið endurbyggingu á eldri hluta sjúkrahússins, ásamt viðbyggingu, einnig hefur ýmis tækjabúnaður verið endurnýjaður á undanförnum árum s.s. rannsóknartæki, CT-tölvusneiðmynda- og röntgentæki ásamt úrlestri með stafrænum myndgreiningarbúnaði. Þá hefur búnaður skurðstofu nýlega verið færður í nútímalegt horf. Það er því ágætis starfsaðstaða við sjúkrahúsið og starfsemin fjölbreytt, en einnig á sér nú stað mikil uppbygging I landsfjórðungnum öllum. Allar frekari upplýsingar um stöðuna veita Björn Magnússon forstöðulæknir, bjom@hsa.is eða Valdimar O. Hermannsson fulltrúi forstjóra í síma 860 6770/ 470 1450. Umsóknarfrestur er til 25. október 2008 og skulu umsóknir er greina frá m.a. menntun og fyrri störfum, sendar á ofangreinda aðila eða á: Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað Mýrargötu 20, 740 Fjarðabyggð, B.t. Fulltrúi forstjóra HSA/FSN. www. valdimarh@hsa. is Til frekari upplýsingar: Neskaupstaður er byggðakjarni innan Fjarðabyggðar sem er stærsta sveitarfélag á Austurlandi. Neskaupstaður stendur við Norðfjörð og er íbúafjöldi þar um 1550, en á upptökusvæði HSA/FSN, á Austurlandi búa nú u.þ.b. 15.000 manns og fer fjölgandi. Mikil uppbygging á sér nú stað í landsfjórðungnum og mun sú þróun verða áfram, a.m.k. næstu árin. í Fjarðabyggð er rekin öflug þjónusta, verslun og afþreying er fjölbreytt svo og rekstur hótela, veitingahúsa o.fl. I Neskaupstað er starfræktur grunnskóli, tónskóli og leikskóli ásamt Verkmenntaskóla Austurlands, en einnig er góð aðstaða til íþróttaiðkunar. Sundlaug, íþróttahús, íþróttavöllur og golfvöllur eru á staðnum, sem og fínasta skíðasvæði í Oddsskarði. Náttúrufegurð er mikil á svæðinu enda eru mörg skemmtilegustu göngu- og útivistarsvæði landsins á Austurlandi. Sjá einnig heimasíðu HSA/FSN www.hsa.is, og www.fjardabyggd.is LÆKNAblaðið 2008/94 703

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.