Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 14

Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 14
FRÆÐIGREINA RANNSÓKNIR R Tafla III. Samanburður á krufningagreindum og tilviljanagreindum nýrnafrumu- krabbameinum. Krufningagreining Tilviljanagreining p-gildi Fjöldi 110 255 Meöalaldur (ár) 74,4 65,6 <0,0001 Hlutfall karla/kvenna 1,6 1,6 0,98 Æxli hægra megina 52 (49,1) 146 (57,3) 0,49 Meöalstærö (cm)b 3,7 5,4 <0,0001 Vefjagerðc Tærfrumuæxli 80 (74,1) 214 (89,2) Totumyndandi æxli 23 (21,3) 23(9,6) <0,0001 Litfælugerö 3 (2,8) 1 (0,4) Fuhrman gráðund 1 + 2 91 (85,1) 181 (75,4) <0,04 3 + 4 16 (14,9) 59 (24,6) TNM stige 1 + II 94 (87,9) 175 (68,7) p=0,0001 III + IV 13 (12,1) 80 (31,3) aUpplýsingar vantaði fyrir fjögur aexli í krufningagreinda hópnum. bUpplýsingar vantaði fyrir 15 og sex æxli í hópunum tveimur. cUpplýsingar vantaði fyrir tvö og 15 æxli. dUpplýsingar vantaói fyrir þrjú og 15 æxli. eUpplýsingar vantaði fyrir þrjú æxli í krufningagreinda hópnum. Umræða Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna athyglis- verðan mun á krufningagreindum æxlum og þeim sem greinast í lifandi sjúklingum. Samanborið við sjúklinga sem greindust lifandi fundust æxlin við krufningu í eldra fólki, þau voru smærri og af lægri gráðu og stigi. Til dæmis voru aðeins 6,3% krufningagreindu sjúklinganna með meinvörp samanborið við rúman þriðjimg sjúk- linganna sem greindust lifandi. Þetta kemur ekki á óvart þar sem krufningagreindu sjúkling-amir voru án einkenna fyrir andlát. Sambærilegar niðurstöður hafa sést í öðrum rannsóknum, þar á meðal í japanskri rannsókn frá 1991.17 Þegar krufningagreindu tilfellin eru borin saman við tilviljanagreind æxli eingöngu (tafla III) sést að áfram er munur til staðar enda þótt hann sé ekki jafnmikill og fyrir allan hóp þeirra sem greindust á lífi. Krufningagreindu æxlin eru á lægri gráðum og stigun en tilviljanagreindu æxlin og þvermál þeirra er 1,7 cm minna. Krufningagreindu æxlin líkjast því að mörgu leyti nýmafrumukrabbamein- um sem greinast fyrir tilviljun í lifandi sjúklingum. í krufningagreinda hópnum vora totumynd- andi æxli heldur algengari en hjá lifandi greind- um. Þetta er viðbúið þar sem sýnt hefur verið fram á að þau sýni af sér meira góðkynja hegðun en æxli af tærfrumugerð, til dæmis eru meinvörp sjaldgæfari. I nýlegri pólskri rannsókn fengust svipaðar niðurstöður en þar voru góðkynja æxli í nýrum allt að helmingur krufningagrein- du æxlanna og hlutfall totumyndandi nýma- frumukrabbameins algengara.18 í okkar rannsókn höfðum við ekki upplýsingar um góðkynja nýma- æxli enda skráning þeirra ekki eins nákvæm og fyrir krabbamein. íslensk rannsókn hefur þó sýnt að 31% af 45 rauðkimingaæxlum (oncocytoma), nú flokkuð með góðkynja nýrnaæxlum, sem greindust hér á landi á 30 ára tímabili vora greind við krafningu.19 Samkvæmt okkar niðurstöðum er tíðni nýrna- framukrabbameina sem greind era við krufn- ingu á Islandi á rannsóknartímabilinu 7,1/1000 krafningar. Þessi tala er ívið hærri en tíðnitölur í tveimur öðrum rannsóknum á krafningagreind- um nýmafrumukrabbameinum, í nýlegri banda- rískri rannsókn (4,5-5,4/1000 krufningar)20 og í japönsku rannsókninni frá 1991 (3,1/1000 krufningar).17 Þó verður að hafa í huga að í þess- um löndum er nýgengi nýmafrumukrabbameins umtalsvert lægra en hér á landi og því viðbúið að tíðni krufningagreindra tilfella sé einnig lægri. Breyting á tíðni krufningagreindra nýrna- framukrabbameina á þeim 35 árum sem rann- sóknin náði til er ekki tölfræðilega marktæk. Á síðasta 10 ára tímabilinu sést þó viss tilhneiging til lækkandi tíðni en ekki ef litið er á síðustu 15 árin. Út frá niðurstöðunum má draga þá ályktun að tíðni nýrnafrumukrabbameina sem greinast við krufningu sé ekki vaxandi hér á landi og að þau skýri ekki hækkandi nýgengi sjúkdómsins. Tíðni krufningagreindra nýrnafrumukrabba- meina hélst nokkuð stöðug fram til 1990, eða 4,9- 7,4 tilfelli/1000 krafningar. Frá 1991 til 1995 kom kippur upp á við og greindust þá 18,8 tilfelli/1000 krafningar. Tíðnin lækkaði síðan í aðeins 1,8 til- felli/1000 krafningar næstu fimm árin á eftir en á síðasta fimm ára tímabilinu (2001-2005) var hún aftur komin í svipað horf og fyrir 1991, eða 6,5 tilfelli/1000 krufningar. Ekki er augljós skýring á þessum mun og á hárri tíðni 1991-1995. Fræðilega gæti verið um „náttúrulega sveiflu" að ræða sem oft sést í sjúklingahópum af þessari stærð enda þótt munurinn sé tölfræðilega marktækur (p- gildi <0,001 fyrir fimm ára tímabil). Þessi mrrnur jafnast út að mestu ef litið er á 10 eða 15 ára tíma- bil í stað fimm og ekki hefur sést sambærilegur toppur í nýgengi hjá þeim sem greinast á lífi.4,61 fljótu bragði virðist ekki vera hægt að skýra þessa sveiflu út frá þekktum áhættu- og umhverfisþátt- um. Skýringa má einnig leita í mismunandi aðstæðum eða breyttum vinnubrögðum við fram- kvæmd krufninganna, til dæmis ef hlutfall krufn- inga sem takmarkast við ákveðin líffærakerfi hefði breyst á tímabilinu. Langflestar krufningar á íslandi eru og hafa verið gerðar á rannsóknastofu Landspítala í meinafræði. Þar hefur í gegnum tíð- ina mikill minnihluti krufninga verið takmarkaður 810 LÆKNAblaðið 2008/94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.