Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 45

Læknablaðið - 15.12.2008, Page 45
U M R Æ Ð U R FORSTJÓRI LAN O G D S F R É T T I R P í T A L A N S „Á Landspítalanum er unnið að rannsóknum sem þjóðin getur verið mjög stolt af," segir Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri. á fólkið og skrifa hjá mér það sem kemur í hugann meðan ég staldra við. Mér hefur þótt umhugs- unarefni að sjá við hversu erfiðar aðstæður fólk vinnur víða á spítalanum. Þar sem húsnæði hefur verið gert upp virðist það undantekningarlaust mjög vel gert, fallegt og vandað, en þar sem ekkert hefur verið gert er aðstaðan mjög slæm, húsnæðið úrelt og tækjabúnaður gamall. Starfsmenn eru allir mjög jákvæðir og ég verð hvergi vör við annað en fólk vilji gera enn betur og bæta sig." Ekki kemur á óvart að Hulda skuli nefna óhag- ræðið að því að starfsemi spítalans sé á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið. „Það blasir við. Þetta stendur nýtingu tækjabúnaðar og bættu verklagi fyrir þrifum. Þetta er eitt af stóru verkefnunum á næstu árum og þarf að fara vandlega í gegnum. Ég nefni dýrar deildir eins og röntgendeildir sem eru nú á þremur stöðum. Það væri hægt að einfalda þann rekstur og jafnframt auka afköstin og einnig rannsóknarstofur sem eru mjög dýrar í rekstri. Til þess að ná hámarkshagkvæmni þarf nýjan spítala en þangað til er hægt að gera ýmislegt í hagræð- ingarskyni." Hulda segist mest furða sig á því hversu litlum fjármunum hafi á liðnum árum verið veitt til viðhalds á byggingum spítalans og endurnýjun tækjabúnaðar. „Líftími tækjabúnaðar á sjúkrahús- um er að jafnaði 8-10 ár en hér hefur engu verið hægt að skipta út af tækjum nema líknarfélögin hafi keypt þau eða spítalinn séð sig knúinn til að kaupa tæki á kaupleigusamningum og notað rekstrarfé til þess. Fjárveiting til viðhalds bygginga og tækjakaupa hefur staðið í stað í 10 ár og heldur farið lækkandi. Stjórn spítalans hefur því orðið að taka af rekstrarfé til að standa undir nauðsynlegri endumýjun tækja með kaupleigusamningum. I Noregi dettur engum í huga að ganga á rekstrarfé til viðhalds og tækjakaupa nema eitthvað mjög sérstakt og óvænt komi upp á á árinu sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlögum. Það er í rauninni alveg ótrúlegt hvað hefur tekist að halda hér uppi góðri og nútímalegri spítalaþjónustu miðað við hversu þröngt stakkurinn hefur verið sniðinn." Hulda segir að sér virðist sem aldrei hafi verið rætt opinskátt hvað það kostar að Landspítali standi undir hlutverki sínu sem háskólasjúkra- hús. „Kostnaðargreining hefur leitt í ljós að 11% af fjármunum spítalans renna til háskólakennslu. Hér eru allir heilbrigðisstarfsmenn þjóðarinnar menntaðir. Samt hefur aldrei verið rætt hvað þetta á að kosta. Það er vitað að á háskólasjúkra- húsi taka ákveðnir hlutir lengri tíma en ella, LÆKNAblaðið 2008/94 841

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.