Læknablaðið - 15.12.2008, Blaðsíða 53
Q- O
o o
OC Q
Z <
O h-
o to
Hávar
Sigurjónsson
UMRÆÐUR 0 G
F R É T T I R
C P M E
„Óánægðir með að vægi atkvæðis hverrar aðildarpjóðar skuli vera jafiit," segir Katrín Fjeldsted um úrsögn Suður-
Evrópuþjóðanna úr CPME.
Fjögur lönd segja sig úr CPME
Nokkrar blikur virðast á lofti um framtíð
Evrópusamtaka lækna, CPME, þar sem fjögur
Iönd hafa sagt sig úr samtökunum á þessu ári,
Frakkland, Spánn og Ítalía tilkynntu úrsögn
sína í lok júní og nú í nóvember bættist Portúgal
í hópinn. Fjárhagsgrundvöllur samtakanna er
með þessu í uppnámi og framundan er róttæk
endurskipulagning á rekstri samtakanna að sögn
Katrínar Fjeldsted, eins af fjórum varaforsetum
CPME og fulltrúa Læknafélags íslands í samtök-
unum. Katrín hefur verið fulltrúi LÍ frá 1999 og
varaforseti samtakanna frá 2005.
CPME er upphaflega stofnað af læknafélögum
þjóða innan Evrópusambandsins og hefur stækkað
jafnt og þétt með auknum fjölda landa innan ESB
en fyrir nokkrum árum var löndum utan ESB sem
starfa á Evrópska efnahagssvæðinu boðin þátt-
taka, þar á meðal íslandi, Noregi og Lichtenstein.
Aðildarlönd að CPME eru nú 30 að þeim fjórum
meðtöldum sem tilkynnt hafa úrsögn.
Þátttaka í CPME er bundin við landssamtök
lækna í hverju landi, einstaklingsaðild er ekki í
boði en önnur Evrópufélög lækna koma sínum
sjónarmiðum að í gegnum fulltrúa heildarsamtaka
sinna. Tilgangur og hlutverk CPME er að sögn
Katrínar Fjeldsted fyrst og fremst sá að hafa áhrif
á stefnumótun ESB í heilbrigðismálum og málefn-
um lækna og hefur orðið vel ágengt í þeim efnum
á undanfömum árum.
„Fyrir nokkrum árum var tekin ákvörðun um
að setja niður skrifstofu CPME í Brussel, höf-
uðstöðvum ESB, og ráða framkvæmdastjóra sem
væri öllum hnútum kunnugur innandyra þar á
bæ. Aður fylgdi skrifstofan forseta samtakanna
frá einu landi til annars á tveggja ára fresti og
það skilaði ekki nægilega góðum árangri að mati
stjórnarinnar," segir Katrín.
Frá því að skrifstofan var opnuð í Brussel hefur
CPME náð eyrum ráðamanna ESB mun betur og
haft fingurinn á púlsinum þegar málefni lækna
eru í umræðunni. „Þannig höfum við getað brugð-
ist mun fyrr við málum og haft áhrif á stefnumót-
un í ýmsum málum og á okkur er hlustað og
leitað eftir áliti okkar þegar heilbrigðismál eru til
umfjöllunar."
A skrifstofunni í Brussel starfa fimm manns,
lögfræðingar og stjórnmálafræðingar með sérhæf-
ingu í Evrópumálefnum, og er framkvæmdastjór-
inn, hin hollenska Lisette Tiddens-Engwirda, vel
LÆKNAblaðið 2008/94 849