Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINA Heilsa, lífsgæði og krónur Bryndís Benediktsdóttir brynben@hi.is Bryndís er sérfræðingur í heimilislækningum og dósent við læknadeild HÍ, hún er í ritstjórn Læknablaðsins. Health, quality of live and money. Using cost-effectiveness analysis for setting health priorities Specialist in Family Medicine. Ass. Professor Faculty of Medicine University of lceland. Aðstæður í íslensku samfélagi hafa breyst. Fjárframlög til heilbrigðismála skerðast og ljóst er að draga verður úr þjónustu. Við þessar aðstæður þarf að skoða alla kostnaðarliði gaumgæfilega og nýta þá skoðun til þess að tiltækt fé komi að sem bestum notum. Tryggja þarf að kunnátta varðveitist í heilbrigðisþjónustunni, að þeir sem veikastir eru hafi forgang til þjónustu og hún nýtist jafnframt sem flestum. Greirting á kostnaði þarf að vera gagnsæ og sundurliðuð þannig að hægt sé að draga ályktanir af niðurstöðum í heild, en samtímis varpa ljósi á einstaka kostnaðarliði þar sem ná má hagræðingu. Kostnaðargreining algengra langvinnra sjúkdóma er sérlega mikilvæg við þessar aðstæður. Ef unnt er að bera saman milli landa kostnaðarlið mismunandi þjónustueininga er það augljós viðbótarkostur.1 Fagmennska þarf að vera í fyrirrúmi þegar kemur að framkvæmd og túlkun, sérstaklega ef gera á breytingar á þjónustu sem byggjast á kostnaðarrannsóknum. Kostnaðarrannsóknir hafa oft verið gagnrýndar fyrir að meta einungis afturvirkt kostnað við tiltekinn sjúkdóm á ársgrundvelli, án þess að kanna líkur á breytingum á kostnaði í framtíð og án þess að reikna með þeim ágóða sem felst í betri heilsu sem hlýst af meðferð. Nýrri aðferðir við kostnaðargreiningu leggja áherslu á að reyna að meta einnig hver kostnaður muni verða í framtíð með því að taka með í reikninginn nýgengi, algengi og framvindu sjúkdóms á komandi árum. I þessu blaði birtist grein Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttir og félaga um kostnaðarvirkni- greiningu á meðferð við nýrnabilun á lokastigi. Kostnaðarvirknigreiningin sem notuð var í þessari rannsókn byggist á þeirri hugmynd að æskilegt sé að leggja áherslu á aðferðir, sem hafa mest áhrif á heilsu og lífgæði fyrir hverja krónu útlagðs kostnaðar.2 Höfundar bera saman kostnað samfélags á tvenns konar meðferð við nýrnabilun á lokastigi; nýrnaígræðslu annars vegar og skilunarmeðferð hins vegar. Þá er líka borinn saman kostnaður við nýmaígræðslu hér á landi og við sömu aðgerðir á íslendingum á Ríkisspítalanum í Kaupmartnahöfn áður en farið var að gera þessar aðgerðir hér heima. Rannsókn höfunda er metnaðarfull og gott dæmi um tilraun breiðs faghóps til þess að meta kostnað og ávinning samfélags af því að meðhöndla tiltölulega lítinn hóp sjúklinga, með alvarleg veikindi sem þarf kostnaðarsama meðferð. Rannsókn Tinnu og félaga sýnir ótvírætt ávinning af því að nýrnaígræðslur hafa flust til Islands og einnig að ígræðslur eru „hagkvæmasti" kosturinn. Athyglisvert er að nýrnaígræðslur virðast mun algengara meðferðarform nýrnabil- unar á lokastigi á Islandi en í öðrum löndum. Er það þeim sem standa að þessari meðferð á íslandi til hróss. Niðurstöður rannsóknarinnar munu vafalaust nýtast við frekara skipulag þjónustu við ofangreindan sjúklingahóp. Fylgjast þarf vel með samanburðarhæfum rannsóknum annarra þjóða áður en ályktun er dregin um hugsanlega frekari ávinning af „ennþá fleiri" nýrnaígræðslum. Þessi rannsókn svara því ekki hvort þeir sjúklingar sem fara í nýrnaígræðslu séu minna veikir en þeir sem eru í skilunarmeðferð. Ef svo er mætti ætla að munur á lífslíkum og lífsgæðum skýrðist að einhverjum hluta af þeirri staðreynd. Á sama hátt væru sjúklingar sem fá skilunarmeðferð haldnir fleiri alvarlegum sjúkdómum sem myndu kosta samfélagið mikið óháð nýrnabilunarmeðferð og skýra að hluta minni lífslíkur og lífsgæði þessara sjúklinga. En ekki er hægt að draga ályktun um þessi atriði af niðurstöðum þessarar rannsóknar. Aukin kostnaðarvitund og vilji til úrbóta er mikilvæg við ríkjandi aðstæður. Framtak Sjúkratrygginga íslands við að upplýsa lækna um ávísanir þeirra á lyf í algengum dýr- um lyfjaflokkum og bera þær saman við tilmæli stjómvalda og annarra lækna er til fyrirmyndar. Sama máli gegnir um upplýsingar um verð og notkun á lækningarannsóknum. Þessar tiltölulega einföldu aðgerðir eru til þess fallnar að vekja faglegar umræður meðal lækna um notkun lyfja og rannsókna. Erfiðara virðist þó vera að tryggja að gamalreynd og ódýr lyf haldist á markaði, en það er vissulega efni í frekari skrif. 1. Nielsen R, Johannessen A, Benediktsdóttir B, et al. Present and future costs of COPD in Iceland and Norway: results from the BOLD study. Eur Respir J 2009; 34: 850-7. 2. Musgrove P, Fox-Rushby J. "Cost-Effectiveness Analysis for Priority Setting" in Disease Control Priorities in Developing Countries. 2nd edition ed. Jamison DT, et al 2006:276. LÆKNAblaðið 2009/95 743
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.