Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 45
UMRÆÐUR O G F R É T T I R LÆKNAFÉLAG í S L A N D S L Birna Jónsdóttir formaður Læknafélags íslands. á félagsgjöldum í 90.000 kr. en ætti að sögn Birnu að vera 100.000 kr. ef félagsgjald ársins 2000 er framreiknað miðað við verðlagsþróun. „Við þurftum í rauninni ekki að hafa svo hátt félags- gjald árið 2000 vegna þess að fjármagnstekjurnar greiddu niður reksturinn en í dag þurfum við svo sannarlega á hverri krónu að halda." A aðalfundinum var samþykkt tillaga um að hefja aftur útleigu á sal félagsins í Hlíðasmára til félagsmanna. Hugmyndin að baki þessari tillögu er að leigan á salnum geti orðið félaginu tekjuauki. Birna segir að vissulega verði þetta kannað til hlítar og reynt að verða við þessari samþykkt en það sé alls ekki sjálfgefið að hægt sé að leigja út salinn með hagnaði. „Það er mikil samkeppni á þessum markaði, framboð á sölum er mikið, og ekki víst að félagsmenn séu tilbúnir að greiða hærri leigu fyrir salinn en gengur og gerist úti í bæ. Kostnaður við slíkan rekstur er talsverður og það er verr af stað farið en heima setið ef félagið situr uppi með kostnað vegna útleigu á salnum þegar allt er reiknað til. En við munum láta reyna á þetta." Hún segir að hins vegar hafi verið ákveðið að nýta húsakynni læknafélaganna í Hlíðasmára til hins ítrasta þegar um ráðstefnur og fundahöld á vegum félaganna er að ræða og ekki verði farið með fundi annað ef því verið mögulega fyrir komið. „Það var lagt í nokkurn kostnað á síðasta ári við að gera fundaraðstöðuna hér sambærilega við annað og því er engin ástæða til annars en að nýta það. Ég hvet sérgreinafélögin til að nýta sér þetta ágæta húsnæði sem hér er í boði." A undanförnum árum hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir án árangurs til að selja húsnæði LI í Hlíðasmára og varla hægt að gera ráð fyrir að það gangi betur í því árferði sem nú er. Birna segir óraunhæft að huga að sölu á húsnæðinu núna enda eigi LÍ húsnæðið skuldlaust og sé því best sett með að hreyfa sig ekki og nýta húsnæðið sem best. Augljósar andstæður innan félagsins Lækmblaðið sjálft var til urrtræðu á aðalfundinum og þar var hreyft þeirri hugmynd sem áður hefur komið fram hvort ekki væri sparnaður að því að vera eingöngu með netútgáfu og spara þannig kostnað við prentun og dreifingu. Rökin gegn þessu eru einföld að sögn Birnu þar sem 2/3 kostnaðar af rekstri blaðsins koma af sölu lyfjaauglýsinga og ekki gott að gera sér LÆKNAblaðið 2009/95 781
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.