Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 39
Ú R UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Hvert stefnum við? Sigríður Ólína Haraldsdóttir sigrohar@landspitali. is Höfundur er lyf- og lungnalæknir starfandi á Landspítala Fossvogi. Síðasti pistil minn á þessum vettvangi var skrifaður í upphafi nýs árs. Þá var bankahrunið staðreynd og við vorum að reyna að fóta okkur í nýjum aðstæðum. Síðan hefur hið pólitíska landslag breyst eftir kosningar. Nýr forstjóri Landspítala hefur horfið af þeim vettvangi og heilbrigðisráðherrar hafa komið og farið. Þessi tími hefur einkennst af óvissu og heilbrigðiskerfið hefur ekki farið varhluta af henni. Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu er framundan. Forstjóri Landspítala hefur sagt að fyrirhugaðar séu uppsagnir á milli 450 og 500 starfsmanna spítalans. Ekki er ljóst hvar skera á niður. Starfsmenn mæta á vaktina eins og áður og vinna af samviskusemi og fórnfýsi en óneitanlega hvarflar hugurinn að því hvort sú starfsemi sem viðkomandi vinnur við muni breytast eða jafnvel leggjast niður. Óvissan hefur slæm áhrif á líðan starfsmanna, bæði vegna áhyggna af eigin hag og einnig vegna kvíðboga sem þeir bera vegna afdrifa skjólstæðinganna sem sinnt er á spítalanum. Þetta á ekki síst við núna þegar sannkallaður faraldur inflúensu með tilheyrandi irtnlögnum og veikindum geisar. Hvað verður um hin svokölluðu kragasjúkra- hús? Starfsfólkið þar virðist ekki vita það, að minnsta kosti ekki þeir sem skrifa í blöðin. Verður hluti af starfsemi kragasjúkrahúsanna færður til Landspítala? Hvað þá með niðurskurðinn sem búið er að boða þar? Hvaða starfsemi á að fara þaðan og þá hvert? Spurningarnar eru margar og þeim er flestum ósvarað. Síðasti heilbrigðisráð- herra hvarf af sjónarsviðinu með hvellþ ég verð að segja eins og er að ég hélt að kominn væri 1. apríl þegar ég opnaði vefmiðil og þetta blasti við. Við þurfum síst af öllu á svona óstöðugleika að halda. Það sama á við um okkur á Landspítala þegar fyrrverandi forstjóri hvarf á braut eftir aðeins nokkurra mánaða starf, en miklar væntingar voru gerðar til þeirrar sýnar sem hún boðaði. Við viljum stöðugleika og skýra stefnu. Reyndar hefur stefnan skýrst hvað varðar lyfja- mál og er það að mínum dómi vel. Ríkiskassinn er tómur og sjálfsagt að ríkið velji að greiða niður ódýrari lyf í þeim tilvikum þar sem þau virka eins vel og hin dýrari. Við lungnalæknar höfum séð tölur um kostnað vegna innúðalyfja með sterum hér á landi miðað við í Noregi. Á íslandi eru þessi lyf notuð í mun meira magni en hjá frændum okkar í Noregi. Gefnar hafa verið út alþjóðlegar leiðbeiningar (GOLD) um það við hvaða stig lungnateppu eigi að byrja að nota innúðalyf með sterum að staðaldri. Miðað við hina miklu notkun þessara lyfja hér á landi er ljóst að þessum leiðbeiningum er ekki fylgt sem skyldi. Ég heyrði af því að á einni af heilsugæslustöðvum höfuð- borgarsvæðisins var beinn sparnaður ríkisins af því að þar var tekin upp sú stefna að ávísa ódýr- asta magalyfinu ein milljón á mánuði að meðaltali á síðasta ári. Þarna getum við læknar tekið okkur á og sparað fyrir okkar sameiginlega sjóð, ríkið. Stjórn LÍ Bima Jónsdóttir, formaður Þórarinn Guðnason, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkerí Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Kristján G. Guðmundsson Ragnar Gunnarsson Sigurður Böðvarsson Læknadagar Valentínus Þór Valdimarsson Valgerður Rúnarsdóttir á Nordica Hilton (pistlunum Úr penna stjórnarmanna Li birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. 18.-22. janúar 2010 LÆKNAblaðið 2009/95 775
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.