Læknablaðið - 15.11.2009, Síða 39
Ú R
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Hvert stefnum við?
Sigríður Ólína
Haraldsdóttir
sigrohar@landspitali. is
Höfundur er lyf- og lungnalæknir
starfandi á Landspítala Fossvogi.
Síðasti pistil minn á þessum vettvangi var
skrifaður í upphafi nýs árs. Þá var bankahrunið
staðreynd og við vorum að reyna að fóta okkur
í nýjum aðstæðum. Síðan hefur hið pólitíska
landslag breyst eftir kosningar. Nýr forstjóri
Landspítala hefur horfið af þeim vettvangi og
heilbrigðisráðherrar hafa komið og farið. Þessi
tími hefur einkennst af óvissu og heilbrigðiskerfið
hefur ekki farið varhluta af henni. Niðurskurður
í heilbrigðiskerfinu er framundan. Forstjóri
Landspítala hefur sagt að fyrirhugaðar séu
uppsagnir á milli 450 og 500 starfsmanna spítalans.
Ekki er ljóst hvar skera á niður. Starfsmenn mæta
á vaktina eins og áður og vinna af samviskusemi
og fórnfýsi en óneitanlega hvarflar hugurinn að
því hvort sú starfsemi sem viðkomandi vinnur við
muni breytast eða jafnvel leggjast niður. Óvissan
hefur slæm áhrif á líðan starfsmanna, bæði vegna
áhyggna af eigin hag og einnig vegna kvíðboga
sem þeir bera vegna afdrifa skjólstæðinganna
sem sinnt er á spítalanum. Þetta á ekki síst við
núna þegar sannkallaður faraldur inflúensu með
tilheyrandi irtnlögnum og veikindum geisar.
Hvað verður um hin svokölluðu kragasjúkra-
hús? Starfsfólkið þar virðist ekki vita það, að
minnsta kosti ekki þeir sem skrifa í blöðin. Verður
hluti af starfsemi kragasjúkrahúsanna færður til
Landspítala? Hvað þá með niðurskurðinn sem
búið er að boða þar? Hvaða starfsemi á að fara
þaðan og þá hvert? Spurningarnar eru margar og
þeim er flestum ósvarað. Síðasti heilbrigðisráð-
herra hvarf af sjónarsviðinu með hvellþ ég verð að
segja eins og er að ég hélt að kominn væri 1. apríl
þegar ég opnaði vefmiðil og þetta blasti við. Við
þurfum síst af öllu á svona óstöðugleika að halda.
Það sama á við um okkur á Landspítala þegar
fyrrverandi forstjóri hvarf á braut eftir aðeins
nokkurra mánaða starf, en miklar væntingar voru
gerðar til þeirrar sýnar sem hún boðaði. Við viljum
stöðugleika og skýra stefnu.
Reyndar hefur stefnan skýrst hvað varðar lyfja-
mál og er það að mínum dómi vel. Ríkiskassinn
er tómur og sjálfsagt að ríkið velji að greiða niður
ódýrari lyf í þeim tilvikum þar sem þau virka eins
vel og hin dýrari. Við lungnalæknar höfum séð
tölur um kostnað vegna innúðalyfja með sterum
hér á landi miðað við í Noregi. Á íslandi eru þessi
lyf notuð í mun meira magni en hjá frændum
okkar í Noregi. Gefnar hafa verið út alþjóðlegar
leiðbeiningar (GOLD) um það við hvaða stig
lungnateppu eigi að byrja að nota innúðalyf
með sterum að staðaldri. Miðað við hina miklu
notkun þessara lyfja hér á landi er ljóst að þessum
leiðbeiningum er ekki fylgt sem skyldi. Ég heyrði
af því að á einni af heilsugæslustöðvum höfuð-
borgarsvæðisins var beinn sparnaður ríkisins af
því að þar var tekin upp sú stefna að ávísa ódýr-
asta magalyfinu ein milljón á mánuði að meðaltali
á síðasta ári. Þarna getum við læknar tekið okkur á
og sparað fyrir okkar sameiginlega sjóð, ríkið.
Stjórn LÍ
Bima Jónsdóttir, formaður Þórarinn Guðnason, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkerí Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Kristján G. Guðmundsson Ragnar Gunnarsson Sigurður Böðvarsson Læknadagar
Valentínus Þór Valdimarsson Valgerður Rúnarsdóttir á Nordica Hilton
(pistlunum Úr penna stjórnarmanna Li birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. 18.-22. janúar 2010
LÆKNAblaðið 2009/95 775