Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2010, Page 13

Læknablaðið - 15.04.2010, Page 13
Niðurstöður FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Samkvæmt Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands greindust á rannsóknartímabilinu alls 1047 einstaklingar með lungnakrabbamein önnur en smáfrumukrabbamein (ÖES). I töflu I má sjá hlutfall þeirra sjúklinga sem gengust undir lungnablaðnám af öllum greindum tilfellum á hverju ári. Árlegur fjöldi aðgerða var á bilinu 16-29 og jókst fjöldi aðgerða marktækt eftir því sem leið á rannsóknartímabilið (p=0,038). Aukinn fjöldi aðgerða sem hlutfall greindra tilfella var þó ekki marktækur (p=0,065). Alls greindust 85 sjúklingar (40%) fyrir tilviljun (mynd 1), oftast vegna myndrannsókna sem gerðar voru vegna annarra sjúkdóma eða slysa. Tilhneiging til aukningar í tilviljanagreiningu sást á síðari hluta rannsóknartímabilsins en munurinn var ekki marktækur (p=0,098). Stærstur hluti (60%) sjúklinga greindist vegna einkenna og eru þau helstu sundurliðuð í töflu II. Alls gengust 29 (13,6%) sjúklingar undir miðmætisspeglun fyrir aðgerðina, þar af 18 (8,5%) í sömu aðgerð. Aðgerðartími (skin-to-skin) var að meðaltali 128 mínútur (bil 45-360) og var blæðing í aðgerð að meðaltali 580 ml (bil 100- 4000 ml). Alls blæddi meira en 1000 ml í aðgerð hjá 23 sjúklingum, oftast vegna blæðingar frá lungnaslagæð eða lungnabláæð. Alls voru 132 sjúklingar (62%) með kirtil- myndandi krabbamein, 62 (29,1%) með flöguþekjukrabbamein og 9 (4,2%) með stór- frumukrabbamein. Tíu sjúklingar (4,7%) reyndust með aðrar gerðir lungnakrabbameins (ÖES), þar af voru átta (3,7%) með kirtilmyndandi flögu- þekjukrabbamein (adenosquamous carcinoma), einn (0,5%) með blöðrukirtilmyndandi krabba- mein (adenoid cystic carcinoma) og annar (0,5%) með óþroskað krabbamein af þekjuuppruna (undifferentiated carcinoma). Tveir sjúklingar voru fyrir aðgerð greindir með flöguþekjukrabbamein við berkjuspeglun en reyndust við smásjárskoðun á sýni úr aðgerð vera með setkrabbamein (carcinoma in situ, stig 0). Algengast var að æxlin væru meðalvel þroskuð (41,3%), þar næst illa þroskuð (33,8%) og 18,8% voru vel þroskuð. Tíu (4,7%) æxli voru óþroskuð (anaplastic). Gráðun var ekki greinanleg í þremur (1,4%) tilvikum, meðal annars hjá sjúklingi með Pancoast-æxli sem fór í geislameðferð fyrir aðgerð. Meðalstærð æxlanna var 3,7 cm ± 2,1 en minnsta æxlið var 0,2 cm og það stærsta 19 cm. Æxlisvöxtur sást í skurðbrún 14 sjúklinga við vefjaskoðun og fengu átta þeirra geisla- og/eða lyfjameðferð í kjölfarið. Hinir sex fengu enga viðbótarmeðferð og létust tveir þeirra stuttu eftir aðgerðina. Annar þeirra var með setkrabbamein Tafla I. Hlutfall sjúklinga sem gengust undir lungnablaðnám af öllum sem greindust með lungnakrabbamein (smáfrumukrabbamein undanskilin) á íslandi 1999-2008. Ár Fjöldi greindra lungnakrabbameina annarra en smáfrumukrabbameina Fjöldi aðgerða Hlutfall (%) 1999 116 16 13,8 2000 124 20 16,1 2001 108 19 17,6 2002 96 16 16,7 2003 126 21 16,7 2004 119 29 24,4 2005 117 20 17,1 2006 120 24 20,0 2007 121 24 19,8 2008 ** 24 ** * lungnakrabbamein önnur en smáfrumukrabbamein ** upplýsingar vantar Tafla II. Einkenni 128 sjúklinga (tilviljanagreindum sleppt) sem gengust undir lungnablaðnám á Islandi 1999-2008. Sjúklingar geta haft fleiri en eitt einkenni samtímis. Gefinn er upp fjöldi sjúklinga og prósentur ísviga. Einkenni n (%) Hósti 78 (60,9) Hósti með uppgang 40 (30,3) Brjóstverkur 41 (32,0) Blóðhósti 14(10,9) Mæði 50(39,1) Þyngdartap 32 (25,0) Hiti 18(14,1) Lungnabólga 30 (23,4) af þekjufrumuuppruna (squamous carcinoma in situ) og var því ekki talinn þurfa viðbótarmeðferð en hinn sjúklingurinn lést ári eftir aðgerð. Flestir sjúklinganna (59,6%) greindust á stigi I, en 17,8% á II, og 7% á stigi IIIA. Stigun hélst tiltölulega óbreytt á milli ára. Þrettán sjúklingar greindust á stigi IIIB. Flestir þeirra voru með tvö eða fleiri æxli í sama lungnablaði. Ellefu sjúklingar voru á stigi IV, þar af voru þrír greindir með stakt heilameinvarp áður en þeir gengust undir blaðnám. Þrír sjúklingar greindust með meinvarp í aðgerð og fimm sjúklingar innan þriggja mánaða frá aðgerð, flestir með meinvörp í heila. Miðgildi legutíma eftir aðgerð var 10 dagar, eða allt frá tveimur og upp í 106 daga. Alls lágu 30 sjúklingar (14,5%) á gjörgæslu eftir aðgerð, þar af 20 þeirra í tæpan sólarhring, oftast til eftirlits vegna hjarta-, lungna- eða nýrnasjúkdóma. Ellefu (5,2%) sjúklingar lágu lengur en sólarhring á gjörgæslu, en sá sem lá þar lengst var í 75 daga. Átta (3,8%) sjúklingar voru ekki vaktir á skurðstofu og voru fluttir á gjörgæslu í öndunarvél, þar sem þeir voru frá einum og upp í 74 daga í öndunarvél. LÆKNAblaðið 2010/96 245

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.