Læknablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 61
Súlurit 1. Fjöldi
rannsókna á HSu á
tímabilinu 1. janúar-31.
október 2008 og 2009.
Rannsóknum fækkaði milli
ára úr 92.613 í 66.008
talsins, eða um 28,7%.
Súlurit 2. Fjöidi
rannsókna á
rannsóknarstofu HSu á
tímabilunum apríl-maí
og september-október
borinn saman milli áranna
2008 og 2009. Hér sést að
rannsóknum fækkaði frá
árinu 2008 til 2009 og er
fækkunin meiri á tímabilinu
september-október en apríl-
maí.
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
HAGRÆÐING: A F LÆKNADÖGUM
Ekki er hægt að yfirfæra niðurstöðurnar á
aðrar heilbrigðisstofnanir þar sem ytra réttmæti
rannsóknarinnar er ekki nógu gott. Við erum
með einn rannsóknarhóp sem ekki er raðað
tilviljanakennt í og getum því ekki borið
niðurstöðuna saman við samanburðarhóp. Niður-
stöður gefa vísbendingar um hvaða fjárhagslega
ávinningi væri hægt að ná annars staðar með
sömu aðgerðum, en endurtaka þyrfti rannsóknina
á öðrum stað til að staðfesta eða hafna okkar
niðurstöðu.
Niðurstöður
Rannsóknum á rannsóknarstofu HSu á tímabilinu
1. janúar til 31. október fækkaði milli áranna 2008
og 2009 úr 92.613 í 66.008 eða um 28,7%, súlurit 1.
A sama tíma dróst starfsemi ekki saman á HSu í
innlögnum á sjúkradeildir eða fjölda samskipta
heilsugæslu.
Fjöldi rannsókna árin 2008 og 2009
100,000
80,000
60,000
40,000
20,000
Fjöldi rannsókna á tímabilinu apríl-maí 2009
var 14.587 en hafði verið 21.232 árið 2008. Þetta er
því um 31% fækkun rannsókna milli ára á þessu
tímabili, það er áður en rannsóknareyðublaði
var breytt. Rannsóknum á tímabilinu september-
október 2008 og 2009 fækkaði úr 21.527 í 13.437
sem er um 38% fækkun milli ára, það er eftir
að rannsóknareyðublaði var breytt. Samanburð
á fjölda rannsókna fyrir tímabilið september-
október 2009 og 2008 má sjá í súluriti 2.
Hlutfallsleg fækkun rannsókna milli ára er meiri
þegar tímabilið sept-okt er skoðað miðað við
apríl-maí, en mismunurinn nemur um 18%.
Rannsóknir sem teknar höfðu verið af
rannsóknareyðublaði fækkaði um 49% frá árinu
2008 til 2009 á tímabilinu jan-okt (úr 24.330 í
12.361). Rannsóknir sem ekki voru fjarlægðar af
rannsóknareyðublaði fækkaði um 23% á sama
tímabili, úr 62.921 í 48.473, súlurit 3.
Áhrif eyðublaðs á fjölda rannsókna
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Rannsóknum fækkað á nýju belðnlnni Rannsóknum fækkað sem ekki eru á nýju
belðnlnni
Súlurit 3. Fækkun rannsókna á tímabilinu jan-okt milli
áranna 2008-2009Jyrir pær rannsóknir sem voru hafðar
áfram á rannsóknareyðublaðinu og þær rannsóknir sem
fjarlægðar voru af rannsóknareyðublaðinu. Hér má sjá meiri
fækkun rannsókna sem teknar voru af rannsóknareyðublaðinu
miðað við pær sem vortt áfram á eyðublaðinu.
Spurningalisti lækna
Svarhlutfall spurningalistans var 100%, allir
læknarnir 22 sem fengu listann skiluðu inn
svörum. Þegar læknarnir voru spurðir hvort
þeir teldu fræðsludaginn hafa fækkað þeim
rannsóknum sem þeir pöntuðu fyrir sjúklinga
sína, töldu 91% þeirra að fræðsludagurinn hefði
haft mikil eða mjög mikil áhrif. Læknarnir voru
spurðir hversu mikið þeir teldu sig hafa fækkað
rannsóknum og töldu 86% sig hafa fækkað þeim
á bilinu 10-30%.
Umræða
Rannsóknum á HSu fækkaði milli áranna 2008 og
2009. A tímabilinu apríl-maí fækkaði rannsóknum
um 31% á árinu 2009 miðað við 2008. Er
þessi samdráttur talinn standa í sambandi við
fræðslufundinn í febrúar þó að hugsanlegt sé að
aðrir þættir geti hafa haft áhrif. Seinna tímabilið
september-október 2009 hafði rannsóknum
fækkað um 38% frá árinu áður og um 18% frá
fyrra tímabili ársins 2009. Er minnkun þessi talin
stafa að hluta af breytingu á rannsóknareyðublaði
sem á þessum tíma var komin í fulla notkun. Sú
staðreynd að fækkun rannsókna var hlutfallslega
meiri á seinna tímabili ársins en fyrra tímabili
styður þá tilgátu að breyting á eyðublaði hafi
haft viðbótaráhrif til fækkunar rannsókna, en
starfsemin var sambærileg bæði árin. Þeim
rannsóknum sem fjarlægðar voru af staðlaða
rannsóknareyðublaðinu fækkaði nær helmingi
meira en rannsóknunum sem voru hafðar áfram
á eyðublaðinu.
Ef borinn er saman fjöldi rannsókna á HSu við
rannsóknir annarra sjúkrahúsa á suðvesturhluta
landsins á árinu 2009 kemur í ljós að aukning á
sér stað á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
um 2%, en fækkun verður um 2% á Landspítala.
Á HSS og HSu fjölgaði legudögum á umræddu
LÆKNAblaðiö 2010/96 293