Læknablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 55
U M R Æ Ð A
O G FRÉTTIR
LÆKNADEILD
Ögrun læknakennslunnar
Gríðarleg framþróun á sér stað í læknakennslu
í heiminum og í sannleika sagt erum við
stödd í miðri þekkingarsprengingu. Það er
sú ögrun sem læknakennsla á við að etja
alls staðar að sögn Guðmundar. „Við þurfum
sífellt að veita nemendum innsýn inn í nýja
þekkingarbrunna grunnvísinda og tækniþróunar
án þess að grunngreinar á borð við líffærafræði,
sem stendur á gömlum merg, úreldist. Hún
hefur reyndar gengið í endurnýjun lífdaga með
myndgreiningatækni á borð við segulómun
og tölvusneiðmyndatækni. Allir læknar þurfa
að þekkja hvernig mannslíkaminn er byggður,
hvar sinamar tengjast vöðvum og beinum og
hvar taugabrautirnar liggja. Við getum ekki
kastað því gamla fyrir róða þó ný þekking komi
fram á sjónarsviðið. Ekki má svo gleyma því að
væntingar samfélagsins til þjónustu, upplýsinga
og samskipta við heilbrigðiskerfið taka sífelldum
breytingum auk þess sem væntingar lækna til
sjálfra sín hafa sömuleiðis tekið breytingum.
Einyrkinn er orðinn fágæt persóna, bæði
innan sjúkrahúsa og utan, og samfelldar vaktir
sólarhringum saman þekkjast ekki lengur. Nú eru
viðfangsefni víðast leyst í teymum, sem kallar á
samstarf margra heilbrigðisstétta. Ekki er óalgengt
að læknirinn vinni nú í náinni teymisvinnu með
hjúkrunarfræðingi, sálfræðingi, lyfjafræðingi og
félagsráðgjafa svo dæmi sé tekið, enda má segja að
teymisvinna sé orðin stór þáttur af þjálfun lækna.
Þessi þróun leiðir til bættrar þjónustu, en hefur
án efa skipulagslegan vanda sem fylgifisk sem
birtist m.a. í spurningum um hver beri endanlega
ábyrgð gagnvart sjúklingnum. Við lítum svo á
að læknirinn sé í forystuhlutverki teymisins, en
hann er vissulega lélegur forystusauður ef hann
kann ekki að vinna með öðrum, deila ábyrgð og
sjónarmiðum og læra af öðrum. Við þurfum sífellt
að vera á tánum í endurskoðun læknanámsins
því mikilvægt er að við náum að skila frá okkur
fólki sem hefur náð að þróa vísindalega og
gagnrýna hugsun, tekur ábyrgð á eigin þekkingu,
þekkir takmörk sín og axlar ábyrgð á ævilangri
símenntun. Gangan heldur áfram þrátt fyrir að
læknaskírteinið sé í hendi."
Guðmundur Þorgeirsson
forseti læknadeildar
á skrifstofu sinni
á Landspítala við
Hringbraut.
Alþjóðleg akademía
Tvö til þrjú hundruð nemendur þreyta fjölþætt
samkeppnispróf inn í læknadeildina í júní á
hverju ári, en aðeins 48 sæti eru til skiptanna sem
LÆKNAblaðið 2010/96 287