Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 63

Læknablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 63
H A G UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR RÆÐING: A F LÆKNADÖGUM tímabili en fækkaði um 2-3% á Landspítala. Fjöldi samskipta á heilsugæslu HSu var svipaður árin 2008 og 2009 og er því ástæða fækkunar rannsókna ekki minnkuð starfsemi stofnunarinnar. Nær allir læknarnir sem rannsóknin náði til fækkuðu rannsóknum sínum verulega eftir fræðsludaginn í febrúar 2009. Aðeins tveir læknar fjölguðu rannsóknum og hafði annar þessara lækna verið frá vinnu stóran hluta árs 2008. Samantekið má segja að fækkun rannsókna er umtalsverð eftir fræðsludaginn og þeim rartnsóknum sem mælt er með að fækka fækkar mun meira en öðrum. Áhrif eyðublaðsins eru einnig umtalsverð á þann hátt að umframfækkun rannsókna virðist verða þegar nýtt eyðublað er innleitt. Rekstraruppgjör HSu fyrir árið 2009 sýndi nærri 20 milljóna lægri rekstrarkostnað árið 2009 en árið 2008 þrátt fyrir verulega hækkun allra aðfanga. Niðurstaða spurningakönnunar leiðir í ljós jákvæða afstöðu læknanna til inngrips stjórnenda til að fækka rannsóknum og lækka með því kostnað. Meirihluti lækna er sáttur og telur fræðsluna hafa verið gagnlega. Líklegt má telja að árangur hefði orðið minni ef afstaða lækna hefði verið neikvæðari. Við rannsóknina nutum við aðstoðar starfsfólks rannsóknarstofu HSu og Landspítala sem tók saman fjölda rannsókna gerða á þessu tímabili. Þakkir til allra lækna og lífeindafræðinga sem sýndu málinu áhuga og tóku þátt af áhuga og með góðri virkni, bæði þátttakendur og fyrirlesarar á fræðadegi. Einnig þakkir til HSS og Landspítala fyrir upplýsingar um fjölda rannsókna hjá þeim. Heimildir 1. Bain KT. Barriers and strategies to influenceing physician behaviour. Am J Med Quality 2007; 22: 5-7. 2. Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ársskýrsla Hsu 2008. 3. Greco PJ, Eisenberg JM. Changing physicians' practices. N Engl J Med 1993; 329:1271-4. 4. Tiemey WM, Hui SL, McDonald CJ. Delayed feedback of physician performance versus immediate reminders to perform preventive care: effects on physician compliance. Med Care 1986; 24: 659-66. 5. Eisenberg JM. Doctors' decisions and the cost of medical care. Ann Árbor, Mich. Health Administration Press 1986. Börnin þyngjast og þyngjast Hávar Sigurjónsson þýddi Athygli heimsins beinist að vaxandi offitu Bandaríkjamanna með átaki í nafni forseta- frúarinnar Michelle Obama undir slagorðinu Let's Move. Staðreyndir um offitu barna þar eru skelfilegar en önnur vestræn ríki eru ekki langt á eftir í þróuninni. Margt hefur verið rætt og ritað um efnið og enginn ætti að velkjast í vafa um það; lausnirnar eru fyrir hendi en þegar kemur að framkvæmd virðast hindranirnar óyfirstíganlegar. í leiðara Lancet 20. febrúar er bent á að samkvæmt niðurstöðum National Health and Nutrition Examination Survey er annað hvert barn í Bandaríkjunum við eða yfir 85 hundraðshluta markinu á BMI kvarðanum. Ennfremur kemur fram í niðurstöðum Kaiser Family stofnunarinnar að bandarísk börn á aldrinum 8-18 ára verja að meðaltali 7,5 klukkustundum á dag við hreyfingarlausa iðju eins og sjónvarp, tölvu, tónlist og tölvuleiki. Verður að teljast bitamunur en ekki fjár hvort evrópsk börn verja heldur styttri tíma við sömu iðju daglega. Átakið sem Obama leiðir beinist að fjórum þáttum sem hafa áhrif á offitu bama: vanþekkingu foreldra á hollri fæðuvali, lélegri næringu í skólum, hreyfingarleysi í daglegu lífi og takmörkuðum aðgangi að hollum mat í verslunum í hverfum lágtekjufólks. Hið síðasttalda á einna síst við um íslenskan veruleika, en bent hefur verið á að aðgangur að hollum matvælum sé ekki nóg, verðlagning þeirra verður að leyfa almenningi að geta keypt þau. Hefur oft verið bent á að grænmeti og ávexti séu mun dýrari en svokallaður ruslmatur og að niðurgreiðsla eða verðstýring á hollum mat verði að koma til ef hvatning af þessu tagi eigi að hafa áhrif á innkaupavenjur fólks. í nýrri rannsókn sem Lancet vísar til kemur fram að staðsetja megi upphafspunkt offitu barna sem við tíu ára aldur eru komin að eða yfir 85 hundraðshluta af BMI, við 22 mánaða aldur. Fullyrt er að aldursbilið milli 6 mánaða og tveggja ára sé hið mikilvægasta í mótun matarsmekks bamsins og því verði að beina meginþunga fræðslu og stuðnings að nýbökuðum foreldrum og gera þeim grein fyrir að mataræði barnsins til framtíðar ráðist að miklu leyti á þessum aldri. Til að árangur náist verði að fara saman fræðsla, stuðningur, aðgengi, verðstýring, hvatning og samhæft átak á öllum stigum umönnunar þar sem börnum er boðinn matur, ef ekki á að fara sem horfir að óbreyttu; að hverfa verði aftur fyrir miðja síðustu öld til að finna sambærilegar lífslíkur fyrir kynslóðina sem nú er að vaxa úr grasi. LÆKNAblaðið 2010/96 295
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.