Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2010, Síða 35

Læknablaðið - 15.04.2010, Síða 35
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Notkun óhefðbundinnar heilbrigðisþjónustu á Islandi Björg Helgadóttir félagsfræðingur Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðingur Þóra Jenný Gunnars- dóttir hjúkrunarfræðingur Lykilorð: óhefðbundin meðferð, samfélagshópur, heilsufar, læknisheimsókn. öll starfandi við hjúkrunarfræðideild HÍ Fyrirspurnir og bréfaskipti: Rúnar Vilhjálmsson, Háskóla íslands, Eirbergi, Eiríksgötu 34,101 Reykjavík. runarv@hi.is Ágrip Tilgangur: Almenningur á Vesturlöndum virðist nota óhefðbundnar meðferðir í vaxandi mæli við veikindum og til að efla heilsu. Svo virðist sem grunnhugmyndir þessara meðferða hafi umtalsverðan hljómgrunn. Lítið er vitað um notkunina hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna í hvaða mæli íslendingar leita til óhefðbundinna meðferðaraðila og hvaða þættir kunni helst að skýra hjálparleitina. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin byggir á landskönnuninni Heilbrigði og aðstæður Islend- inga I, sem fram fór haustið 2006. Spurningalistar voru póstsendir til þjóðskrárúrtaks Islendinga á aldrinum 18-75 ára. 1532 manns svöruðu könnuninni og heimtur voru 60%. Niðurstöður: Alls höfðu tæp 32% svarenda nýtt sér þjónustu óhefðbundins aðila síðastliðna 12 mánuði sem telja má um 6% aukningu frá árinu 1998. Konur og tekjuhærra fólk notaði óhefðbundna heilbrigðisþjónustu frekar en aðrir. Líkamleg og sálræn vanlíðan tengdist einnig notkuninni. Þeir sem höfðu neikvæða eða jákvæða afstöðu til læknisþjónustu notuðu frekar óhefðbundna þjónustu en þeir sem voru hlutlausir í afstöðu sirrni. Þeir sem fóru endurtekið til læknis notuðu frekar óhefðbundna þjónustu en þeir sem fóru sjaldnar eða ekki til læknis. Ályktun: íslendingar nota þjónustu óhefðbund- inna meðferðaraðila í umtalsverðum og vaxandi mæli. Svo virðist sem ákveðinn hópur landsmanna telji sig ekki fá fullnægjandi þjónustu í hinu almenna heilbrigðiskerfi. Flestir virðast nota óhefðbundna þjónustu sem viðbót við hefðbundna heilbrigðisþjónustu. Inngangur Óhefðbundin heilbrigðisþjónusta er samsafn ólíkra lækninga- og meðferðakerfa, starfsemi og varnings, er miðar að því að bæta heilsu fólks en er ekki hluti hefðbundinna læknavísinda. Meðferðirnar njóta ekki almennrar viðurkenningar innan læknastéttarinnar, eru sjaldnast kenndar í læknaskólum og því lítt iðkaðar af læknum.1,2 Hérlendis hefur óhefðbundin heilbrigðisþjónusta sem veitt er utan hefðbundins heilbrigðiskerfis verið nefnd „heilsutengd þjónusta græðara".3 Óhefðbundnar meðferðir byggja á nokkrum grunnhugmyndum. Fyrst er að nefna heildræna hugsun um einstaklinginn, heilbrigði hans og veikindi. Þá er lögð áhersla á innbyrðis tengsl hugar, líkama og anda. Byggt er á þeirri pósitífu hugmynd að heilsa sé ekki einungis skortur á sjúkdómi. Ávallt sé hægt að verða heilbrigðari og því sé heilsa í raun óendanlegt markmið. Þá skiptir orkuflæði miklu máli í mörgum þessara aðferða og er talið tengja saman mismunandi hluta líkamans. Loks er ekki sama hvernig heilsu er náð og haldið. Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn axli ábyrgð á heilsu sinni og sé veitt hjálp og aðstoð til þess.4 Notkun á óhefðbundnum meðferðum hefur aukist á undanförnum áratugum í vestrænum löndum. Svo virðist sem grunnhugmyndir þessara meðferða höfði til breiðs hóps, enda skýrist sókn í þessar meðferðir af áhuga almennnings fremur en heilbrigðisstétta.4 Bandarísk rannsókn leiddi í ljós að notkun á óhefðbundnum meðferðum hefði aukist úr tæplega 34% í rúmlega 42% á sjö árum.2 Áströlsk rannsókn sýndi að 44% svarenda höfðu farið til óhefðbundins þjónustuaðila á 12 mánuðum.5 Þá sýnir dönsk rannsókn að fimmtungur Dana hafði notað óhefðbundnar meðferðir6 og norsk rannsókn sýndi að 37% Norðmanna höfðu notað slíkar meðferðir á 12 mánuðum/ Erlendar rannsóknir benda til að sókn í óhefðbundnar meðferðir sé töluvert mismunandi eftir hópum. Mestur virðist áhuginn vera meðal kvenna,5-8 fólks á miðjum aldri,2-8 fólks í fullu starfi,9 fólks með meiri menntun2- 8-9og tekjur,2og meðal þeirra sem glíma við langvinna sjúkdóma,8- 9 líkamlega fötlun,10krabbamein,n gigt og verki,9-10- 12 og kvíða og þunglyndi.12 Viðhorf til hefðbundinna og óhefðbundinna meðferða og fyrri notkun á hefðbundinni heilbrigðisþjónustu geta haft áhrif á hvort óhefðbundin þjónusta er notuð. Svo virðist sem notkun óhefðbundinnar þjónustu feli almennt ekki í sér höfnun á þeirri hefðbundnu, því oftast LÆKNAblaðið 2010/96 267

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.