Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2010, Page 39

Læknablaðið - 15.04.2010, Page 39
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR upplifðu álag sitt (fí = 0,098; p<0,001). Þá sýnir tafla II að eftir því sem læknis- heimsóknum fjölgaði hækkaði hlutfall þeirra sem höfðu nýtt sér óhefðbundna þjónustu. Hæst var hlutfallið hjá þeim sem höfðu farið í fjórar eða fleiri læknisheimsóknir síðastliðna 12 mánuði (46,2%), en hlutfallið var lægst hjá þeim sem ekki höfðu farið til læknis, eða 20,7% (V = 0,208; p<0,01). Þegar afstaða fólks til þjónustunotkunar var skoðuð kom í ljós að hátt hlutfall þeirra sem voru mótfallnir notkun hefðbundinnar læknisþjónustu nýttu sér óhefðbundna þjónustu, eða rúm 71%. Rétt er þó að athuga að þessi tala byggir á fáum einstaklingum. Næsthæsta hlutfall notenda óhefðbundinnar þjónustu var að finna í flokki þeirra sem voru fylgjandi hefðbundinni læknisþjónustu (tæp 33%). Þeir sem voru hvorki með né á móti notkun hefðbundinnar læknisþjónustu nýttu sér síst óhefðbundna þjónustu (V = 0,079; p<0,05). Svipað mynstur kom fram þegar afstaða til notkunar geðlæknisþjónustu var athuguð. Þar var hlutfall notkunar á óhefðbundirtni þjónustu hæst meðal þeirra sem voru mótfallnir geðlæknisþjónustu (40,9%) og næsthæst meðal þeirra sem voru fylgjandi geðlæknisþjónustu (33,9%) (V = 0,106; p<0,001). Þá kemur líklega ekki á óvart að þeir sem voru fylgjandi óhefðbundinni heilbrigðisþjónustu voru mun líklegri til að nota hana (40,2%) en aðrir (V=0,230; p 0,001). Breytur tengdar trúarlífi tengdust ekki notkun á óhefðbundinni þjónustu, né heldur langvinnir erfiðleikar, eða fjöldi heimsókna til geðlæknis. Tafla III sýnir niðurstöður úr marghliða lógaritmalínulegri aðhvarfsgreiningu þar sem marktækar breytur voru valdar með þrepavali (stepwise selection). Samkvæmt töflunni voru konur 2,3 sinnum líklegri til að nýta sér óhefðbundna heilbrigðisþjónustu en karlar. Þeir sem höfðu hærri tekjur notuðu þjónustuna frekar en þeir sem lægri tekjur höfðu, Þó var sambandið ekki allskostar línulegt því líkur á notkun óhefðbundinnar þjónustu voru minnstar í næstlægsta tekjuhópnum. Meiri líkamleg vanlíðan og reiði tengdust einnig auknum líkum á að leita til óhefðbundins aðila. Þeir sem voru mótfallnir notkun læknisþjónustu voru 8,5 sinnum líklegri til að nota þjónustu óhefðbundinna aðila en þeir sem voru hlutlausir gagnvart læknisþjónustunni (hópur mótfallinna var þó fámennur). Þeir sem voru fylgjandi notkun á óhefðbundinni heilbrigðisþjónustu voru 3,2 sinnum líklegri til að nýta sér slíka þjónustu heldur en þeir sem voru hlutlausir í afstöðu sinni. Loks sýnir tafla III að þeir sem fóru oftar til læknis Tafla III. Niðurstöður lógaritmalínulegrar aðhvarfsgreiningar á þáttum tengdum notkun óhefðbundinna þjónustuaðila (n-1110). Breytur B Staðalvilla OR (Exp B) Kynferði (1 =kona) 0,826*" 0,154 2,284 Tekjur (á ári) 1,7-3,4 milljónir -0,160 0,178 0,852 3,5-5,4 milljónir -0,028 0,197 0,973 5,5 milljónir eða meir 0,440 0,237 1,553 Líkamleg vanlíðan (stigakvarði) 0,042" 0,014 1,043 Reiði (stigakvarði) 0,072* 0,029 1,075 Afstaða til notkunar læknisþjónustu Fylgjandi -0,341 0,252 0,711 Mótfallin/n 2,142 1,192 8,519 Afstaða til notkunar óhefðbundinnar heilbrigðisþjónustu Fylgjandi 1,171"* 0,187 3,226 Mótfallin/n -0,047 0,386 0,954 Fjöldi læknisheimsókna 0,074*** 0,022 1,077 Fasti -2,297*" 0,297 0,101 -2 Log Likelihood 1229,58 Frígráður 1098 • p<0,05; ” p<0,01; *" p<0,001 (tvíhliða próf) voru líklegri til að leita einnig til óhefðbundins aðila. Umræður Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að notkun íslendinga á óhefðbundinni heil- brigðisþjónustu hefur aukist um nálega 6% á átta árum. Nuddarar og sjúkranuddarar eru þeir óhefðbundnu þjónustuaðilar sem íslendingar leita mest til. Meiri notkun kvenna en karla á óhefðbundinni heilbrigðisþjónustu er í samræmi við fyrri rannsóknir erlendis og innanlands.2- 14- 15 Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart því konur nýta sér almennt heilbrigðisþjónustu meira en karlar. Skýringar á þessu kunna að liggja í því að konur hafi almennt meiri þörf fyrir heilbrigðisþjónustu en karlar, en einnig er hugsanlegt að áherslur margra óhefðbundinna meðferða (til dæmis áherslan á heildræna nálgun) höfði frekar til kvenna en karla. Þótt erlendar rannsóknir leiði í ljós mun á notkun óhefðbundinnar þjónustu eftir aldri leiða hvorki fyrri né núverandi innlend rartnsókn í ljós slíkan mun.15 Tengsl hærra menntunarstigs og notkunar óhefðbundinnar heilbrigðisþjónustu eru hins vegar í samræmi við erlendar og innlendar rannsóknir,2- 15 en menntunarmunurinn var þó ekki marktækur þegar tekið var tillit til tekna í marghliða aðhvarfsgreiningu. Fólk með hærri LÆKNAblaðíð 2010/96 271

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.