Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2010, Page 49

Læknablaðið - 15.04.2010, Page 49
UMRÆÐUR 0 G SVÆFINGAR F R É T T I R í 15 0 Á R „Þetta verkefni var aldrei hugsað í ágóðaskyni. Tekjur mínar hef ég aðallega úr lífeyrissjóði lækna og vegna þessara tveggja hlutastarfa sem ég er í. Þau störf vinn ég heldur ekki mér til framfærslu heldur frekar til að vera áfram virkur í faginu." Með blýanti Það er fleira en efni bókarinnar sem gerir hana einstaka í sinni röð. „Þessa bók skrifaði ég með blýanti/' segir Jón sposkur á svip og leiðin liggur inn á skrifstofu hans þar sem enn má sjá gögn er tengjast efni bókarinnar. Á miðju skrifborðinu er þó venjuleg borðtölva, skjár og lyklaborð. Jón tekur upp lítið armband með frönskum rennilás, setur um vinstri hönd og stingur blýanti í op sem ætlað er hnífapörum en hann er búinn að finna út að duga fyrir blýantinn sem hann notar til að pikka á lyklaborðið, staf fyrir staf. Strokleðrið vísar niður, það er stamasti hluti blýantsins og skrensar ekki nema stundum yfir á rangan takka. „Hástafatakkinn, CAPS, er reyndar alltaf að flækjast fyrir mér, hann er á afleitum stað," segir Jón og þarf ekki fötlun til að hafa orðið fyrir því. Á þennan hátt hefur hann með stakri þolinmæði fært allan texta bókarinnar inn í tölvuna. Hvers vegna arðu svæfingar fyrir valinu? Jón brosir í kampinn þegar þessi spurning er lögð fyrir hann. „Raunar hafði ég valið mér allt aðra sérgrein, mig langaði að verða lungnalæknir, það er að fara í lyflækningar með sérstakri áherslu á lungnasjúkdóma. En eins og svo margt í tilverunni var það fyrst og fremst tilviljun sem réði því að ég fékk áhuga á svæfingalækningum. Þegar ég var að ljúka læknanámi var haldinn fundur í stofu 1 í Háskóla íslands þar sem lausar stöður sem voru í boði á spítölunum fyrir kandídatsárið voru kynntar. Þar var ýmislegt í pottinum, meðal annars ein staða á Vífilsstöðum, þar sem Hrafnkell Helgason lungnasérfræðingur starfaði. Þetta var eins konar uppboð og við vorum tveir sem réttum upp hönd og sýndum stöðunni á Vífilsstöðum áhuga, Björn Magnússon og ég. Því þurfti að draga um það hvor fengi hana og ég laut í lægra haldi. Björn hélt áfram á þessari braut en ég fór á ýmsar deildir og einhvern tíma á þeirri leið fór ég að velta fyrir mér svæfingalækningum. Ég var hálft ár á barnadeildinni en um það leyti kynnist ég svæfingadeildinni og þá var ég ekki búinn að ákveða að leggja svæfingarnar fyrir mig. En þegar ég fór að vinna á svæfingadeildinni held ég að ég hafi verið búinn að gera upp hug minn. Þetta var hæfilega lítil deild og ýmsir sem þar hafa ætlað að vinna tímabundið hafa síðan ákveðið að leggja svæfingar fyrir sig. Ég var hins vegar ákveðinn þegar ég byrjaði þar og hef aldrei séð eftir því. Ég er ánægður með að hafa valið þessa sérgrein og finnst ég hafa skilað góðu dagsverki. En stundum var gríðarlegt álag á mér og núna þegar ég er sestur í helgan stein finnst mér að ég hafi stundum látið streituna ná tökum á mér og hafi verið fullharður og ósanngjarn stundum og jafnvel hreytt ónotum í fólk í þessu streitufulla andrúmslofti. Maður verður ekki meiri maður á því. Hitt getur líka gerst að maður verði að kyngja einhverju til þess að halda friðinn. Það eru gerðar miklar kröfur til afkasta á skurðstofum og okkur pískað áfram og til að halda gæðum og öryggi þarf stundum að finna gullinn meðalveg til þess að láta ekki streituna koma niður á því sem maður er að gera." Svæfingarútbúnaður á Landakoti. Systir Benedicta gaf Hjúkrunarfélagi íslands þessa muni árið 1972. Mynd Margrét jóhanns- dóttir Norrænt samstarf Það var ekki einskær tilviljun að Jón lenti í ritnefndinni örlagaríku því meðal trúnaðarstarfa sem honum hafa verið falin voru stjórnarseta í félagi norrænna svæfingalækna. „Norræna samstarfið var mjög gefandi og ég var í stjórn félags norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna í um það bil áratug. Ég átti ágæta vini frá námsárunum í Svíþjóð og hef tvisvar farið og unnið um hríð í Noregi og eignast þar vini. Norrænu svæfingalæknarnir gefa út blað sem kemur út á ensku. Það er með ráðum gert því norrænir læknar eru útverðir þekkingar í faginu í norðri og vilja gjarnan hafa áhrif á þróun þess og mynda þannig mótvægi við ameríska hefð annars vegar og miðevrópska og breska hefð hins vegar, en þessi tvö svæði hafa haft einna mest áhrif á mótun svæfingalækninga." Og nú hefur lítil, norræn þúfa velt þungu hlassi og afraksturinn má lesa í bók Jóns, sem vonandi ratar í hendur sem flestra. LÆKNAblaðið 2010/96 281

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.