Læknablaðið - 15.04.2010, Síða 51
UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
Sigurður Guðmundsson í anddyri Læknagarðs, sem einu sinni var kallaður Tanngarður, þar sem skrifstofa hans er. í baksýn er Landspítalalóðin og minnir
sumpart á litríkan tanngarð meðfullt afkaríus og baktus og samsafiti afgömlu og nýju.
Fimm ný svið
Miklar skipulagsbreytingar voru gerðar á stjóm-
skipulagi Háskóla Islands á góðæristíma um mitt
ár 2008 þegar búin voru til fimm stjómsýslu-
svið með samtals 25 deildum í þeim tilgangi að
einfalda stjómskipulag og stytta boðleiðir. Sviðin
fimm eru félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið,
hugvísindasvið, menntavísindasvið og verk- og
náttúruvísindasvið. Yfir hverju sviði eru forsetar
og sérstakir rekstrarstjórar, fjármálastjórar og
starfsmannastjórar. Áður störfuðu ellefu deildir
innan skólans sem heyrðu beint undir rektor og
miðlæga stjórnsýslu.
Undir heilbrigðisvísindasviðið, sem Sigurður
kom að 1. nóvember 2008, heyra nú sex
deildir: læknadeild, hjúkrunarfræðideild, lyfja-
fræðideild, tannlækningadeild, sálfræðideild
og matvæla- og næringarfræðideild. Nokkrar
námsbrautir heyra svo undir einstakar deildir.
Þannig heyrir sjúkraþjálfun, geislafræði og
lífeindafræði undir læknadeild. Ljósmóðurfræði
heyrir undir hjúkrunarfræðideild og tannsmíði
undir tannlæknadeild. Loks er lýðheilsufræði
tiltölulega ný þverfagleg grein, sem býður upp
á meistara- og doktorsnám í lýðheilsu og tengist
öllum sex deildunum á heilbrigðisvísindasviði.
Lýðheilsufræðinám nýtur mikilla vinsælda því
af um 100 nemum, sem nú stunda doktorsnám
á heilbrigðisvísindasviði, tengjast um 20%
lýðheilsufræðum. Því er ljóst að mikil rann-
sóknarvirkni er í lýðheilsufræðum í nýju fagi í
fámennu landi, en Miðstöð í lýðheilsufræðum var
stofnuð hér á landi fyrir þremur árum og er í fóstri
hjá læknadeild. Sem dæmi um frekari sóknarfæri
á vettvangi lýðheilsu má nefna umræðu um og
öflun þekkingar á alþjóðaheilsu þar sem Háskóli
íslands getur látið til sín taka, að sögn Sigurðar.
Tæp 20 ár eru liðin síðan Háskóli íslands hóf
að skipuleggja doktorsnám og undanfarin tíu
ár hefur verið stígandi fjölgun í doktorsnámi á
heilbrigðissviði, að sögn Sigurðar, sem útskrifaði
átta doktora í fyrra og það stefnir í útskrift
fleiri í ár. Eins og málum er nú háttað sækir
fólk sem tengist læknadeild, lyfjafræðideild
og tannlækningadeild um að fá að innritast í
doktorsnám til rannsóknanámsnefndar. Sett er
upp námsnefnd eða umsýslunefnd í kringum
hvert doktorsverkefni og doktorsnemanum
fylgt eftir í gegnum sinn feril allt til loka
námsins. Doktorsnám á vegum hinna deildanna
LÆKNAblaðið 2010/96 283