Læknablaðið - 15.04.2010, Síða 59
H A G
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
RÆÐING: A F LÆKNADÖGUM
Óskar
Reykdalsson
heimilislæknir,
framkvæmdastjóri lækninga
Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands
Oskar@hsu.is
Efniö byggist á
samstarfsverkefni viö
Ágúst Örn Sverrisson,
lækni, Rúnar Marinó
Ragnarsson,
sjúkraþjálfara og Sigríði
Erlu Óskarsdóttur
deildarlækni.
Þetta er birting fyrsta erindis af
málþingi Sigurðar Böðvarssonar
og fleiri á Læknadögum 2010:
Þátttaka lækna í hagræðingu
í heilbrigðisþjónustu. í næstu
fimm tölublöðum verða birt hin
erindin af málþinginu - eftir
Michael Clausen, Elísabetu
Benedikz, Þorbjörn Guðjónsson,
Helga Sigurðsson og Engilbert
Sigurðsson.
Er hægt að breyta rannsóknarvenjum lækna?
Læknar hafa í starfi sínu áhrif á heilsu sjúklinga og
hafa starfsvenjur lækna áhrif á allan kostnað sem
hlýst af rannsóknum og meðferð sjúklinganna.1 Á
undanfömum árum hefur orðið veraleg aukning í
fjölda rannsókna á mörgum rannsóknarstofum og
oft er rætt meðal lækna að rannsóknir séu gerðar
að lítt athuguðu máli með tilheyrandi kostnaði
skattborgara og óþægindum fyrir sjúklinga. Á
tímum fjárskorts og aðhalds í heilbrigðiskerfinu er
því eðlilegt að leita leiða til hagræðingar á þessu
sviði án þess þó að það bitni á gæðum þjónustu
eða ógni öryggi sjúklinga.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (Hsu) er
rekin rannsóknarstofa sem framkvæmir rann-
sóknir í blóðmeinafræði, klínfskri lífefnafræði og
sýklafræði. Heildarkostnaður Hsu vegna rann-
sókna árið 2008 var 115 milljónir og er þar talið
bæði aðkeyptar rannsóknir og rannsóknir unnar á
rannsóknarstofunni sjálfri.2
Samkvæmt rannsóknum3- 4 getur gagnvirk
upplýsingaveita (feedback) verið gagnleg til að
koma fram breytingum í starfsvenjum lækna
og hefur verið lýst3 sex grunnaðferðum til að fá
lækna til að breyta starfsvenjum sínum: fræðsla,
gagnvirk upplýsingaveita, virkjun læknanna
sjálfra til að koma fram breytingum, tilskipanir
stjórnenda, fjárhagslegur ávinningur og sektir.
Þó að allar þessar aðferðir geti verið gagnlegar
einar sér er mestan ávinning að hafa ef fleiri en ein
aðferð er notuð samhliða.5
Tvær forsendur þurfi að vera til staðar til
að gagnvirk upplýsingaveita sé árangursrík:
Læknirinn þarf að gera sér grein fyrir að
starfsvenjur hans mættu vera betri, en auk þess
þarf að vera tryggt að hann geti breytt hegðun
sinni og án mikilla tafa.5
Tilgáta rannsóknarinnar er að með því að
fræða lækna Hsu um tilgang, tilefni, kostnað
og eðli rannsókna sé hægt að spara fjármuni.
Einnig verður athugað hvort með því að
breyta pöntunareyðublaði fyrir blóðrannsóknir
í sögukerfinu sé hægt að spara almannafé.
Mikilvægt markmið rannsóknarinnar verður að
reyna að auka gæði heilbrigðisþjónustu með því
að fækka ónauðsynlegum rannsóknum.
Aðferð
Skipulagður var fræðsludagur í febrúar 2009 sem
allir læknar stofnunarinnar áttu að sækja og voru
fengnir sérfræðingar úr nokkrum sérgreinum
til að fjalla um hvaða blóðrannsóknir ætti að
panta við helstu sjúkdómunum innan þeirra
sérgreina. Einnig var fundurinn notaður til að
kynna læknum hversu mikið af rannsóknum þeir
pöntuðu á ákveðnu tímabili miðað við aðra lækna
stofnunarinnar.
Tilgangur stjórnenda með fræðslunni var að
auka skilvirkni þeirrar þjónustu sem veitt er innan
stofnunarinnar með því að fækka ónauðsynlegum
rannsóknum. Það töldu þeir sig geta gert með því
að fræða læknana um gildi rannsókna og að benda
þeim á aðstæður þar sem ákveðnar rannsóknir
gætu verið óþarfar.
Auk fræðslu var gagnvirkri upplýsingaveitu
beitt þannig að læknarnir fengu tölulegar
upplýsingar um þann fjölda blóðrannsókna sem
þeir höfðu beðið um fyrir sjúklinga sína á ákveðnu
tímabili. Læknarnir fengu óformleg tilmæli um
að skoða þær upplýsingar með gagnrýnum hætti
og bera saman við þær upplýsingar sem fram
komu hjá sérfræðingunum um ábendingar fyrir
blóðrannsóknum.
Ennfremur var ákveðið að breyta útliti
samhæfðs rafræns eyðublaðs sem fyllt er út þegar
blóðrannsóknir eru pantaðar á HSu. Því var breytt
þannig að rannsóknum sem hægt var að merkja við
með því að krossa í einn reit á blaðinu var fækkað
úr 96 í 20 talsins. Stuðst var við upplýsingar
sérfræðinganna sem héldu fyrirlestrana þegar
valið var hvaða 20 blóðrannsóknir yrðu áfram
á eyðublaðinu. Nýtt pöntunarblað var unnið
af læknaráði stofnunarinnar. Læknarnir geta
eftir sem áður pantað allar þær rannsóknir sem
þeir óska eftir, en til þess þurfa þeir að hafa
dálítið meira fyrir því með því að opna glugga
á eyðublaðinu og leita eftir þeirri rannsókn sem
að óskað er eftir sérstaklega. Hið endurskoðaða
eyðublað var tekið í notkun þremur mánuðum
eftir fræðslufundinn.
Óvissuþættir hafa ekki teljandi áhrif á niður-
stöðuna að okkar mati, en þeir eru:
• Læknarnir geta orðið fyrir áhrifum af aukinni þjóðfélags-
umræðu um kostnað og nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir í
heilbrigðiskerfinu vegna aðsteðjandi efnahagsvanda og
dregið þar með meðvitað eða ómeðvitað úr rannsóknum.
Einnig gæti dregið úr rannsóknum til að hlífa sjúklingum við
kostnaði.
• Með aukinni reynslu eru læknar líklegri til að rannsaka meira
markvisst. Erfitt er að meta áhrif aukinnar reynslu lækna á
þeim tíma sem rannsóknin fer fram á fjölda rannsókna.
• Læknarnir vita ekki að verið er að framkvæma rannsóknina
en þeir vita að fylgst er með hversu margar rannsóknir þeir
panta og getur það haft sín áhrif.
• Rannsóknarkerfi Hsu og Landspítala hefur verið sameinað
og gerir læknum Hsu kleift að sjá hvaða rannsóknir hafa
verið framkvæmdar á Landspítala og þannig er hugsanlega
komið í veg fyrir tvíverknað við gerð rannsókna.
LÆKNAblaðið 2010/96 291