Læknablaðið - 15.06.2010, Síða 48
U M R Æ Ð A
U N G U R V í
O G FRÉTTIR
SINDAMAÐUR
Rannsakar afleiðingar áfalla
Hávar
Sigurjónsson
Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur var
útnefnd Ungur vísindamaður ársins á árlegri
vísindamessu Landspítalans Vísindi á vordögum
nú í byrjun maí.
Berglind stundaði doktorsnám í klínískri sálfræði
við ríkisháskólann í Buffalo í New York og
starfar á geðsviði Landspítala. Doktorsverkefni
hennar snerist um tengsl varnarviðbragða og
áfallastreituröskunar en rannsóknir hennar hér
heima hafa beinst í svipaða átt; hún framkvæmdi
stóra rannsókn á afleiðingum jarðskjálftans á
Suðurlandi 29. maí 2008. Það er einmitt fyrir
rannsóknir sínar á áföllum og afleiðingum þeirra
sem henni hlotnaðist heiðurinn á dögunum.
„Við erum óneitanlega komin mun styttra á
rannsóknum á þessu efni hér heima á Islandi.
Frá því ég kom heim hefur talsverður tími farið
í að þýða og staðfæra mælitæki sem nauðsynleg
eru við rannsóknirnar. Það skiptir miklu að hafa
vandaðar þýðingar á spurningalistum í upphafi
en þetta er auðvitað vinna sem nýtist síðan áfram
við rannsóknir síðar/' segir Berglind.
Hún segir að með jarðskjálftanum í maí 2008
hafi skapast einstakt tækifæri til að fylgjast með
fólki og langtímaáhrifum skjálftans. „Eg var
kölluð til að hanna og vinna þessa rannsókn af
landlækni og samráðshópi um áfallahjálp. Mitt
svið er í rauninni afleiðingar áfalla og bataferlið;
hér eru fáar rannsóknir til enn sem komið er og
mörgum grunnspurningum er því ósvarað. Eru
afleiðingar áfalla þær sömu hér og annars staðar?
Er tíðnin svipuð eða skerum við okkur úr öðrum
þjóðum að einhverju leyti? Við erum að vinna
okkur fram til þess að standa jafnfætis öðrum í
þekkingu en jafnframt bæta við þekkingu á þessu
sviði sem nýtist erlendis."
Hún segir enn of snemmt að svara þessum
spurningum en fyrstu niðurstöður rannsóknar á
afleiðingum skjálftans 2008 bendi til þess að stærri
hluti þeirra sem upplifa vandamál eftir skjálftann
nái sér eins og gert var ráð fyrir miðað við
erlendar rarmsóknir. „Við þurfum að skoða betur
áhrif bankahrunsins haustið 2008 á þá sem upplifa
áfallastreitueinkenni en hugsanlegt er að það setji
nokkurt strik í reikninginn og raski hefðbundnu
bataferli."
Þekkingunni fleygir fram
Berglind segist mjög bjartsýn fyrir hönd sérgreinar
sinnar og segir mikinn skilning á mikilvægi
sérhæfðrar úrvinnslu í kjölfar áfalla og hamfara.
„Það er mikilvægt að muna að flestir ná sér af
Heimilislæknaþingið 2010
Stykkishólmi 8.-9. október
Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna verður að þessu sinni haldið á Hótel Stykkishólmi dagana 8.-9. október 2010.
Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í formi erinda og veggspjalda. Þeir sem vilja kynna slík
verkefni eru beðnir að senda ágrip til Jóhanns Ág. Sigurðssonar í rafrænu formi á netfangið: iohsig@hi.is. Ágrip skal skrifa á eitt A4 blað með sama
sniði og á fyrri þingum félagsins, en þar er miðað við Times New Ftoman letur, stærð 14, um 300 orð eða sem svarar 2000 slögum. Þar skal koma
fram tilgangur verkefnis og þar sem það á við, efniviður, aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Skiiafrestur ágripa er til 25. ágúst næstkomandi. Ágripin
verða birt í sérstöku riti þingsins.
Á þinginu verður jafnframt umfjöllun um gæðaþróunarmál bæði í formi fyrirlestra og í vinnuhópum.
Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu verður auglýst síðar.
Fh. undirbúningsnefndar
Anna K. Jóhannsdóttir formaður fræðslunefndar FÍH
436 LÆKNAblaðið 2010/96