Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 55
Stöndum saman
UMRÆÐA O G FRÉTTIR
STÖÐUAUGLÝSINGAR
Eftir að efnahagshrunið skall á
hafa störf stjórnar og starfsmanna
snúist um að verja lífeyrissjóðinn.
Við höfum þurft að vera vakandi
og verja eignir með öllum tiltækum
ráðum, verjast stjórnvöldum sem
eru meðvituð um eignir og ráð-
stöfunarfé lífeyrissjóðanna og verj-
ast samkeppnisaðilum sem vilja
nýta ástandið. Ég bið sjóðfélaga um
að standa með okkur.
Ég býð læknum sem vilja upp-
lýsingar eða ræða málin að hafa
samband. Ég vil líka skora á þá
og aðra sjóðfélaga að nota sjóðinn
áfram fyrir séreignarsparnaðinn
sinn en það hjálpar okkur að ná
markmiðum um lágmarkskostnað.
Við bjóðum fjölbreyttar ávöxt-
unarleiðir, lágan kostnað og góða
ávöxtun.
jí Heilbnigðisstofnun
'sl Suóaustunlands
Yfirlæknir
Laus er til umsóknar staða yfirlæknis við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands Hornafirði, um
er að ræða 100% starf. Æskilegt er að umsækjendur hafi viðurkenningu sem sérfræðingar
í heimilislækningum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Læknafélags íslands
og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Starfssvæði heilbrigðisstofnunarinnar er Sveitarfélagið
Hornafjörður og eru íbúar um 2200.
Hornafjörður er blómstrandi samfélag í ríki Vatnajökuls. Auk stórkostlegrar náttúru og útsýnis
sem á sér vart hliðstæðu er á Hornafirði að finna fjölbreytta þjónustu og afþreyingu, svo sem
framhaldsskóli, tónlistarskóli, sundlaug, söfn, sýningar, golfvöllur og margt fleira. Á Hornafirði eru
starfandi fjölmörg félagasamtök og ætti engum að leiðast það fjölskrúðuga mannlíf sem þar þrífst.
Umsóknum skal skila á viðeigandi eyðublöðum sem fást á skrifstofu landlæknis til Guðrúnar Júlíu
Jónsdóttur, framkvæmdastjóra, Víkurbraut 31, 780 Hornafjörður sími 470 8600/866 3051, aii@
hssa.is eða Hjalta Þórs Vignissonar, bæjarstjóra, Hafnarbraut 27, 780 Hornafjörður
sími: 470 8000, hialtivi@hornafiordur.is. sem gefa jafnframt nánari upplýsingar um
starfið.
Staðan er laus frá 1. apríl eða eftir samkomulagi, umsóknarfrestur er til 1. mars 2011.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Sérnámsstaða í heimilislækningum
laus til umsóknar Heilbrigðisstofnun
Suðurlands
Við Heilbrigðisstofnun Suðurlands er nú laus til umsóknar ein staða sérnámslæknis í heimilislækningum við heilsugæsluna á Selfossi.
Umsóknarfrestur er til 4. mars 2011 og er reiknað með að námsstaðan sé til þriggja ára.
Aðalstarfsstöð verður heilsugæslan á Selfossi og verður námið byggt á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum en einnig er gert er ráð
fyrir samstarfi við kennslustjóra sérnáms í heimilislækningum varðandi fræðilegt nám sem fer fram í reglulegu hópstarfi í Reykjavík. Til greina
kemur að taka hluta af náminu erlendis í samráði við kennslustjóra.
Staða læknis í Rangárþingi
Við Heilbrigðisstofnunina er einnig auglýst laus til umsóknar staða læknis í Rangárþingi til að sinna almennum lækningum og
heimilislækningum. í Rangárþingi búa um 3500 íbúar og er staðan ein af 3,5 stöðugildum lækna þar.
Við mat á umsóknum verður mikið lagt upp úr eiginleikum sem lúta að samstarfi og sveigjanleika, skipulögðum og sjálfstæðum vinnubrögðum
og hæfni í samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Islands og fjármálaráðherra.
Upplýsingar um stöðuna veita Arnar Þór Guðmundsson yfirlæknir og kennslustjóri heilsugæslunni Selfossi í síma 4805100 eða á netfangi
arnar@hsu.is og Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga í síma 868-1488 eða á netfangi: oskar@hsu.is
Umsóknum ásamt staðfestum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf sendist á viðeigandi eyðublöðum sem fást á skrifstofu landlæknis til
Arnars Þórs Guðmundssonar eða Óskars Reykdalssonar fyrir 10. febrúar 2011.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1. september 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi. Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um
20.000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu og þar eru átta heilsugæslustöðvar og eitt sjúkrahús á Selfossi með 55 sjúkrarúmum.
Stofnunin sinnir ennfremur heilbrigðisþjónustu á Litla Hrauni.
Alls eru um 220 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
LÆKNAblaðið 2011/97 119