Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 57
UMRÆÐA OG FRÉTTIR LYFJASPURNINGIN Hvernig á aö skammta D-vítamín við skorti hjá fullorðnum? Elín I. Jacobsen lyfjafræðingur, verkefnastjóri Miðstöðvar lyfjaupplýsinga Landspítala elinjac@landspitali.is Einar S. Björnsson meltingarlæknir og formaður lyfjanefndar Landspítala einarsb@landspitali. ís Höfundarnir svara spurn- ingum lesenda um lyfjamál og birta áhugaverð tilfelli. Nítján ára kona var með langvirtna briskirtilsbólgu af óljósum toga sem olli miklum verkjum og vandamálum við fæðuinntöku. Hún reyndist vera með D-vítamínskort og 25-hýdroxýkólekalsíferól (25-OHD) er 14,9 nmól/líter (normal gildi >25 nmól/líter). Miðstöð lyfjaupplýsinga á Landspítala barst eftirfarandi spurning: Hvernig er best að með- höndla þennan sjúkling með D-vítamíni? Greinarmunur er gerður á D-vítamínvöntun (insufficiency), sem lýsir sér í lágu gildi á 25-OHD, 25-50 nmól/líter, og D-vítamínskorti (deficiency), 25-OHD <25 nmól/líter. D-vítamínskortur er algengur víða á norður- hveli jarðar. Framleiðsla D-vítamíns í líkamanum verður fyrst og fremst af völdum sólarljóss og aðeins lítill hluti kemur úr fæðu, aðallega þó úr feitum fiski og lýsi. Niðurstöður úr nýlegri breskri rannsókn benda til að meira en helmingur fullorðinna sé með of lágt D-vítamín og að 16% hafi alvarlegan skort á vetrar- og vor- mánuðum.1 Faraldsfræðileg gögn sýna háa tíðni D-vítamínskorts hjá öldruðum og sérstaklega hjá öldruðum með beinþynningu.2 Aðrir sem eru í áhættuhópi eru offeitir og sjúklingar með nýrna- eða lifrarsjúkdóm, sjúklingar á flogaveikilyfjum, rífampisíni, sykursterum, kólestýramíni eða andretróveirulyfjum og sjúklingar með stutta göm (short bowel syndrome).’ Lyfin geta dregið úr að- gengi D-vítamíns2. Helstu einkenni D-vítamínskorts em beinkröm hjá börnum og vöðvaslappleiki (proximnl muscle weakness), beinþynning (osteoporosis) og bein- meyra (osteomalacid) hjá fullorðnum.2 Leiddar hafa verið líkur að því að lágt D-vítamín tengist jafnvel fleiri sjúkdómum, svo sem krabbameini, smitsjúkdómum og sjálfsofnæmissjúkdómum1'2 og hafa D-vítamínviðtakar fundist í mörgum vefjum.2 D-vítamínviðtakar eru meðal annars staðsettir í vöðvum og áhugavert er að sjúklingar með lágt D-vítamín og óskilgreindan vöðvaslappleika, vöðvaverki og beinverki eru stundum sjúkdóms- greindir með fjölvefjagigt (fibromyalgia) og síþreytu (chronic fatigue syndrome).2 D3-vítamín (kólekalsíferól) úr sólarljósi og fæðu hýdroxýlerast fyrst í lifur í 25-hýdroxýkólekalsíferól (25-OHD, calcidiol) og síðan í nýrum í 1,25-díhýdroxýkólekalsíferól (1,25-OHD, calcitriol) sem er hið virka form vítamínsins. 1,25-OHD eykur frásog bæði kalks og fosfórs í meltingarvegi og lækkar kalkkirtlahormón (parathyroid hormone, PTH) í sermi, bæði með því að draga úr virkni kalkkirtilsins og með því að auka magn kalsíums í sermi. Lækki D-vítamín í sermi raskast jafnvægi kalsíums og fosfórs. Verulega dregur úr frásogi kalsíums úr meltingarvegi og við það eykst framleiðsla á kalkkirtlahormóni (PTH) sem aftur leiðir til aukinnar endurupptöku kalsíums í nýrum og úrkölkunar beina.2 Við mat á D-vítamíni hjá sjúklingum er mælt 25-OHD en 1,25-OHD gefur ekki rétta mynd og eru gildi oft eðlileg eða hækkuð í D-vítamínskorti. Eðlileg mörk 25-OHD í blóði eru talin vera þau gildi sem gefa sem lægst PTH-gildi en rannsóknir hafa sýnt að lægsta gildi PTH næst þegar 25-OHD í sermi nær 75 nmól/líter (30 míkrógrömm/líter).2 Svar: Við D-vítamínskorti (deficiency) er ráðlagt að gefa Dekristol® (kólekalsíferól) hylki 40.000-60.000 einingar sem hleðsluskammt einu sinni í viku í 8-12 vikur og mæla síðan 25-OHD. Sjúklingar sem hafa sérstaka tilhneigingu til D-vítamínskorts gætu þurft að endurtaka þennan hleðsluskammt hálfsmánaðarlega til að viðhalda eðlilegu 25-OHD- gildi.2-3 Oftast dugar þó að gefa 1000 einingar af D3 vítamín töflum daglega sem viðhaldsskammt.3 Meðferðarheldni langtímameðferðar er oft ábótavant. Þá er möguleiki að gefa 300.000 ein- ingar af Dekristol í einum skammti einu sinni. Annar möguleiki er að gefa 300.000-600.000 einingar af 25-OHD í einum skammti í vöðva sem hleðsluskammt. Viðhaldsskammtur er 1000 eininga töflur einu sinni á dag.3 Sjúklingar með D-vítamínvöntxm (insufficiency) ættu að taka Dekristol® hylki 20.000 einingar hálfsmánaðarlega eða D3-vítamín töflur 1000- 2500 einingar daglega til að viðhalda eðlilegu D-vítamíni.3 Hér á landi fást D3-vítamín 1000 eininga töflur án lyfseðils í apótekum en jafnframt fæst hér á landi undanþágulyfið Dekristol® sem inniheldur 20.000 einingar kólekalsíferól í hverri töflu. Þá er 25-OHD til í stungulyfjaformi en það er ekki á markaði hér á landi. Heimildir 1. Pearce S, Cheetham T. Diagnosis and management of vitamin D deficiency. BMJ 2010; 340:142-7. 2. Holick M. High Prevalence of Vitamin D Inadequacy and Implications for Health. Mayo Clin Proc 2006; 81: 353-73 3. Smith K. What dose of vitamin D should be prescribed for the treatment of vitamin D deficiency?.www.nelm.nhs.uk/ en/NeLM-Area/Evidence/Medicines-Q—A/What-dose- of-vitamin-D-should-be-prescribed-for-the-treatment-of- vitamin-D-deficiency/?query=treatment+of+vitamin+D«&ra nk=100 20. janúar 2011 LÆKNAblaðið 2011/97 121
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.