Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 11
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Líkamshreyfing 9 og 15 ára íslenskra barna í ljósi lýðheilsumarkmiða Kristján Þór Magnússon1 faraldsfræðingur Sigurbjörn Árni Arngrímsson1 þjálfunarlífeðlisfræðingur Þórarinn Sveinsson2 lífeðlisfræðingur Erlingur Jóhannsson1 lífeðlisfræðingur Lykilorð: hreyfing, börn, holdafar, hröðunarmælar. ’Rannsóknarstofu í iþrótta- og heilsufræði, menntavísindasviði, 2rannsóknarstofu í hreyfivísindum, lífeðlisfræðistofnun HÍ. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Kristján Þór Magnússon menntavísindasviði Háskóla íslands, Skipholti 50c - 4. hæð, 105 Reykjavík ktm@hi.is Ágrip Tilgangur: Megintilgangur þessarar rannsóknar var að rannsaka í hvaða mæli 9 og 15 ára böm og unglingar á íslandi uppfylltu nýlegar hreyfi- ráðleggingar Lýðheilsustöðvar. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var gerð á tímabilinu september 2003 til janúar 2004 í 18 skólum á höfuðborgarsvæðinu og í þéttbýliskjörnum og dreifbýli á Norðausturlandi sem valdir vom af handahófi. Öllum 9 ára (N=662) og 15 ára (N=661) nemendum skólanna var boðin þátttaka. Helmingur hvors árgangs var valinn, einnig af handahófi, í hreyfihluta rannsóknarinnar og skiluðu 176 9 ára og 162 15 ára nothæfum gögnum. Þátttakendur voru hæðar- og þyngdarmældir og þykkt húðfellinga mæld á fjórum stöðum. Akefð og tímalengd hreyfingar var mæld með hröðunarmælum (ActiGraph™). Aðalútkomubreyta rannsóknarinnar, fjöldi mínúta yfir 3400 slög/mín á dag, miðaðist við neðri mörk hreyfingar af meðalerfiðri ákefð. Niðurstöður: Samkvæmt hröðunarmælum upp- fylltu 5% úrtaks 9 ára barna hreyfiráðleggingar varðandi meðalerfiða og erfiða ákefð dag hvem, en tæp 9% 15 ára unglinga. Aukin hreyfing af þessari ákefð var frekar tengd strákum en stelpum, því að vera 15 ára frekar en 9 ára, að vera með minni þykkt húðfellinga en meiri, auk þess að búa á höfuðborgarsvæðinu frekar en í bæ eða strjálbýli á Norðausturlandi. Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að íhlutunar sé þörf til þess að auka meðalerfiða og erfiða hreyfingu bama á skólaaldri. Mikilvægt er að rannsaka hvaða leiðir séu færar í þeim efnum, meðal annars í samvinnu við heimili, skóla, íþróttahreyfinguna og sveitarfélög. Inngangur Jákvæð áhrif hreyfingar em margvísleg, hvort sem litið er til áhrifa á líkamlega hreysti eða andlega líðan.1 Hreyfingarleysi er aftur á móti tengt ofþyngd og offitu, en þótt þau vandamál stafi af flóknu samspili margra þátta vitum við að hreyfing er einn af stóru forvarnarþáttunum sem komið geta í veg fyrir slíkt ástand.2 Það eitt að almenningur tileinki sér að ganga reglulega á rösklegum hraða getur haft umtalsverð lýðheilsuleg áhrif og fækkað ýmsum langvarandi heilsufarsvandamálum.3 Af íslenskum rannsóknum má draga þær ályktanir að dagleg hreyfing bama hafi jafnvel aldrei verið jafn mikilvæg og nú sé það sett í samhengi við þá fjölgun sem virðist hafa orðið í hópi þeirra sem eru yfir kjörþyngd.4'5 Niðurstöður rannsóknar á þróun ofþyngdar og offitu meðal sömu þátttakenda og þessi grein fjallar um (sjá grein frá 2006),4 gáfu eindregið til kynna að meirihluti þeirra barna sem verða ung að árum of þung eða of feit, viðhalda því líkamsástandi fram á unglingsár. í þessu samhengi ber að kanna stöðu hreyfingar meðal íslenskra bama. Er hún almennt meiri eða minni en ráðleggingar kveða á um eða er nauðsynlegt að auka hana meðal bama á skólaaldri? Mælingar á hreyfingu fólks eru af ýmsum toga og miklum upplýsingum hefur verið safnað með spurningalistum, þótt erfitt hafi reynst að sýna fram á nægjanlegan áreiðanleika og réttmæti slíkra lista.6 Síðasta áratug hafa hlutlægari mælingar á hreyfingu mtt sér til rúms og þá einkum notkun hröðunarmæla (e. accelerometers). Fjöldi greina7,8 hefur birst síðasta áratug sem tíunda niðurstöður slíkra mælinga á stöðu og þróun hreyfingar og hreyfingarleysis meðal bama og fullorðinna en ekki hafa birst niðurstöður viðlíka mælinga á íslensku úrtaki fyrr en nú. ActiGraph™ hröðunarmælarnir hafa notið hvað mestra vinsælda, enda hefur verið sýnt fram á áreiðanleika þeirra og réttmæti.9' 10 Á hinn bóginn hafa vísindamenn ekki verið samstíga við útreikninga á ákefð hreyfingar, það er meðalerfiðri og erfiðri hreyfingu (e. moderate- to-vigorous physical activity), út frá mælieiningu hröðunarmælanna.11 Þetta hefur valdið því að mismunandi viðmið hafa verið notuð og þar af leiðandi hafa mjög misvísandi niðurstöður litið dagsins ljós um hlutfall barna sem hreyfir sig í samræmi við viðteknar ráðleggingar um hreyfingu.12'13 LÆKNAblaöið 2011/97 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.