Læknablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 50
■ UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
EGILL 0 G FREUD
Dulvitundin mótar listaverkið
Hávar
Sigurjónsson
Kenningar austurríska geðlæknisins Sigmunds
Freud hafa nýst Torfa H. Tuliniusi, prófessor
í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla ís-
lands við rannsóknir hans og túlkun á íslend-
ingasögum. Torfi flutti fyrirlestur í lok febrúar
á vegum Félags áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar þar sem hann tengdi kenningar
Freuds við ýmislegt í frásagnargerð íslendinga-
sagnanna og ræddi dauðaþrá og feðgatengsl
út frá dulvituðum samskiptum höfundar og
lesanda.
„Boðskipti milli höfundar og lesanda eru mjög
sérstök þegar um frásögn er að ræða. Að nokkru
leyti verða þau dýpri og nánari en í öðrum
listgreinum þar sem bæði höfundur og lesandi lifa
sig inn í persónur sögunnar. Persónan verður eins
konar fulltrúi tiltekinna þátta í sálarlífi beggja. Því
geta höfundur og lesandi verið í nánum tjáskiptum
þótt hvorugur viti um hvað þessi tjáskipti snúast.
Samskiptin eru dulvituð. Sem lesandi nálgast ég
textann með mína dulvitund sem hefur mótast
af því hver ég er og höfundurinn hefur sína
dulvitund. Það er því ýmislegt í frásögninni sem
höfundurinn setur þar inn án þess að vita af
hinni raunverulegu merkingu. Þetta er hliðstætt
kenningum Freuds um draumagreiningar, þar
sem draumurinn ljóstrar upp á táknrænan hátt
hvað dulvitundin er að fást við en felur það um
leið. Tjáskipti bókmennta eru hliðstæð þessu. Mér
hefur fundist áhugavert að skoða bókmenntir með
hliðsjón af sálgreiningunni, velta fyrir mér hvers
vegna höfundur leiðir lesandann inn á óvæntar
brautir. Oft finn ég líklegar skýringar með því að
beita kenningum Freuds."
Torfi bendir á dæmi úr Egilssögu sem virðist
fjalla um stirt feðgasamband, undir yfirborði
þar sem átök við konung eru áberandi. „Egill
lendir endurtekið upp á kant við konunga en
undir niðri búa djúpstæðari átök við föðurinn.
Ég greini textann á sama hátt og Freud greindi
drauma og gríp til hugtakana hliðrun og
þétting sem Freud notaði við draumatúlkanir
og það virkar mjög vel. Eins og draumar, sýna
sögur um leið og þær fela það sem bælt er í
dulvitundinni. Dæmi um þetta er hvemig unnið
er með augnaráðið í sögunni: fundum Egils við
konunga er lýst þannig að konungur hvessir
augun á Egil. Þegar Skalla-Grímur deyr situr
hann í öndvegi sínu með opin augun og Egill
forðast augnaráðið. Ýmislegt af sama tagi hjálpar
mér að smíða kenningu um að Egilssaga fjalli
öðmm þræði um stirt feðgasamband. Síðan er
hægt að skoða sögima áfram útfrá kenningum
Freuds um Ödipusarduldina og hvemig hið
ósegjanlega dreifir sér um meginsöguna í alls
kyns hliðarfléttum. Það er áhugavert að skoða
samband Egils við Þórólf bróður sinn en í því
endurtekur hið stirða feðgasamband sig að vissu
leyti. Tilfinningar Egils til Þórólfs eru blendnar, ást
og hatur í senn, en það er bannað að hata bróður
sinn og því hliðrast þessar tilfinningar Egils yfir á
persónu mágs hans, Berg-Önundar. Þegar grannt
er skoðað er Þórólfi og Berg-Önundi lýst með
sömu orðum, auk þess sem dauða þeirra ber að
með hliðstæðum hætti. Eftir að Þórólfur deyr
giftist Egill ekkju Þórólfs. Sannar tilfinningar Egils
koma í ljós að lokum, en þegar sagan er lesin aftur
kemur í ljós að höfundur gaf ýmsar vísbendingar
um að þær væru þegar fyrir hendi mjög snemma."
Hamlet í Helgafellssveit
Sérgrein Torfa em miðaldabókmenntir og hann
bendir á að hugmyndaheimur miðalda hafi verið
allt annar en hugmyndaheimur okkar £ dag.
„Þetta fólk hugsaði allt öðmvísi en við og túlkar
veröldina útfrá trúnni í stað þeirrar vísindahyggju
sem við beitum. Það er því nauðsynlegt að
kynna sér vel hugsunarhátt þess og þar kemur
vissulega margt fleira en dulvitundin til álita
og stýrir því hvemig höfundurinn formgerir
heimildir sínar í ritaðri frásögn. í grein sem
nefnist Hamlet í Helgafellssveit bendi ég á að
Snorri goði í Eyrbyggju er að sumu leyti í svipaðri
stöðu og persónan Hamlet í samnefndu leikriti
Shakespeares. Hann er sonur látins manns en
til að ná föðurleifð sinni þarf hann að kljást við
föðurbróður sinn sem auk þess er giftur móður
hans. Freud hugleiddi að nefna Ödipusarduldina
eftir Hamlet, en féll frá því þar sem hann taldi að
leikrit Sófóklesar um Ödipus sýndi betur hvað
væri að verki í dulvitundinni. Aftur á móti væri
Hamlet hrjáður af taugaveiklun sem skýrðist af
þeim duldu kröftum sem birtust á yfirborðinu
í fomgríska leiknum. Þeir væru dulvitaðar í
Hamlet. Sagan af Snorra goða virðist í fyrstu vera
Hamlet án taugaveiklunarinnar en þegar betur
er að gáð þá er Ödipusarduldin eigi að síður til
staðar. Endurteknar frásagnir af draugagangi
254 LÆKNAblaöiö 2011/97