Læknablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 51
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
EGILL 0 G FREUD
og afturgöngum má túlka sem hliðstæðu við
taugaveiklun Hamlets. Afturgengnir feður
skipta miklu máli í framgangi sögunnar og
þannig hjálpar sálgreiningin manni við að sjá
hið dulda samhengi þó málvísindakenningar,
bókmenntakenningar og menningarlega þekk-
ingu á ritunartíma sögunnar þurfi líka til við
heildstæða túlkun."
Kenningar Freuds um dauðaþrána hafa orðið
Torfa tilefni til túlkunar á Njálu en hann segir að
sér hafi orðið umhugsunarefni hvers vegna svo
margar persónur Njálu kjósa að deyja. „Margar
af helstu persónum sögunnar ganga viljugar
á vit dauða síns, og einnig er sterk tilfinning
fyrir ótta við endurtekningar. Ég leyfi mér því
að túlka söguna þannig að höfundurinn hafi
búið yfir ákveðnum skilningi á því sem Freud
kallaði dauðaþrá og það hafi mótað frásögn
hans. Dauðaþráin er sundrungarafl sem leysist
úr læðingi þegar ástríðumar ná tökum á fólki.
Hún er einnig nátengd endurtekningarþörf og
áráttuhegðun. Engin fornsaga nær jafn vel að
lýsa því hvernig ástríðurnar geta leitt annars
heiðvirt og friðelskandi fólk út í að fremja
verstu misgjörðir. Flosi á Svínafelli er ágætt
Sérfræðingur í svæfingum og gjörgæslu-
lækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum við svæfinga- og gjörgæsludeildir Sjúkrahússins á Akureyri.
Staðan veitist frá 1. maí 2011 eða eftir samkomulagi.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Starfinu fylgir þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar-
og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknarvinnu og sjúkraflugsvöktum.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæsludeilda FSA.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðuneytisins.
Nánari upplýsingar gefa Girish Hirlekar, forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæsludeildar í síma 4630100, airish@fsa.is og Þorvaldur Ingvarsson,
framkvæmdastjóri lækninga, sími 4630100, thi@fsa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2011.
Umsóknir um ofangreint starf skuiu sendar starfsmannaþjónustu FSA, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri, eða starf@fsa.is á þar til gerðum eyðublöðum,
sem fást hjá landlæknisembættinu. Umsóknum skulu fylgja ítarlega upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir
og ritstörf, auk kennslustarfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf við FSA er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA er reyklaus vinnustaður.
„Þetta er hliðstætt kenningum Freuds (1856-1939) um draumagreiningar, þar sem draumur-
inn Ijóstrar á táknrænan hátt upp hvað dulvitundin er aðfást við en felur það um leið," segir
Torfi Tulinius.
dæmi um það. Þessi skilningur Njáluhöfundar á
áráttukenndum ofsa ástríðnanna rímar ágætlega
við kenningar fræðimanna um að sagan sé
rituð eftir að átökum Sturlungaaldar er lokið.
Höfundurinn hefur lifað þessa tíma, máske orðið
sjálfur fyrir áföllum. Eins og hinir miklu listamenn
sem Freud dáðist svo að, formgerir hann dulvitaða
reynslu sína í stórkostlegu listaverki."
LÆKNAblaðið 2011/97 255