Læknablaðið - 15.05.2011, Qupperneq 3
Margfaldur launamunur
Læknafélag Islands og Læknafélag Reykjavíkur stóðu fyrir kjaramálaráðstefnu föstudaginn 7. aprfl. Aðal
framsögumaður var Gylfi Zoéga hagfræðingur og rakti hann aðdraganda efnahagshrunsins og helstu
afleiðingar þess. Hann taldi svigrúm stjórnvalda til launahækkana almennt mjög lítið og kvaðst ekki sjá
neina möguleika á hækkunum til lækna sérstaklega nema til kæmi aukin kostnaðarþátttaka sjúklinga.
Sveinn Kjartansson og Stefán Matthíasson höfðu framsögu fyrir hönd lækna og kom fram í máli þeirra
að framundan væri erfið barátta ef sækja ætti launahækkanir til hins opinbera. Sagði Sveinn að laun
sérfræðilækna á íslandi væru svo langt á eftir launum í nágrannalöndunum og að 100-300% hækkun þyrfti
að koma til ef íslenskir sérfræðingar starfandi erlendis ættu að láta sér detta í hug að flytjast heim. Hann
sagðist ekki draga dul á þá skoðun sína að áherslu þyrfti að leggja á hækkun lægstu launa sérfræðilækna
en munur á launum þeirra og almennra lækna væri of lítill að sínu mati.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
(slenskt samfélag hefur sannarlega siglt í gegnum ólgusjó
á undanförnum árum. Þær hræringar má greina í innviðum
flestra stofnana og víða í einkalífi fólks. Ef litið er í kringum
sig gegnir ef til vill öðru máli, umhverfi okkar hefur ekki
tekið svo miklum breytingum, eða hvað? Ingvari Högna
Ragnarssyni (f. 1981), sem yfirleitt
hefur Ijósmyndavél sér til halds og
trausts við listsköpun sína, hefur
verið hugleikið hið sjónræna á þeim
róstusömu tímum sem á undan eru
gengnir. Hann leitar uppi ummerki
sem endurspegla ýmist hvers konar
framvindu eða algjöra kyrrstöðu
og kallar þannig fram spurningar
um hvernig það sem er sýnilegt á
yfirborðinu endurspeglar innviðina
sem er erfiðara að skrásetja. Hverjar
eru hinar raunverulegu breytingar,
ef einhverjar eru, og hversu
djúpt rista þær? Eru þær ef til vill
einungis á yfirborðinu, einhvers
konar skemmri skirn? Margir muna
eftir húsinu við Hverfisgötu sem
Ingvar Högni hefur fylgst með í
nokkurn tíma og sjá má á forsíðu
Læknablaðsins. Það er eitt fjölmargra yfirgefinna húsa
í miðborg Reykjavíkur sem hefur drabbast niður smám
saman vegna markvissrar vanrækslu, ef svo má segja.
Það hefur fengið andlitslyftingu við og við, með misjöfnum
árangri þó, enda rikir um það sama óvissan eftir sem áður.
Eins og kunnugt er hafa einstaklingar tekið sig saman og
virkjað tóm hús í Reykjavik, bæði til að finna húsaskjól
en ekki síst í þeim tilgangi að
vekja máls á spurningum er varða
samfélagsgerðina og umhverfið. Við
aðgerðir þeirra kvikna vangaveltur
um ólíkt skynbragð einstaklinga,
yfirvalda og einkageirans á það
hvernig við köllum fram breytingar
og í hvers þágu. Örlög þessara
yfirgefnu húsa eru með slíkum
ólíkindum og fjöldi þeirra þvílíkur að
þau eru óhjákvæmilegur minnisvarði
þeirra tíma sem við lifum. Það er
spurning hversu lengi við höfum
þann minnisvarða fyrir augum í
raun og veru en nú hefur hann
allavega verið skrásettur á mynd.
Ljósmyndaseríuna sem sýnir eitt
þessara húsa og minnir á þær
hræringar sem eru í gangi allt í
kring um okkur kallar Ingvar Högni
einfaldlega Hverfisgata (2006-11).
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Gylfi Óskarsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Soffía Dröfn Halldórsdóttir
soffia@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt tíl að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2011/97 283