Læknablaðið - 15.05.2011, Side 11
RANNSÓKN
Meðferð sykursýki af tegund 1 með
insúlíndælu hjá fullorðnum á Islandi
Katrín Ólöf Böövarsdóttir læknir1, Thor Aspelund tölfræðingur2, Arna Guðmundsdóttir læknir1
ÁGRIP
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna öryggi og árangur meðferðar með insúlíndælu á sykursýki af tegund 1 á fslandi hjá einstaklingum 18
ára og eldri.
Efniviður og aðferðir: Skoðuð voru sjúkragögn 40 einstaklinga á aldrinum 19-57 ára sem fengið hafa insúlíndælu á íslandi og verið með hana í sex
mánuði eða lengur á tímabilinu 2004 til 2007. Athugað var hvaða áhrif meðferðin hafði á fylgikvilla meðferðar, HbA1c, þyngdarstuðul og magn insúlíns
notað á dag samanborið við insúlínpennameðferð.
Niðurstöður: HbA1c lækkaði að meðaltali hjá bæði körlum og konum en ekki var um marktæka lækkun að ræða. Meðaltími dælumeðferðar var 23
mánuðir (staðalfrávik 12 mánuðir). Meðalupphafsgildi HbA1c hjá körlunum var 7,23 (95% vikmörk 6,29-8,18) og 6,93 (95% vikmörk 6,57-7,28) hjá
konunum. Ekki varð marktæk breyting á þyngdarstuðli. Meðalþyngdarstuðull í upphafi var 25,5 (95% vikmörk 23,6-27,3) hjá körlunum og 25,9 (95%
vikmörk 23,8-27,9) hjá konunum. Dagleg notkun insúlins minnkaði marktækt hjá bæði körlum og konum. Minnkunin var að meðaltali 11,3 einingar hjá
körlum (P=0,04) og 12,8 einingar hjá konum (P=0,0009). Á þessu fjögurra ára tímabili komu upp í rannsóknarhópnum sex tilvik af ketónblóðsýringu,
fjögur tilfelli húðsýkingar og tvö sykurföll sem kröfðust læknisaðstoðar.
Ályktanir: Árangur meðferðar með insúlíndælum hér á landi er góður. Þessar niðurstöður staðfesta að meðferðin er örugg og stenst samanburð við
önnur meðferðarform. Þrátt fyrir að ekki hafi orðið marktæk lækkun á HbA1c var sýnt fram á að þeir sem höfðu hæst HbA1c í upphafi náðu bestum
árangri með meðferðinni og insúlínþörfin var minni.
’Landspítala,
2Háskóla Islands,
Miðstöð í lýðheilsu-
vísindum
Fyrirspurnir:
Arna Guðmundsdóttir
arnagu@landspitali.is
Barst: 31. maí 2010, -
samþykkt til birtingar:
16. mars 2011
Höfundar tiitaka hvorki
styrki né hagsmunatengsl.
Inngangur
Meðferð sykursýki með insúlíndælum hefur tíðkast í
heiminum undanfarna þrjá áratugi og hófst á íslandi
árið 2004. Upphaflega voru dælur hannaðar í rann-
sóknarskyni til að meta sambandið milli sykurstjórnunar
og fylgikvilla sykursýkinnar en fljótlega kom í ljós að
þær nýttust vel sem meðferðartæki við sykursýki af
tegund l.1 Snemma á níunda áratugnum var farið að
notast við insúlíndælur sem meðferð við sykursýki af
tegund 1 í nokkrum löndum.2
Rannsóknir hafa sýnt að þessi meðferð skilar góðum
árangri fyrir stjórnun blóðsykurs, fækkar sykurföllum
og bætir auk þess lífsgæði.3"6 Má í því samhengi nefna
að heilbrigðisstarfsfólk með sykursýki velur frekar
meðhöndlun með dælu en hefðbundna meðferð með
insúlínpennum eða sprautum.7
Sykursýki af tegund 1 er sjúkdómur sem getur haft
alvarlega fylgikvilla í för með sér ef blóðsykri er ekki
vel stjórnað. Rannsóknir hafa sýnt að öflug meðferð
með þremur eða fleiri insúlínsprautum á dag eða með
insúlíndælu ásamt reglulegum blóðsykurmælingum, er
betri meðferð til að hægja á eða fyrirbyggja fylgikvilla
en það sem áður var kallað hefðbundin meðferð og
einkenndist af einni til tveimur sprautum af insúlíni
á dag.8 Samkvæmt þekktri bandarískri rannsókn,
svokallaðri Diabetes Control and Complications Trial
(DCCT) rannsókn,8 er besta mögulega meðferðin í
dag fjölsprautumeðferð eða insúlíndælumeðferð og
má í raun segja að þessar tvær aðferðir séu nú orðin
hefðbundin meðferð hér á landi.
Dælan (mynd 1) gefur ákveðinn grunnskammt
insúlíns fyrir hverja klukkustund og er þannig hægt að
stilla inn grunnskammt sem hentar hverjum og einum
Mynd 1. Insúlíndæla í notkun.17 Meðferð með insúlíndælu felst í sídreypi
fljótverkandi insúlíns undir húð. Dælan vegur um það bil 100 g. í henni
er forðaht/lki með insúlíni sem dugar að meðaltali í þrjá daga en þá þarf
aðfylla á og skipta um hylkið og þaðgerir sjúklingurinn sjálfur. Hylkið
er tengt við granna plastslöngu og á enda hennar er fíngert plaströr sem
kontið er fyrir undir húð með nál líkt og venflow nál, yfirleitt á kviði eða
síðu. Mynd: Þórólfur Heiðar Þorsleinsson.
fyrir hvert tímabil sólarhringsins. A þennan hátt er
auðveldara að mæta eðlilegum sveiflum í blóðsykri
yfir sólarhringinn. Hægt er að draga tímabundið úr
innrennslinu (temporary basal rate), sem kemur sér vel
þegar fyrirhuguð er aukin líkamlega áreynsla eins og
gönguferð eða líkamsrækt, eða aftengja dæluna alveg í
eina til tvær klukkustundir. Það dregur verulega úr líkum
á sykurfalli. Þessi möguleiki til að stjórna grunnflæði
insúlíns er eitt af því sem talið hefur verið kostur
dælunnar umfram fjölsprautumeðferð. Máltíðaskammta
má gefa á þrjá vegu (sjá myndir 2, 3 og 4). Rannsóknir
hafa sýnt að með því að gefa máltíðaskammta með
tvískiptum skammti og langtímaskammti er hægt að
lækka blóðsykur eftir máltíð umtalsvert.9
Meðferð með insúlíndælum hefur breiðst hratt út
á undanförnum árum í nágrannalöndum okkar sem
LÆKNAblaðið 2011/97 291