Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 23

Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 23
RANNSÓKN s Arangur fleyg- og geiraskurða við lungnakrabbameini á Islandi Ásgeir Alexandersson læknanemi1, Steinn Jónsson læknir1,2, Helgi J. ísaksson meinafræðingur3, Tómas Guðbjartsson læknir1,4 ÁGRIP Inngangur: Hefðbundin aðgerð við lungnakrabbameini öðru en smáfrumukrabbameini er blaðnám. 1 völdum tilvikum, einkum þegar lungnastarfsemi er mikið skert, er gripið til fleyg- eða geiraskurðar. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna árangur þessara aðgerða hér á landi. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn rannsókn á sjúklingum sem gengust undir fleyg- eða geiraskurð vegna lungnakrabbameins af öðrum toga en smáfrumukrabbameini á íslandi 1994-2008. Kannaðar voru ábendingar aðgerðar, stigun eftir aðgerð, fylgikvillar og heildarlífshorfur. Öll vefjasýni voru endurskoðuð. Niðurstöður: Alls gengust 44 sjúklingar (52,3% konur) undir samtals 47 fleyg- eða geiraskurði. Meðalaldur var 69,1 ár og greindust 38,3% tilfella fyrir tilviljun. Saga um kransæðasjúkdóm (55,3%) og langvinn lungnateppa (40,4%) voru algengustu áhættuþættirnir og meðal ASA-skor var 2,6. Aðgerðirnar tóku að meðaltali 83 mínútur (bil 30-131) og miðgildi legutíma var 9 dagar (bil 4-24). Helstu fylgikvillar voru lungnabólga (14,9%) og langvarandi loftleki (12,8%). Tveir sjúklingar fengu alvarlegan fylgikvilla en enginn lést innan 30 daga frá aðgerð. Meðalstærð æxlanna var 2,3 cm (bil 0,8-5,0) og var kirtilmyndandi krabbamein (66,7%) algengasta vefjagerðin. Stigun eftir aðgerð sýndi að 78,7% tilfella voru á stigi IA/IB, 17,0% á stigi IIA/IIB og tveir á stigi IIIA. Eins árs og 5 ára lífshorfur voru 85,1 % og 40,9%. Ályktun: Lífshorfur eftir fleyg- og geiraskurði á íslandi eru góðar og tíðni fylgikvilla lág. Þessar niðurstöður eru svipaðar og sést hafa eftir blaðnám hér á landi þótt hátt hlutfall þessara sjúklinga hafi þekkta hjarta- og æðasjúkdóma og skerta lungnastarfsemi. Inngangur 'Læknadeild H(, 2lungnadeild, 3rannsóknarstofu í meinafræði, 4hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala. Fyrirspurnir: Tómas Guðbjartsson tomasgud@landspitali. is Barst: 31. desember 2010, - samþykkt til birtingar: 9. apríl 2011 Höfundar tiltaka engin hagsmunatengsl. Lungnakrabbamein er næstalgengasta krabbameinið á Islandi og það krabbamein sem dregur flesta til dauða.1 Skurðaðgerð er helsta læknandi meðferðin hjá sjúklingum með lungnakrabbamein önnur en smáfrumukrabbamein (ÖES).2-3 Hlutfall sjúklinga sem gengst undir aðgerð er aðeins 25-30%4 og felst hefðbundin meðferð í blaðnámi þar sem lungnablað er fjarlægt í heild sinni.15 í tilvikum þar sem sjúklingar eru ekki taldir þola blaðnám vegna skertrar lungnastarfsemi eða artnarra undirliggjandi sjúkdóma er stundum hægt að framkvæma fleyg- eða geiraskurð.2 í fleygskurði er heftibyssa notuð til að fjarlægja fleyg úr lungnavefnum. Svipuð tækni er notuð við geiraskurð en þá er lungnageiri fjarlægður í heild sinni.6 Fleyg- og geiraskurðir taka styttri tíma, eru tæknilega einfaldari og meira er varðveitt af lungnavef en við blaðnám.5-7 Ekki eru til staðlaðar leiðbeiningar um hvenær skuli framkvæma fleyg- og geiraskurði. Þessar aðgerðir eru þó taldir síðri kostir en blaðnám hvað lækningu varðar2 þar sem tíðni endurtekins krabbameins er allt að þrefalt hærri eftir fyrrnefndu aðgerðirnar.5 Skýringin er talin vera sú að eitlar miðsvæðis í lungnablaðinu (Nl-eitlar) eru oftar fjarlægðir við blaðnám en fleyg- eða geiraskurð, en þessir eitlar geta í allt að 15% tilfella innihaldið meinvörp.2'6 í nýlegum rannsóknum hefur þó verið sýnt fram á að við meðferð smárra T1 æxla (<2 cm) eru lífshorfur sambærilegar eftir geiraskurði og blaðnám.6-7'9 Fleyg- og geiraskurðir geta einnig átt við þegar lítil æxli hafa svokallað hélu-útlit (ground glass opacity) á tölvusneiðmynd (TS), en slík æxli vaxa sjaldan ífarandi.10 Á síðustu tveimur árum hafa birst í Læknablaðinu tvær greinar um árangur blaðnáms hér á landi11'12 og ein um árangur lungnabrottnáms við lungnakrabbameini ÖES.13 Árangur fleyg- og geiraskurða hefur hins vegar ekki verið rannsakaður sérstaklega og var markmið þessarar rannsóknar að kanna árangur þessara aðgerða hér á landi. Sérstök áhersla var lögð á að kanna ábendingar aðgerða, fylgikvilla og lífshorfur og að bera niðurstöður saman við hinar íslensku rannsóknimar. Efniviður og aðferðir Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra sjúklinga á Islandi sem gengust undir fleyg- eða geiraskurð við lungnakrabbameini ÖES frá 1. janúar 1994 til 31. desember 2008. Rannsóknin náði eingöngu til þeirra sjúklinga þar sem aðgerðin var gerð vegna frumæxlis í læknandi tilgangi. Sýnatökur og aðgerðir framkvæmdar í líknandi skyni voru því ekki hafðar með. Alls gengust 44 sjúklingar (52,3% konur) undir samtals 47 aðgerðir á tímabilinu; 42 fleygskurði (89,4%) og fimm geiraskurði (10,6%). Þrír sjúklingar gengust undir tvo fleygskurði, og var í öllum tilvikum um aðskilin frumæxli að ræða. Annar sjúklingur greindist með tvö frumæxli í mið- og efra blaði hægra lunga og voru bæði æxlin fjarlægð í sömu aðgerð. LÆKNAblaðið 2011/97 303
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.