Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 41
UMFJÖLLUN O G GREINAR
rr—> f* TVIáa.!
i > “T;
Þeir leggja sig í hættu þegar þeir sinna
sumum hópum sjúklinga og þeir geta ekki
skorast undan að sinna þeim.Taka verði
tillit til þessara sérstöku kringumstæðna
þegar slysahugtakið er túlkað í þeirra
tilviki. Atvik þegar heilbrigðisstarfsmaður
smitast geta ekki alltaf verið jafn skýr og
þegar annars konar slys verða."
Dögg benti ennfremur á að almanna-
tryggingalöggjöfin leggi þá skyldu á
herðar ráðherra að setja reglugerð um
hvaða atvinnusjúkdómar skuli teljast
bótaskyldir. „Þessi reglugerð hefur ekki
verið sett/' sagði Dögg og kvað óeðlilegt
að tjónþoli beri hallann af því að stjómvöld
hafa ekki sinnt skýrum lagafyrirmælum
um setningu reglugerða. Jafnframt liggi
fyrir að Vinnueftirlitið hafi birt lista yfir
atvinnusjúkdóma sem það óskar eftir
að séu tilkynntir. Listinn er byggður á
Evrópulista yfir atvinnusjúkdóma. Meðal
atvinnusjúkdóma sem þar eru tilgreindir
er lifrarbólga C. Ekki verði hjá því komist
að hafa hliðsjón af listanum úr því að
stjómvöld hafa ekki sett þá reglugerð sem
almannatryggingalöggjöfin býður.
Fjölgun HlV-smitaðra
Bryndís Sigurðardóttir rakti helstu nýjungar
í meðferð við HIV sem er einn af þeim
sjúkdómum sem heilbrigðisstarfsmenn geta
átt á hættu að smitast af við stunguslys.
Hún rakti sögu lyfjameðferðar við HIV
og helstu kosti og galla þeirra lyfja sem
komið hafa frá því fyrsti HlV-sjúklingurinn
var greindur árið 1983. Nú er svo komið
að lyfjameðferð skilar góðum árangri en
enginn skyldi þó ætla að fundin sé lækning
við sjúkdómnum þar sem lyfjameðferðin
er dýr, flókin og skerðir lífsgæði sjúklings
ávallt til muna. Hér á landi smitast árlega
8-12 manns og seinni árin hafa þeir komið
úr hópi gagnkynhneigðra, en áður var
mikill meirihluti þeirra er sýktust úr hópi
samkynhneigðra karlmanna. Bryndís sagði
að greinileg aukning hefði orðið á HIV-
smiti undanfarin þrjú ár og því mikilvægt
fyrir heilbrigðisyfirvöld að halda vöku
sinni.
Stunguóhöpp eru slys
Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits
ríkisins fór yfir réttindi og skyldur
vinnuveitenda og starfsmanna varðandi
forvamir og slysavarnir á vinnustað.
Hann kvað vera ljóst að í þessum málum
tækjust á vinnuverndarsjónarmið og
persónuverndarsjónarmið sjúklinga. „Það
er hins vegar rík og óumdeild skylda
vinnuveitandans að stuðla að því að
starfsmenn séu verndaðir gegn hvers
konar heilsuvá eða heilsutjóni sem stafa
kann af vinnu þeirra eða vinnuskilyrðum,
eins og segir í lögum nr. 46/1980. Þá er
einnig rík skylda hans að upplýsa um
hættur þær sem starfmaður stendur
frammi fyrir. Atvinnurekanda ber að grípa
til forvarna og upplýsa. Starfsmanni ber
Starfsmaður Landspítala
gegnumlýsir óhreinan þvott til að
ganga úr skugga um að ekki leynist í
honum óhreinar nálar eða hnífar.
Ljósmynd/Ásdís Elfarsdóttir Jelle
að upplýsa og fylgja forvarnaráætlun. í
almannatryggingalögum segir: „Með slysi
er átt við skyndilegan utanaðkomandi
atburð sem veldur meiðslum á líkama
þess sem tryggður er og gerist án vilja
hans." Stunguóhöpp eru því ótvíræð slys,
tilkynningaskyld ef þau valda alvarlegu
heilsutjóni eða veikindaforföllum meir en
degi til viðbótar við slysdag."
Miklar framfarir í meðferö
Óttar M. Bergmann meltingarlæknir rakti
helstu nýjungar í meðferð við lifrarbólgu
B og C. Þrjár algengustu arfgerðir af
lifrarbólgu C eru 1, 2 og 3. Líkur á lækningu
við arfgerð 1 eru 55% en 80-85% við
arfgerðum 2 og 3. „45% sýkinga á íslandi
eru arfgerð 1 en 55% eru arfgerðir 2 og
3. Framfarir í meðferð við lifrarbólgu C hafa
verið miklar á undanförnum árum og má
reikna með yfir 90% árangri í meðferð við
arfgerð 2 og 3 frá og með árinu 2012 og
75% árangri við arfgerð 1. Af öllum þeim
sem smitast af lifrarbólgu C má reikna
með að 80% læknist í heildina, þar af 20%
sjálfkrafa. Vonast er til þess að nálægt 100%
læknist af arfgerð 2 og 3 og samtals munu
því um allt að 90% sýktra eiga möguleika
á lækningu af þeim sem sýkjast árið 2012 á
Islandi. Aðalatriðið er því að ná þeim sem
sýkjast en sýking er einkennalaus þar til
fylgikvillar skorpulifrar koma upp. Það er
einfalt að ganga úr skugga um sýkingu með
blóðprufu ef stunguslys er lykillinn."
Óttar sagði að til að fyrirbyggja
sýkingar af völdum lifrarbólgu B væri
bólusetning besta vörnin. „Allir eiga að
vera bólusettir og svörunin er um 95%
hjá skurðlæknum. Það eru 90% líkur á að
veiran hreinsist sjálfkrafa úr líkamanum og
10% líkur á krónískri sýkingu hjá körlum
en 5% hjá konum. 90% líkur eru á að DNA
verði neikvætt við meðferð á krónískri
sýkingu en líkurnar á því að skurðlæknir
verði að hætta að skera til frambúðar vegna
sýkingar eru því aðeins 1%."
LÆKNAblaðið 2011/97 321