Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 3
ArlD 1^1 I I rn IW im Iiniii i in'MnmA^
Spekingaglíman
f lok Læknadaga í ár var slegið á létta strengi með spurningakeppni
í anda Utsvars þar sem tókust á tvö galvösk læknalið. Liðin skipuðu
annars vegar Kristján Guðmundsson, Helgi Sigmundsson og Eyjólf-
ur Þorkelsson og hins vegar Árni Þórsson, Hrafnkell Óskarsson og
Árdís Björk Ármannsdóttir. Vakti samræmt útlit þeirra væntingar
um að hér væri harðsnúið lið á ferðinni sem hefði stundað stífar æf-
ingar en það verður á engan hallað þó sagt sé að Eyjólfur Þorkelsson
hafi tekið að sér að sjá um sigurinn fyrir sitt lið því hann svaraði
hraðaspurningunum hraðar en spyrlinum Gunnari Guðmundssyni
tókst að spyrja þeirra. Leikhæfileikar beggja liða vöktu einnig verð-
skuldaða athygli þegar kom að því að leika hina ýmsu sjúkdóma.
Hraftikell Óskarsson dró ekki af sér við
að túlkun sjúkdómseinkenna í Spekinga-
glímunni.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
> Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir (f. 1982) útskrifaðist
frá Listaháskóla (slands fyrir nokkru og hefur verið iðin
við listsköpun ávinnustofu sinni síðan. Hún hefurverið
virk í sýningahaldi og skipulagningu listviðburða og
| sýnir um þessar mundir ný verk á sýningunni Teikn í
Nýlistasafninu við Skúlagötu. Málverkin tvö sem mynd
er af á forsíðunni virðast talsvert
ólík en eru samofin í heildarhugsun
listakonunnar. Hluti af sama heimi,
að hennar sögn, einhvers staðar á
mörkum lífs og dauða. Segja má
að veran í öðru verkinu eigi sér
samastað í hinu. Málverkin byggjast
á dempaðri litapallettu í jarðartónum.
Þar skiptast á hreinir og geómetrískir
litafletir eða frjálsleg pensilskrift og
lína. Listakonan lýsir verunum i mál-
verkum sínum sem fulltrúum ólíkra
kennda sem gefnar eru til kynna með
líkamsstöðu, umhverfi og munum sem eru málaðir í kring
sem og myndbyggingunni í heild. Abstraktverkin eru til-
raun til að skapa framandi rými, umhverfi sem á hvergi
sinn líka í raunveruleikanum. Verk Jóhönnu eru allt í senn
málverk, teikningar, myndbönd og gjörningar- miðlar
sem hún hefur á stuttum ferli tileinkað sér og mótað per-
sónulega. Þau mótast af innsæi og spuna því hún reynir
að fanga hið óræða sem á sér rætur í eigin hugskoti og
í samskiptum á milli fólks. Myndbandsverk Jóhönnu eru
draumkennd, full af táknrænum lit, formum og gjörðum.
Sviðsettir helgisiðir leiða hugann að hugmyndinni um
listamanninn í hlutverki skapara sem gæðir líflaust efni
lífi eða sjamanista sem opnar fólki sýn inn í annan heim.
Hún seturfram eins konar kerfi
og leiðin til upplifunar liggur í
gegnum kerfið og inn á svæði
sem hún lýsir sem samastað
tilfinninga og krafts mann-
legrartilveru. Hún leggurmeð
áhorfendum í leiðangur þangað
og kallar til þess fram leiðendur.
Leiðsögumaður eins og sá sem
sjá má í málverki hennar vísar
veginn um allífið í geómetríu og
lit. Viðmót Jóhönnu í myndlist
endurspeglar á einhvern hátt
svipaða afstöðu og til trúar á
æðri máttarvöld; fullvissan um að eitthvað eftirsóknarvert
sé til staðar handan skilningarvitanna og að sífelld iðkun
og leit muni færa mann nær því.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaðurog Ijós-
myndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi, ý"
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2012/98 75