Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2012, Side 26

Læknablaðið - 15.02.2012, Side 26
RANNSÓKN upphafi sjúkdóms til aðgerðar, fylgikvilla og dánartíðni og hve- nær og af hverju PEG var fjarlægt. Fylgikvillar voru skilgreindir sem þeir fylgikvillar sem tengd- ust spegluninni og/eða fylgikvillar sem tengdust PEG-aðgerðinni sjálfri. Alvarlegir fylgikvillar voru skilgreindir sem fylgikvillar sem leiddu til dauða, skurðaðgerðar, endurinnlagnar á sjúkrahús, fjarlægingar á PEG eða blæðingar sem kröfðust blóðgjafa. Aðrir fylgikvillar voru skilgreindir sem minniháttar. Siðferðileg álitamál voru skilgreind sem PEG-aðgerð framkvæmd hjá sjúklingum með endastigsheilabilun, endastigskrabbamein eða varanlegt skyn- laust ástand þegar gervinæring og vökvun um görn var megin- markmið meðferðar. PEG-aðgerð sem gerð var hjá sjúklingum með langt gengið krabbamein til að létta á þrýstingi á maga eða görn eða til næringar á meðan krabbameinsmeðferð var gefin, var ekki talið siðferðilegt álitamál. Eftirfylgni sjúklinga með rafrænni sjúkraskrá náði til 31. ágúst 2010 og var lifun sjúklinga athuguð hjá Þjóðskrá. Aður en rannsóknin hófst lágu fyrir öll tilskilin leyfi frá Persónuvernd, Siðanefnd Landspítala og FSA og framkvæmda- stjóra lækninga á Landspítala og FSA. Gagnasöfnun og tölfræöileg úrvinnsla Tölvuforritið Microsoft Office Excel 2007 var notað til að skrá allar breytur og vinna úr upplýsingum varðandi almenna lýsandi töl- fræði. Tölfræðiforritið SigmaStat fyrir Windows, útgáfa 3.11 2004 var notað til að greina mun á hlutföllum og samanburð á hópum með kí-kvaðrati eða ópöruðu Fisher exact og Students t-prófi. Töl- fræðileg marktækni miðast við p-gildi <0,05. Niðurstöður A 10 ára rannsóknartímabili fundust 278 sjúklingar sem fóru í PEG-aðgerð á íslandi. Miðaldur var 70 ár (bil 18-93 ára). Karlar voru í meirihluta (59%), 163 karlar og 115 konur. Mynd I sýnir ár- legan fjölda PEG-aðgerða. Marktæk fjölgun varð á PEG-aðgerðum á milli 5 ára tímabila (p=0,001). Á fyrri hluta rannsóknartímabils- Ár My nd 1. Fjöldi magaraufana um húö með speglun á íslandi á árunum 2000-2009 (n=278). ins (2000-2004) voru framkvæmdar 79 aðgerðir, eða um 16 á ári að meðaitali, en á seinni hluta tímabilsins (2005-2009) voru þær 199, eða 40 á ári að meðaltali. Á seinni hluta tímabilsins voru PEG- aðgerðir þannig 24 fleiri á ári að meðaltali. Árlegur fjöldi PEG- aðgerða var 12,8/100,000 að meðaltali fyrir allt tímabilið en 7,6 á fyrri hluta þess og 17,5 á því seinna. Algengi sjúklinga með PEG var 23,2/100,000 við lok rannsóknarinnar. Fullnægjandi klínískar upplýsingar til úrvinnslu fengust hjá 263 sjúklingum. Flestallar (95%) PEG-aðgerðanna voru framkvæmdar á spegl- unardeildum Landspítala í Fossvogi eða við Hringbraut en 15 voru gerðar á FSA. Aðgerðin var í flestum tilvikum gerð af meltingar- Iæknum en skurðlæknar gerðu nokkrar. PEG-aðgerð var reynd en ekki framkvæmanleg hjá 10 sjúklingum og voru þeir útilokaðir frá rannsókninni. I 6 tilfellum var ekki hægt að koma speglunartæki fram hjá þrengslum af völdum krabbameins í hálsi eða vélinda og hjá fjórum var ekki hægt að finna öruggan stungustað á kvið til PEG-ísetningar. PEG-aðgerð var því framkvæmanleg í um 96% tilvika. Tafla I sýnir ábendingar PEG-aðgerðanna. Algengustu ábend- ingarnar voru taugasjúkdómar (60,8%) og var slag algengasti taugasjúkdómurinn (47,5%). Marktæk aukning var á PEG-aðgerð- um hjá sjúklingum með slag á milli tímabila (29% á því fyrra á móti 53% á því seinna; p=0,004). Heilalömun (cerebral pnlsy) var Tafla I. Ábendingar PEG-aðgerða á Islandi 2000-2009 (n=263). Ábendingar Fyrra tímabil (n=71) (2000-2004) n (%) Seinna timabil (n=192) (2005-2009) n (%) Allt tímabilið (n=263) (2000-2009) n (%) Taugasjúkdómar’ 38 (53,5) 122(63,5) 160 (60,8) Slag 11 (28,9) 65 (53,3) 76 (47,5) Hreyfitaugahrörnun 9 (23,7) 18(14,8) 27 (16,8) Parkinsonsveiki 3 (7,9) 14(11,5) 17(10,6) Heilalömun 9 (23,7) 7 (5,7) 16(10) Heila- og mænusigg 3 (7,9) 7 (5,7) 10(6,3) Ýmsir 2 (5,3) 8 (6,6) 10(6,3) Heilabilun 1 (2,6) 3 (4,6) 4 (2,5) Krabbamein 12(17,0) 23 (12,0) 35 (13,3) Langvinn veikindi 15(21,1) 14(7,3) 29 (11,1) Áverkar eftir slys 1 (1.4) 18(9,4) 19(7,2) Kyngingarvandamál 1 (1.4) 8 (4,2) 9 (3,4) Ýmislegt 4 (5,6) 7 (3,6) 11 (4,2) PEG = percutaneous endoscopic gastrostomy. ‘Undirflokkar taugasjúkdóma eru gefnir upp í prósentum sem hlutfall af taugasjúkdómum. 98 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.