Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 38

Læknablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 38
FORMAÐUR LÍ Traust og öflugt félag - segir nýr formaður LÍ ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Þorbjörn Jónsson var kjörinn formaður Læknafélags Islands á aðalfundi félagsins í október síðastliðnum. Þorbjörn er sér- fræðingur í ónæmis- og blóðgjafafræðum. Að sérnámi loknu árið 2002 vann hann tvö ár á ónæmisfræðideild Landspítalans, en frá árinu 2005 hefur hann starfað við Blóðbankann. Þorbjörn kemur í starf for- mannsins eftir að hafa gegnt formennsku í Læknaráði Landspítalans um fjögurra ára skeið og notið þar mikils trausts fyrir málefnalega og faglega framgöngu. Hann hlaut ágæta kosningu í formannsembættið og kveðst afar þakklátur fyrir það traust sem honum var sýnt. Þorbjörn er fæddur 1960 og lauk lækn- isfræði frá HÍ 1989. Hann lauk doktorsprófi frá HÍ 1993 og stundaði sérnám í ónæmis- og blóðgjafafræðum við Rikshospitalet og Ullevál-sjúkrahúsið í Ósló 1998-2002. Hann er kvæntur Guðrúnu Svanborgu Hauks- dóttur lækni og sérfræðingi í sýklafræðum og eiga þau fjögur börn. Læknaskortur blasir við Þegar talið berst að Læknafélagi Islands stendur ekki á svörum hjá Þorbirni. „Það sem líklega brennur hvað heitast á okkur núna er vandi íslenska heilbrigðis- kerfisins við að manna læknastöður í landinu. Ástæðurnar eru öllum ljósar og margbúið að rekja þær; læknar sem þegar eru búsettir erlendis eru fæstir að hugsa um að koma heim þó sérnámi þeirra sé lokið, þeir fresta heimflutningi og í mörgum tilfellum verður það til þess að þeir ílendast erlendis með fjölskyldur sínar. Ungir læknar sjá sinn kost einnig vænstan í því að fara sem fyrst í sérnám erlendis og þeirra nýtur því skemur við. Þá eru sérfræðilæknar á miðjum aldri og eldri, sem starfað hafa hér heima um lengri eða skemmri tíma, margir hverjir farnir að hugsa sér til hreyfings með því að taka hlutastöður erlendis eða flytja alfarnir utan á nýjan leik. Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál fyrir íslenska heilbrigðis- kerfið." Þorbjörn segir vandann sem af þessu geti skapast margþættan. „Það sem blasir við er einfaldlega læknaskortur og hann er þegar orðinn tilfinnanlegur innan heilsugæslunnar, bæði á höfuðborgar- svæðinu og á landsbyggðinni. Þar reynist sífellt erfiðara að manna lausar stöður. Önnur afleiðing þessarar gloppu í endur- nýjun í stéttinni er að nýjungar í aðferðum og tækni skila sér hægar og verr en áður. Ungu sérfræðingarnir sem koma erlendis frá eru eðli málsins samkvæmt oft drif- fjöðurin í því að innleiða nýjungar og færa með sér það sem er efst á baugi í alþjóð- legum læknavísindum. Hættan er sú að íslenska heilbrigðiskerfið staðni og dragist síðan aftur úr þar sem við erum að missa af stórum hluta af mikilvægustu kynslóð lækna, unga sérfræðinga á aldrinum 35- 45 ára. Á sama tíma erum við að horfast í augu við að stórir árgangar lækna, fæddir 1940-45, eru að fara á eftirlaun og þá verður endurnýjunarvandinn enn meira aðkallandi." Erfiður vítahringur Þorbjörn segir að kröfur ungra lækna til starfsins séu aðrar en voru fyrir 20 árum eða fyrr. „Þrátt fyrir engu minni áhuga á faginu og mikinn metnað til að ná langt í starfi, gerir ungt fólk í dag aðrar kröfur. Það vill líka hafa tíma fyrir fjölskyldu og áhugamál. Það vill ekki eyða öllum tíma sínum í vinnu og vera sífellt bundið af vöktum. Þetta er afskaplega sanngjörn krafa og henni er hægt að mæta með eðli- legri mönnun. Læknaskorturinn veldur auknu álagi á þá sem ennþá eru til staðar og það veldur því að fólk leitar annað. Þetta er vítahringur sem erfitt getur reynst að rjúfa." Læknafélagið getur að sögn Þorbjörns ekki einsamalt breytt þessu ástandi, það sé hlutverk stjórnvalda, en hann leggur áherslu á að hlutverk félagsins sé að vekja athygli á þessu. „Það er svo margt sem spilar inn í. Við vitum að laun lækna eru hærri í löndunum í kringum okkur en hér heima. Eftirspurn eftir læknum er alls staðar og það er auðvelt fyrir íslenska lækna að fá vinnu þar sem menntun þeirra er góð og þeir eru þekktir fyrir að vera vandvirkir, ósérhlífnir og vinnusamir. Fyrir þessa einstaklinga er metnaðarmál að fá tækifæri til að vera í miðpunkti tækni og þróunar. Það eykur því á vandann að samhliða lakari kjörum er tæknibúnaður til dæmis á Landspítala óðum að úreldast, fyrir utan þann hluta hans sem þegar er úreltur. Það verður því sífellt minna aðlaðandi að snúa hingað heim fyrir hámenntaða sérfræðinga í læknisfræði og það eina sem stjórnvöld hafa gert er að höfða til þjóðrækni og ætt- jarðarástar. Ég skil þetta mjög vel, enda velti ég því vandlega fyrir mér hvort rétt væri að setjast að í Noregi eða flytja heim. Við hjónin ákváðum að flytjast heim, enda gerðum við okkur grein fyrir því að með hverju árinu sem liði minnkuðu líkurnar á heimflutningi. Við sjáum ekki eftir því. Þetta snýst auðvitað ekki eingöngu um lækna, kaup þeirra og aðstöðu til vinnu. Þetta snýst um þjónustu við sjúklingana. Það blasir við að ýmsar af vandasamari og sjaldgæfari aðgerðum sem hér hafa verið gerðar verða jafnvel lagðar af vegna þess að ekki fæst fjármagn til að endurnýja nauðsynlegan tækjabúnað. Spurningin 110 LÆKNAblaðiö 2012/98

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.