Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2012, Page 41

Læknablaðið - 15.02.2012, Page 41
BIÐSTOFUR Myndin sýnir hinar fjórar mismunandi aðstæður sem viðbrögð voru könnuð við. Aðstæður 1: Prófun á peim aðstæðum sem vorufyrir hendi á biðstofu dag- og göngudeildar krabbameinslækninga við upphaf rannsóknar, það er hvítir veggir og enginn gróður. Aðstæður 2: Hvítir veggir oggróðri bætt inn. Aðstæður 3: Ljósbrúnir veggir og enginn gróður. Aðstæður 4: Ljósbrúnir veggir oggróðri bætt inn á nýjan leik. Biðstofur og heilsufar ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Betri biðstofur er yfirskrift rannsóknar á biðstofu dag- og göngudeildar krabba- meinslækninga á Landspítala við Hring- braut sem fór fram í febrúar á síðastliðnu ári. Að rannsókninni stóð þverfaglegt teymi, þau Auður I. Ottesen ritstjóri og garðyrkjufræðingur, Hulda Þórey Gísladóttir iðjuþjálfi, Rut Káradóttir innan- hússarkitekt og Páll Jakob Líndal doktors- nemi í umhverfissálfræði. Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar var dr. Sigríður Gunn- arsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs í krabbameinshjúkrun. í rannsóknarskýrslunni segir að: „í rannsóknum á áhrifum umhverfis á fólks hefur mikið verið litið til sálfræðilegrar endurheimtar (psychological restoration) sem skilgreind hefur verið sem endurnýjun líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar getu sem hefur minnkað vegna álags við að mæta kröfum hversdagsins." I rannsóknarskýrslunni eru tíundaðir þrír meginþættir í umhverfinu sem rann- sóknir hafa sýnt að hafa áhrif á líðan sjúklinga og bata þeirra. 1. Arkitektúr, það er tiltölulega varanlegir þættir í hönnun umhverfis sem kostar fyrir- höfn að breyta, svo sem stærð herbergja, rýmismyndun, staðsetning glugga og þess háttar. 2. Ytri þættir, svo sem ljós, hitastig, hávaði og lykt. 3. Fyrirkomulag innanhúss, það er þættir í hönnun sem tiltölulega auðvelt er að breyta, svo sem húsgögn, litir, listaverk og plöntur. í rannsókninni var kannað hvort mat sjúklinga á líkum þess að upplifa sálfræði- lega endurheimt yrði jákvæðara ef Iitum á veggjum biðstofu dag- og göngudeildar krabbameinslækninga á Landspítala við Hringbraut yrði breytt og gróðri komið þar fyrir. Þátttakendur voru 116 (58% konur og meðalaldur 60 ár), allir í virkri krabba- meinsmeðferð á þeim tíma sem rann- sóknin var gerð. Bornar voru saman fjórar aðstæður (hvítir veggir - enginn gróður; hvítir veggir - gróður; ljósbrúnir veggir - enginn gróður; ljósbrúnir veggir - gróður). Niðurstöður sýndu að breytingarnar höfðu engin áhrif á karla en gróður hafði bein jákvæð áhrif á mat kvenna á líkum þess að upplifa endurheimt. Þegar hrifningu og fjarveru var bætt inn í líkanið sem miðlun- arbreytum, kom í ljós að báðar breyturnar miðluðu áhrifum gróðurs á mat kvenna á líkum þess að upplifa endurheimt. Fjar- vera miðlaði einnig áhrifum vegglitar á mat kvenna. Niðurstöðurnar sýndu einnig að konur, í samanburði við karla, telja umhverfið síður henta til sálfræðilegrar endurheimtar. Byggt á visindalegum grunni Læknablaðið ræddi við Pál Jakob Líndal er stundar doktorsnám í umhverfissálfræði við háskólann Sydney í Ástralíu og bað hann að gera grein fyrir hugmyndunum er liggja að baki rannsókninni. „Aðdragandi þessa verkefnis var viðtal er birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2009 við dr. Elísabetu Hjörleifsdóttur lektor í hjúkr- unarfræði við Háskólann á Akureyri, en hún var að segja frá niðurstöðum doktors- verkefnis síns þar sem meðal annars kom fram að sjúklingum í krabbameinsmeð- ferð á Landspítalanum þótti umhverfi stofnunarinnar gera meðferðina erfiðari en ella. Þetta átti reyndar sérstaklega við um konur í krabbameinsmeðferð. Þetta viðtal vakti athygli Auðar I. Ottesen sem setti fram þá hugmynd á stofnfundi sam- takanna Umhverfi og vellíðunar í mars 2009, hvort samtökin gætu ekki tekið að sér að bæta umhverfi krabbameinsdeildar- innar. Þetta varð síðan til þess að þetta verkefni fór af stað. Það gekk mjög vel að vinna hugmyndinni fylgi og okkur var tekið mjög vel af yfirstjórn spítalans. Ýmsir aðilar voru fúsir til að styrkja verkefnið og það stóð alveg undir kostnaði. Strax í upp- hafi ákváðum við að byggja nálgun okkar algjörlega á vísindalegum grunni, það er að nýta þær fjölmörgu rannsóknarniður- stöður og kenningar innan umhverfissál- fræðinnar sem til eru. Það er í samræmi við markmið samtakanna Umhverfi og vellíðunar að þessi nálgun sé notuð meira en gert er við hönnun og skipulag bygg- inga og umhverfis." Páll Jakob segir að einmitt vegna þess að rannsóknin var gerð eftir vísindalegri forskrift hafi breytingar á biðstofunni ekki verið jafn miklar og annars hefði mátt ætla. „Til að geta haldið utan um sértæk áhrif gróðurs og vegglitar og gert á þeim tölfræðilega útreikninga var mikilvægt að hafa breytingarnar hófstilltar. Of viða- miklar breytingar á sama tíma hefðu gert tölfræðilega úrvinnslu mjög flókna, ef ekki ómögulega, og í framhaldinu hefði enginn haft hugmynd um hvaða hlutir væru að LÆKNAblaðið 2012/98 113

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.