Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 44

Læknablaðið - 15.02.2012, Qupperneq 44
UMFJOLLUN O G GREINAR Læknadagar 2012 Mikil og almenn ánægja Læknaneminn Hclgi Þór Leifsson og Þóra Elísabet Kristjánsdóltir læknakandídat tóku þátt í vinnubúSum wn fyrstu viðbrögð læknis á slysstað sem fram fór í bílakjallara Hörpu. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Metþátttaka var á Læknadögum 2012 sem haldnir voru í Hörpu vikuna 16.-20. janúar. Að sögn Örnu Guðmundsdóttur forstöðu- manns Fræðslustofnunar lækna hefur það vafalaust ýtt undir áhugann að læknar fá nú alþjóðlega símenntunarpunkta (CME) fyrir þátttökuna. Yfir 1000 manns skráðu sig inn og eru það fleiri en félagar í Læknafélagi íslands eru og þess má geta að á Læknadögum 2011 var einnig met- þátttaka með ríflega 800 manns. Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa sannaði gildi sitt því það var einróma álit að aldrei hefði farið jafn vel um dagskrána og var því ánægjan fölskvalaus. Dagskráin var glæsileg og höfðu margir á orði að verst væri hvað margt spennandi gerðist samtímis svo enginn vegur væri að komast yfir alla dagskrána; fólk varð einfaldlega að velja og hafna. Þessi samantekt er sannarlega byggð á því að ekki varð komist yfir nema brot af dagskránni og biðst blaðamaður vel- virðingar á því hversu stórt er stiklað en vonandi gefa texti og myndir nokkra hug- mynd um fjölbreytni dagskrárinnar. Offita og dægurlög Bryddað var upp á þeirri nýjung fyrsta daginn að helga hann allan einu þema, offitu, og var greinilega mikill áhugi fyrir þessu efni og margir heilbrigðisstarfsmenn auk lækna sem tóku þátt. Málþing um hreyfiseðla sem meðferðarform var vel sótt og við hæfi að strax að því loknu tók við Læknahlaupið sem orðið er að föstum lið á dagskrá Læknadaganna. Þátttakan var með minnsta móti í ár og sagði Arna Guð- mundsdóttir að fyrir næsta ár yrði að gera ráðstafanir til að breyta því. í stað þess að ljúka dagskrá mánudags- ins með setningu Læknadaganna eins og áður hefur tíðkast, fór setningin fram um kvöldið og fluttu þau Arna Guðmunds- dóttir og Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags íslands stutt ávörp og buðu gesti velkomna. Þá tók Óttar Guðmunds- son geðlæknir við keflinu ásamt Jóhönnu Þórhallsdóttur söngkonu og hljómsveit og bauð upp á geðlæknisfræðilega yfirferð um íslenska dægurlagasögu ofanverðrar 20. aldar. Þar stóð fátt fyrir og sýndi Óttar svo ekki varð um villst að geðræn ein- kenni og fóbíur af flestu tagi birtást skil- merkilega í dægurlagatextum sem hingað til hafa þótt næsta meinlausir og lausir við dýpri merkingu. Allt var þetta þó til gamans gert og vakti verðskuldaða kátínu. Rafræna sjúkraskrá umfram allt Næsti viðkomustaður var hádegisfundur á miðvikudeginum sem settur var á dag- skrána með stuttum fyrirvara og var yfirskrift hans Ambulant aðgerðir - Abyrgðar- hlutur. Þarna var efnið gripið beint út úr heitasta umfjöllunarefni fjölmiðla undan- gengna daga, gallaðir brjóstapúðar. Jón Snædal formaður siðfræðiráðs Lækna- félags íslands fór yfir helstu siðareglur lækna, bæði þær er Læknafélag íslands hefur sett sér og einnig þær er alþjóðafélag lækna, WMA, hefur sæst á. Hann benti meðal annars á að aðrir hagsmunir en læknisfræðilegir megi aldrei grafa undan ákvörðunum læknis um meðferð sjúklings. Geir Gunnlaugsson landlæknir lagði ríka áherslu á ótvíræða skyldu allra sjálfstætt starfandi lækna til að skila skýrslum til landlæknisembættisins og vísaði til laga frá árinu 2007 þess efnis. Um þetta spunn- ust nokkrar umræður um trúnað lækna við skjólstæðinga sína. Öldungadeild Læknafélagsins átti sterka innkomu síðari hluta dagsins með fjölbreyttu málþingi undir yfirskriftinni Fórur öldungadeildar, list ogfræði. Þar var blandað saman á skemmtilegan hátt upp- lestri á kveðskap lækna, myndlist þeirra af ýmsu tagi og fræðilegum fyrirlestri um helstu nýjungar í öldrunarlækningum. Óttar Guðmundsson sýndi svo á skemmti- legan hátt hvernig einstaklingurinn og sér- greinin veljast saman í læknisfræðinni. Á málþingi fimmtudagsins um þjón- ustustýringu í heilbrigðiskerfinu lagði Elínborg Bárðardóttir heimilislæknir ofur- áherslu á mikilvægi upplýsinga og góðs flæðis þeirra á milli hinna ólíku hluta heil- brigðiskerfisins. „Rafræn sjúkraskrá, raf- ræn sjúkraskrá, rafræn sjúkraskrá, rafræn sjúkraskrá!" mátti lesa á einni glæru henn- ar. Hún sagði tilgang þjónustustýringar með tilvísanakerfi vera að koma í veg fyrir vanlækningar, sem og oflækningar, jafn- framt því að draga úr kostnaði. Elínborg rakti fyrri tilraunir yfirvalda til að koma á tilvísanakerfi með litlum árangri og kvaðst ekki telja að tilvísanakerfi væri raunhæf bót á vandanum í dag. „Við viljum rétta þjónustu, á réttum stað, á réttum tíma og á réttu verði." Siðblindir i samfélaginu Það var ljóst á föstudagsmorgninum að mikill áhugi var fyrir fyrirlestri um sið- blindu sem kanadíski sálfræðingurinn og rannsóknarlögreglumaðurinn Matthew Logan hélt. Meðal þess sem kom fram í máli hans var að siðblindir einstaklingar eru ábyrgir fyrir allt að helmingi ofbeldis- 116 LÆKNAblaðið 2012/98 J

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.