Læknablaðið - 15.05.2012, Page 7
RITSTJÓRNARGREIN
Embætti landlæknis eftir sameiningu
Geir
Gunnlaugsson
landlæknir
geir@landlaeknir.is
Nú í maí er eitt ár liðið frá því breytt lög
um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007 tóku
gildi. Við gildistökuna sameinaðist starf-
semi landlæknisembættisins og Lýðheilsu-
stöðvar í Embætti landlæknis. Hugmyndir
um að sameina þessar stofnanir höfðu
lengi verið til umræðu en formleg vinna
við sameiningu hófst í mars 2010, réttum
250 árum frá skipan fyrsta landlæknisins.
Sú sameining sem nú liggur fyrir hefur
verið mikilvægur hvati til að ræða og
kryfja starf embættisins á grunni laga og
reglugerða um markmið og meginhlutverk
þess. Nýtt skipurit hvílir á fjórum fagleg-
um stoðum sem eru studdar af stoðsviði
og skrifstofu landlæknis sem samhæfir
starf þess. Nú starfa 62 starfsmenn í um 53
stöðugildum við embættið.
Svið áhrifapátta heilbrigðis vinnur að
heilsueflandi samfélagi sem stuðlar að heil-
brigði og vellíðan landsmanna. Forvarnar-
starf sem snertir langvinna sjúkdóma og
áhrifaþætti þeirra er eitt helsta viðfangs-
efni heilbrigðisþjónustu um allan heim.
Mikilvæg verkefni snerta því meðal annars
lifnaðarhætti, áfengis- og tóbaksvarnir og
geðheilbrigði. Sviðið vinnur að þessu með
almennum aðgerðum, með því að þróa
og styðja við þverfagleg verkefni eins og
heilsueflandi leikskóla, grunnskóla og
framhaldsskóla. Umsýsla með lýðheilsu-
sjóðnum, arftaka forvarnarsjóðsins, er
meðal verkefna sviðsins og styrkveitingar
til fjölbreyttra forvarna- og heilsueflingar-
verkefna og rannsókna.
Svið sóttvarna vinnur í samræmi við sér-
stök sóttvarnalög og Alþjóðaheilbrigðis-
reglugerðina. Þó sjúkdómsbyrði sóttvarna
hafi hlutfallslega minnkað á síðustu ára-
tugum í hátekjulöndum, einkum vegna
bólusetninga og virkra sýklalyfja, má aldrei
slá slöku við. Brestur í sóttvörnum getur
haft alvarlegar afleiðingar og er kostnaðar-
samur, bæði fyrir einstaklinga og samfélög.
Vöktun og greining sviðsins felst í því að
fylgjast með hættulegum sjúkdómum og
atburðum sem geta haft alvarleg áhrif á
líf og heilsu manna. Spítalasýkingar eru
vaxandi vandamál fyrir sjúklinga og afar
kostnaðarsamar fyrir heilbrigðisþjón-
ustuna og við þeim þarf að bregðast. Bólu-
setningar eru mikilvæg fyrsta stigs forvörn
og skipulag og framkvæmd þeirra er meðal
verkefna sóttvarnasviðs ásamt eftirfylgd
með sýklalyfjaónæmi, kynsjúkdómum og
HlV-smiti. Viðbragðsáætlanir við óvæntri
heilsuvá falla einnig eðlilega að sóttvarna-
verkefnum, eins og reynsla af nýlegum eld-
gosum og viðbrögð við útblæstri eiturefna
ber vitni um.
Svið eftirlits og gæða vinnur að því að
efla gæði og öryggi í heilbrigðisþjónust-
unni. Helstu áherslur sviðsins varða eftirlit
með og úttektir á heilbrigðisþjónustunni,
öryggi og gæðaþróun og úrvinnsla kvart-
ana. Unnar eru faglegar kröfur, gæðavísar
og önnur viðmið um framkvæmd heil-
brigðisþjónustu í samstarfi við fagfólk og
stjórnvöld. Eftirlitið varðar allar rekstrar-
einingar heilbrigðisþjónustunnar sem eru
um 2000 talsins, þar af um 400 á ábyrgð
lækna í sjálfstæðum rekstri. Lyfjaeftir-
lit embættisins fellur undir þetta svið og
hefur að markmiði að styðja við hagkvæma
lyfjanotkun og koma í veg fyrir misnotkun.
Allar kvartanir eru skoðaðar í þverfagleg-
um hópi starfsfólks og krufið er til mergjar
hvort mistök, vanræksla eða ótilhlýðileg
framkoma heilbrigðisstarfsfólks hafi átt sér
stað. Niðurstaða slíkrar greiningar getur
eðli málsins samkvæmt ekki alltaf hugnast
öllum málsaðilum.
Svið heilbrigðisnpplýsinga vinnur að því
að safna, greina og túlka gögn um heilsufar
og heilbrigðisþjónustu, miðla upplýsingum
úr gagnasöfnum embættisins og stundar
lýðheilsurannsóknir. Helstu áherslur sviðs-
ins varða vinnu við þær 14 heilbrigðisskrár
sem embættinu ber að halda, lögum sam-
kvæmt, og styðja samræmda skráningu í
heilbrigðisþjónustu sem nýtist sem efni-
viður í heilbrigðisskrár. Opnun á rafrænar
gagnasendingar í rauntíma og aðgangur
að gagnvirkum upplýsingum í vöruhúsi
gagna eru meðal verkefna sviðsins. Þróun
rafrænnar sjúkraskrár á landsvísu er á
ábyrgð sviðsins síðan 1. mars síðastliðinn.
Þetta umfangsmikla verkefni verður ekki
unnið svo vel sé nema í náinni samvinnu
við heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir heil-
brigðisþjónustunnar.
Stoðsvið sinnir fræðslu- og kynningar-
starfi, eflir innri verkferla og leitast við að
veita starfsfólki og þeim sem leita til em-
bættisins góða þjónustu. Helstu áherslur
sviðsins varða innra öryggis- og gæðastarf,
útgáfu og vefsetur, auk skjalavörslu, en
mikilvægt er að tryggja skilvirka ferla við
umsýslu bréfa og annars sem berst emb-
ættinu. Nýr vefur er í burðarliðnum með
gjörbreyttri uppbyggingu á efnisflokkum
og leitarmöguleikum, en gestir eru um
18.000 á mánuði með um 80-85.000 síðu-
flettingum.
Embætti landlæknis og starf þess hefur á
liðnum misserum verið mjög í brennidepli
fjölmiðla og til umræðu á bloggsíðum. Það
ber vott um mikilvægi verkefna embættis-
ins. Starfsfólkið mun hér eftir sem hingað
til leggja sig fram við að sinna verkefnum
sínum af fagmennsku, einlægni og alúð
og málefnaleg gagnrýni hvetur okkur til
dáða. Allar ábendingar um það sem má
betur fara eru skoðaðar með opnum huga
og reynt að leita lausna. Endurskipulagn-
ing stofnunarinnar er ein varða á þeirri
vegferð að gera embættið betur fært um að
sinna fjölbreyttum verkefnum og standa
undir réttmætum væntingum sem til þess
eru gerðar.
Directorate of Health following a merger
Geir Gunnlaugsson:
Chief Medical Officer for lceland
LÆKNAblaöiö 2012/98 267