Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 62
Ritstjórn vill fá fleiri raddir kolleganna til að hljóma. I þessu skyni hefur blaðið kallað eftir pistlum frá formönnum sérgreinafélaga og undirdeilda Læknafélags íslands og Reykjavíkur. Frá innkirtlafélaginu Kolbeinn Guðmundsson Formaður Félags um innkirtlafræði Kolbeinn.Gudmundsson@lyfjastofnun.is Félag um innkirtlafræði var stofnað 1981 af Gunnari Sigurðssyni og Astráði B. Hreiðarssyni. Tilgangurinn var fyrst og fremst að „stuðla að aukinni fræðslu og skoðanaskiptum á sviði þessarar vaxandi greinar læknisfræðinnar" eins og segir í fundargerð stofnfundar. Það verður ekki annað sagt en að stofnfélagarnir hafi staðið við sín fyrirheit, enda hefur félagið verið mjög virkt i fræðslu og fundastarfi síðastliðin 30 ár. Eins og nafn félagsins ber með sér er það ekki eingöngu opið læknum með sérfræðiviðurkenningu á sviði innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma, þó nýlegar lagabreytingar hafi fest þetta félag í sessi sem sérgreinastéttarfélag fyrr- nefndra sérfræðinga. Frá árinu 2004 hefur félögum því verið skipt í „aðalfélaga" sem hafa sérfræðiviðurkenningu og „aukafé- laga" sem koma úr ýmsum undirgreinum en deila áhuga á efnaskipta- og innkirtla- sjúkdómum. Félagið hefur því breiðan hóp áhangenda úr öðrum sérgreinum. Félagið er ekki stórt, telur i dag 14 aðalmeðlimi, þar af 5 barnalækna og 9 lyflækna með áðurnefnda undirgrein. Efnaskiptasjúk- dómar eru í eðli sínu mjög þverfaglegir. Bæði eru einkenni sjúkdómanna oft marg- slungin og meðferð sjúkdómanna og aukaverkana þeirra oft í höndum margra sérgreina. Þetta er meginástæðan fyrir breidd í félagatali okkar. Efnaskiptasjúkdómar eru í hugum margra „raritet" og er það að hluta til rétt, en á móti kemur að þeir eru margir. Stærstu vandamál heilbrigðiskerfisins og þau sem vaxa hraðast falla undir efna- skiptin, það er áunnin sykursýki og offita. Áætlanir Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar gera ráð fyrir að 346 milljónir manna þjáist af sykursýki í heiminum í dag og að af þeim sem eru með áunna syk- ursýki sé meira en þriðjungur ógreindur. Samkvæmt tölum frá Hjartavernd voru 5400 karlar (6%) og 2800 konur (3%) á aldrinum 25-84 ára með áunna sykursýki árið 2007 (þar af þriðjungur ógreindur). Við höfum verið svo lánsöm að nýgengi insúlínháðrar sykursýki hefur verið lægri hér en í okkar nágrannalöndum, en tíðnin er vaxandi í takt við vaxandi tíðni annars staðar í þróuðum löndum. Þessi staðreynd er í raun mjög merkileg í ljósi þess að erfðafræðilegur skyldleiki okkar við hinar Norðurlandaþjóðirnar er mikill. Öflugt göngudeildarstarf er á Landspítala, bæði á barnadeild og lyflækningadeild, og árang- ur af meðferð hér góður í samanburði við alþjóðlega staðla. Notkun á insúlíndælum fyrir sjúklinga með insúlínháða sykursýki er algeng og eru um það bil 60% barna með slíkan búnað og um 15% fullorðinna. Offituvandinn sem sjúkdómur er víðast hvar hálf munaðarlaus en hefur í vaxandi mæli lent á herðum efnaskiptalækna. Á þetta ekki síst við um börn sem for- eldrar telja að séu með efnaskiptagalla. Að sjálfsögðu er það sjaldnast raunin en það er sorgleg staðreynd að vaxandi hópur unglinga er að birtast með forstig áunn- innar sykursýki og jafnvel að greinast með áunna sykursýki. Við erum sem betur fer ekki búin að ná Bandaríkjamönnum í þessari vá, en þar er tíðni áunninnar sykursýki meðal barna og unglinga orðin hærri en tíðni insúlínháðrar sykursýki í sumum fylkjum. Hugtakið fullorðinssyk- ursýki er því orðið úrelt. Tvöföldun hefur orðið á tíðni meðgöngusykursýki undan- farin fjögur ár, sem er beint tengt aukinni þyngd kvenna. Hefur þetta í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir mæður og börn þeirra og útgjöld í heilbrigðiskerfinu. Þó að efnaskiptasjúkdómar séu sjaldan orsök offitunnar, veldur offita ýmsum efnaskiptaröskunum fyrir utan sykursýki. Má hér nefna blóðfituvandamál, fjöl- blöðrueggjastokka og háþrýsting. Ekki má gera lítið úr mikilvægi þess að skima fyrir sjaldgæfum orsökum offitu, svo sem Cus- hing-heilkenni eða vanstarfsemi skjald- kirtils. Sérstaklega í alvarlegri tilfellum þar sem hugað er að hjáveituaðgerðum. Önnur algeng vandamál eru vaxtar- og kynþroskafrávik hjá börnum, vanstarfsemi og ofstarfsemi á skjaldkirtli og hnútar í skjaldkirtli. Einstaklingum í kynskiptaferli hér á landi fer fjölgandi og eru undir eftirliti innkirtlalækna. Hormónaháður háþrýstingur er einnig vaxandi greining, áður talinn 0,2-2% en nú allt að 10% af öllum háþrýstingi. Sjúkdómar í heiladingli eru margvís- legir. Gott samstarf er við heilaskurð- lækna, háls-, nef- og eyrnaskurðlækna, krabbameins- og geislalækna á þessu sviði og árangur af meðferð þessara sjaldgæfu sjúkdóma mjög góður. Mikið er talað um úreltan tækjakost Landspítala, en á þessu sviði getum við státað af góðum tækjakosti til aðgerða og myndgreiningar. Tengsl kollega við „uppeldisstöðvar" sínar erlendis sanna hér enn og aftur gildi sitt, en hingað til lands hafa komið erlendir sérfræðingar í þræðingum og taugaskurð- lækningum til að gera aðgerðir, sjúkling- um til gagns og þæginda, en af þessu hlýst einnig gríðarlegur sparnaður. Hátæknihluti fagsins er í góðum málum. Áhyggjurnar nú snúa frekar að lágtæknimálum. Á ég hér við forvarnir og almennar lýðheilsuaðgerðir á sviði nær- ingar og hreyfingar. Beinkröm og D-víta- mínskortur meðal barna og fullorðinna er staðreynd og D-vítamínbætt léttmjólk leysir ekki ein þann vanda. Almenn kunn- átta í næringarfræði er mjög bágborin, bæði meðal almennings og margra heil- brigðisstétta, og virðist stýrt meira af auglýsendum en yfirvöldum. Skólamáltíðir barna voru góð hugmynd en gæði þeirra og þar með uppeldisgildi eru því miður ekki alltaf til fyrirmyndar. Innkirtlalæknar og aðrir eiga mikið verk óunnið. 322 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.