Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 38
UMFJOLLUN O G GREINAR Kennarar og prófdómarar, aftasta röð frá vinstri: Kristján Sveinsson, Hannes Guðmundsson, Níels Dungal, Sigurður Sigurðsson, Sigurður Samúelsson, Pétur HJ. Jakobsson, Hjalti Þórarinsson, Stefán Ólafsson, Snorri Hallgrímsson, Guðmundur Thoroddsen, Haukur Kristjánsson, Theodór Skúlason, Bjarni Jónsson og Jón Steffensen. Kandídatar, frá vinstri aftari röð: Lárus Helgason, Bergþóra Sigurðardóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Jónas Hallgrímsson, Árni Ingólfsson og Per Lyngaas. Fremri röð: Guðmundur Þórðarson, Guðmundur Bjarnason, Grétar Ólafsson, Sverrir Haraldsson og Daníel Guðnason. Kennarar og prófdómarar fjarverandi: Arinbjörn Kolbeinsson, Bjarni Konráðsson, Björn Sigurðsson, Davíð Davíðsson, Friðrik Einarsson, Júlíus Sigurjónsson, Kristinn Stefánsson, Ólafur Bjarnason, Trausti Ólafsson og Valtýr Albertsson. Myndina tók Sigurður Haukur Sigurðsson, bróðir Bergþóru kandídats. Útskrift frá læknadeild Háskóla íslands vorið 1958 Jónas Hallgrímsson jonasprot5@gmail.com Tilefni birtingar þessarar myndar er það að ég sýndi hana í fyrirlestri um prófessor Níels Dungal á Læknadögum í Hörpu í janúar síðastliðnum. Sveinn Magnússon og Páll Ásmundsson hvöttu mig til þess að senda hana Læknablaðinu til birtingar. Myndin er tekin framan við anddyri hátíðasals Háskóla íslands 12. júní 1958 en þann dag voru nýútskrifaðir kandídatar boðnir til formlegrar útskriftarathafnar. Athöfnin sem var haldin í þáverandi kenn- arastofu skólans fór þannig fram að Snorri Hallgrímsson deildarforseti flutti ávarp og bauð okkur velkomin í íslenska læknastétt og þakkaði okkur samveruna í deildinni undanfarin ár. Eg flutti síðan nokkur þakkarorð fyrir okkar hönd. Okkur voru afhent prófskírteini og síðan undirrituðum við læknaeiðinn (Hippókratesareiðinn) og skálað var í sherry öllu til staðfestingar. Þetta var líklega fyrsta formlega út- skrifarathöfn úr læknadeild þessara ára og kannski frá upphafi. Að vísu fóru fram einhverjar athafnir við útskriftir vorið 1957 og í janúar 1958 en þær munu ekki hafa verið með slíkum formlegum hætti. Hef ég kannað það hjá læknum sem útskrifuðust þá því til staðfestingar. Fram að þessu munu útskrifaðir kandídatar einungis hafa vitjað skírteina sinna á skrifstofu háskólaritara einhvern tíma síðar, ef þá nokkurn tíma. Eg efast um að til sé önnur mynd af svo mörgum kennurum læknadeildar samankomnum. Mér finnst einnig að rétt sé að telja upp aðra kennara læknadeildar sem kenndu okkur og voru ekki viðstaddir athöfnina. 298 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.