Læknablaðið - 15.05.2012, Síða 33
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Ljósir punktar
Þórey
Steinarsdóttir
fulltrúi Félags almennra
lækna í stjórn Læknafélags
fslands
thorey.steinarsdottinSgmail.com
Með hækkandi sól nú á vordögum er gott
að staldra aðeins við og skoða hvað hefur
gengið vel, hvaða sigrar hafa unnist og
hverju vinna síðasta árs hefur skilað okk-
ur. Sem stjórnarmaður í FAL síðustu tvö
ár hef ég tekið þátt umfjöllun um fjölmörg
mál sem snúa að starfi okkar sem lækna,
að finna út hvar eru brotalamir og hvað
má bæta. Okkur er tamt að horfa á það
sem illa gengur, fer úrskeiðis eða þegar
við teljum að brotið sé á okkur. Þetta starf
er að sjálfsögðu mikilvægt, því annars
myndum við aldrei berjast fyrir breyting-
um til batnaðar og hlutirnir yrðu óbreyttir
um ókomna tíð. En ekki má gleyma að
taka eftir og gleðjast yfir sigrunum.
Stéttarfélagsmál eru gjarnan þess eðlis
að stór stökk í baráttunni fyrir bættum
kjörum sjást sjaldan. Breytingarnar taka
oft langan tíma og koma í smá skrefum og
því tökum við síður eftir þeim. En ef vel er
að gáð sjáum við þó að hlutirnir þokast í
rétta átt. Allavega stundum.
Þegar nýir kjarasamningar voru gerðir
á síðasta ári voru námsferðir almennra
lækna eitt af þeim atriðum sem almennir
læknar gerðu miklar athugasemdir við.
Með sanni var þetta eitt af þeim málum
sem lögð var hvað mest áhersla á. í sparn-
aði síðustu ára var sá mikilvægi þáttur í
okkar starfi, sem símenntun er, skorinn
burt á sumum sviðum spítalans. Vegna
þröngra ákvæða í þágildandi kjarasamn-
ingi mátti túlka hann svo að læknar þyrftu
að uppfylla ströng skilyrði til að eiga rétt
á námsferðum. Með nýjum kjarasamningi
var tekið á þessu atriði og nú eru almennir
læknar frá Islandi farnir að sjást oftar
með kollegum sínum á þingum erlendis.
Þessi breyting var til mikilla bóta. Ég tel
að allir læknar séu sammála um mikii-
vægi þess að fá tækifæri til að víkka sjón-
deildarhringinn og kynnast því sem er
að gerast fyrir utan landsteinana, auka
við þekkingu sína, fylgjast með því sem
er að gerast í vísindaheiminum og styrkja
tengslanetið. Ekki er síður mikilvægt að
sinna þessum hluta af starfi okkar lækna
við upphaf starfsferilsins en síðar á lífs-
leiðinni.
Læknar sem eignast börn fá greiddan
fæðingarstyrk frá Fjölskyldu- og styrktar-
sjóði LÍ (FOSL). Reglur FOSL hafa kveðið
á um að allir læknar sem eignast barn
geti sótt um og fengið greidda fasta upp-
hæð úr sjóðnum. Þetta er sambærilegt
við reglur annarra stéttarfélaga. Ef hins
vegar báðir foreldrar barnsins eru læknar,
sem þó nokkur dæmi eru um á ári hverju,
hefur einungis annað foreldrið fengið
fæðingarstyrkinn greiddan. í nútíma jafn-
réttisþjóðfélagi skýtur þetta ansi skökku
við. Hafa reglulega borist kvartanir um
þetta mál frá félagsmönnum. í vetur var
reglum sjóðsins breytt og fá nú báðir for-
eldrar styrk úr sjóðnum. Annað foreldrið
fullan styrk en hitt foreldrið hálfan. Þetta
er eitt af þeim réttindamálum sem rædd
hafa verið í þó nokkur ár, en hefur nú með
sanni þokast í rétta átt.
Innan Landspítalans hefur í vetur verið
lögð mikil vinna í að bæta starfsaðstæður
kandídata. Hópur kandídata í hagsmuna-
nefnd FAL hefur þar unnið mikið starf í
samvinnu við vísinda-, mennta- og ný-
sköpunarsvið Landspítalans. Kandídatar
er sá hópur innan spítalans sem flakkar
hvað mest á milli deilda. Vinnulag deilda
er ólíkt og hlutverk og skyldur kandídata
geta verið ansi ólíkar eftir því á hvaða
deild þeir vinna þann mánuðinn. Er það
því ákveðið gæðamál að hafa góðar verk-
lagsreglur til að styðjast við, svo ljóst sé frá
fyrsta degi hvert er hlutverk kandídatsins
á deildinni, hvaða verkum hann á að sinna
og hvernig. Þarna er ekki verið að tala um
læknisfræði, heldur praktísk atriði við
vinnu eins og á hvaða fundi er ætlast til að
kandídatinn mæti, hvort og hvaða göngu-
deild hann á að sinna, hvort og hvenær
hann á að sinna innskriftum eða eftirfylgd
sjúklinga, svo eitthvað sé nefnt. Ansi stór
hópur kandídata er menntaður erlendis
og hefur aldrei unnið á Landspítalanum.
Æði oft er enginn til að taka beinlínis á
móti þeim við komuna á spítalann og setja
þá almennilega inn í starfið. Þessi vinna
við skýrar verklagsreglur kemur þeim þá
mikið til hjálpar.
Eins og alltaf eru margir hlutir sem
gera má betur og eru þess virði að berjast
fyrir til að bæta kjör okkar. Á sumar-
deginum fyrsta, þegar þetta er ritað, er
þó viðeigandi að horfa á björtu hliðarnar
og gleðjast yfir því sem vel hefur gengið.
Framtíðin er björt og maður getur ekki
annað en brosað út í annað þegar maður
rekst endrum og eins á nýja sérfræðinga
á göngum spítalans. Nýflutta heim frá
útlöndum og þeir segja manni að það sé
nú ekki svo slæmt að vera á íslandi.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson, formaður
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Anna K. Jóhannsdóttir, ritari
Árdís BjörkÁrmannsdóttir
Orri Þór Ormarsson
Salome Ásta Arnardóttir
Steinn Jónsson
Þórey Steinarsdóttir
[ pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Ll birta
þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2012/98 293