Læknablaðið - 15.05.2012, Síða 38
UMFJOLLUN O G GREINAR
Kennarar og prófdómarar, aftasta röð frá vinstri: Kristján Sveinsson, Hannes Guðmundsson, Níels Dungal, Sigurður Sigurðsson,
Sigurður Samúelsson, Pétur HJ. Jakobsson, Hjalti Þórarinsson, Stefán Ólafsson, Snorri Hallgrímsson, Guðmundur Thoroddsen,
Haukur Kristjánsson, Theodór Skúlason, Bjarni Jónsson og Jón Steffensen.
Kandídatar, frá vinstri aftari röð: Lárus Helgason, Bergþóra Sigurðardóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Jónas Hallgrímsson,
Árni Ingólfsson og Per Lyngaas. Fremri röð: Guðmundur Þórðarson, Guðmundur Bjarnason, Grétar Ólafsson, Sverrir Haraldsson
og Daníel Guðnason.
Kennarar og prófdómarar fjarverandi: Arinbjörn Kolbeinsson, Bjarni Konráðsson, Björn Sigurðsson, Davíð Davíðsson,
Friðrik Einarsson, Júlíus Sigurjónsson, Kristinn Stefánsson, Ólafur Bjarnason, Trausti Ólafsson og Valtýr Albertsson.
Myndina tók Sigurður Haukur Sigurðsson, bróðir Bergþóru kandídats.
Útskrift frá læknadeild Háskóla íslands vorið 1958
Jónas Hallgrímsson
jonasprot5@gmail.com
Tilefni birtingar þessarar myndar er það
að ég sýndi hana í fyrirlestri um prófessor
Níels Dungal á Læknadögum í Hörpu í
janúar síðastliðnum. Sveinn Magnússon
og Páll Ásmundsson hvöttu mig til þess að
senda hana Læknablaðinu til birtingar.
Myndin er tekin framan við anddyri
hátíðasals Háskóla íslands 12. júní 1958 en
þann dag voru nýútskrifaðir kandídatar
boðnir til formlegrar útskriftarathafnar.
Athöfnin sem var haldin í þáverandi kenn-
arastofu skólans fór þannig fram að Snorri
Hallgrímsson deildarforseti flutti ávarp og
bauð okkur velkomin í íslenska læknastétt
og þakkaði okkur samveruna í deildinni
undanfarin ár. Eg flutti síðan nokkur
þakkarorð fyrir okkar hönd. Okkur voru
afhent prófskírteini og síðan undirrituðum
við læknaeiðinn (Hippókratesareiðinn) og
skálað var í sherry öllu til staðfestingar.
Þetta var líklega fyrsta formlega út-
skrifarathöfn úr læknadeild þessara ára
og kannski frá upphafi. Að vísu fóru fram
einhverjar athafnir við útskriftir vorið 1957
og í janúar 1958 en þær munu ekki hafa
verið með slíkum formlegum hætti. Hef ég
kannað það hjá læknum sem útskrifuðust
þá því til staðfestingar. Fram að þessu
munu útskrifaðir kandídatar einungis
hafa vitjað skírteina sinna á skrifstofu
háskólaritara einhvern tíma síðar, ef þá
nokkurn tíma.
Eg efast um að til sé önnur mynd af
svo mörgum kennurum læknadeildar
samankomnum. Mér finnst einnig að rétt
sé að telja upp aðra kennara læknadeildar
sem kenndu okkur og voru ekki viðstaddir
athöfnina.
298 LÆKNAblaðið 2012/98