Læknablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 20
RANNSÓKN
13
X
Kólesteról LDL
HDL Þríglýseríð Blóðsykur
Mynd 1. Hlutfall þátttakenda yfir ráðlögðum mörkttm blóðfitu og blóðsxjkurs.
Töliirnar i súlunum gefa til kynna fjötda pntttakenda yfir ráðlögðttm mörkttm. LDL
= lágþéttnifituprótein, HDL = háþéttnifituprótein. Heildarkólesteról >6,00 mmol/
Lu, LDL >3,35 mmol/Lu, HDL <1,30 mmol/L (stúlkur) og <1,05 mmol/L (drengir)17,
þríglýseríð >1,70 njmol/V7, blóðsykur >5,60 mmol/V’.
lágt HDL, 8% mældust með of hátt LDL, 10% voru skilgreind með
jaðar- eða háan slagþrýsting og 9% þátttakenda höfðu þríglýseríð
yfir ráðlögðum mörkum.17 Hvað úthald varðar, flokkuðust aðeins
16% nemenda með slakt eða mjög slakt úthald15 og þar af voru
stúlkur í miklum meirihluta. Þrátt fyrir að stúlkurnar hefðu að
meðaltali gott úthald og strákarnir mjög gott úthald náðu nem-
endur að jafnaði ekki að hreyfa sig daglega eins og mælt er með í
hreyfiráðleggingum (>10.000 skref).16 Aðeins þriðjungur nemenda
náði ráðlagðri hreyfingu.
Marktækur munur á milli skóla kom oftast fram á milli skóla
þrjú (verknámsskóli) og hinna skólanna (bóknámsskólar). Skóli
þrjú var skilgreindur sem verknámsskóli þó að nemendurnir
þar væru bæði bók- og verknámsnemar. Þessir nemendur höfðu
slakasta úthaldið, hreyfðu sig minnst, mældust með hæst hlutfall
líkamsfitu, mesta mittismálið og hæsta blóðþrýstinginn. Niður-
stöður úr norskri rannsókn á úthaldi 18 ára drengja sem kallaðir
voru til herþjónustu á árunum 1980-85 og 2002, sýndu einnig að
verknámsnemar höfðu marktækt iakara úthald en bóknáms-
nemar.19 Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að verknámsnemar
eru ólíklegri til að taka þátt í íþróttum,20 sem gæti gefið til kynna
almennt minni áhuga á hreyfingu meðal þeirra. Minni hreyfing
gæti einmitt útskýrt að hluta til muninn á áhættuþáttunum (út-
haldi, hlutfalli líkamsfitu, mittismáli, blóðþrýstingi) sem fannst á
milli skólanna. Stúlkur úr skóla þrjú gengu að jafnaði um 1300-
1800 færri skref og drengirnir um 1900-2800 færri skref daglega
samanborið við kynsystkin þeirra úr hinum skólunum tveimur.
Hins vegar komu of fáir nemendur eingöngu úr hefðbundnu
verknámi til þess að gera óyggjandi samanburð á verk- og bók-
námsnemum.
Hlutfall of þungra nemenda hér var nánast það sama og í rann-
sókn Kára Jónssonar21 á 18-19 ára framhaldsskólanemum. í þessari
rannsókn var hlutfall of feitra hins vegar talsvert hærra en þau 3%
sem Kári greindi frá. í símakönnun á meðal 15-24 ára íslendinga
flokkuðust 15% kvenna og 25% karla yfir kjörþyngd22 og hlutfali
níu og 15 ára íslendinga yfir kjörþyngd var á bilinu 17-22%2. Því
virðist sem hlutfall of þungra hafi staðið í stað en hlutfall of feitra
sé að aukast. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna aukinheldur
að nánast sami fjöldi nemenda mældist í mikilli hættu á að þróa
með sér offitutengda sjúkdóma samkvæmt mittismælingunni
(n=18, stúlkur >88 sm, drengir >102 sm) og voru skilgreindir með
offitu samkvæmt BMI-stuðli (n=19).
Einhverra hluta vegna hafa viðmiðunargildi BMI-stuðulsins
verið sett fram sem lýsing á holdafari (kjörþyngd, ofþyngd og
offita) fremur en lýsing á auknum líkum á offitutengdum sjúk-
dómum og ótímabærum dauða. Tengsl BMI og hlutfalls líkamsfitu
eru auk þess kúrflínuleg og sýnt hefur verið fram á að viðmið BMI
fyrir offitu vanmeta offitu sem metin er út frá hlutfalli líkamsfitu
mældri með nákvæmari aðferðum (DXA).23 Á hinn bóginn hefur
hlutfall líkamsfitu ekki verið tengt sjúkdómum á sama hátt og BMI
og því hafa ekki verið gefin út viðmið fyrir það hlutfall líkamsfitu
sem eykur líkur á sjúkdómum og ótímabærum dauða.23
í þessari rannsókn höfðu 118 stúlkur og 133 strákar mæligildi
bæði frá BMI og DXA. Ef BMI-viðmiðið fyrir offitu (>30 kg/m2)
er notað í þessum undirhópi eru fjórar stúlkur og 12 strákar skil-
greind sem of feit en sé notast við offituskilgreiningu samkvæmt
hlutfalli líkamsfitu13 frá DXA (>35% stúlkur, >22% drengir) eru 26
stúlkur og 44 strákar of feit. Því eru 22 af 26 of feitum stúlkum
ranglega flokkaðar sem lausar við offitu samkvæmt BMI og 33
af 44 of feitum strákum (mynd 2A og B). Á hinn bóginn er einn
strákur sem ekki er of feitur flokkaður sem slíkur samkvæmt BMI
en engin stúlka.
Wellens og félagar23 áætluðu að þau BMI-viðmið sem best
myndu lýsa offitu mældri með DXA væru 25 kg/m2 hjá körlum
og 23 kg/m2hjá konum á aldrinum 20-45 ára. Ef þau viðmið eru
notuð fyrir offitu á BMI-stuðli í ofangreindum undirhópi væru 41
stúlka og 35 strákar skilgreind sem of feit. Þetta leiðréttir talsvert
þá mynd sem BMI gefur af offitu hjá strákunum en ofmetur offitu
töluvert hjá stúlkunum. Með þessum BMI-viðmiðum fyrir offitu
væru einungis fjórar af 26 of feitum stúlkum ranglega flokkaðar
sem lausar við offitu og 16 af 44 strákum. Hins vegar yrðu sjö
strákar af 89 ranglega flokkaðir of feitir og 20 stúlkur af 92 sem
ekki eru of feitar skilgreindar sem slíkar. Ástæður þess að BMI-
viðmið Wellens og félaga23 ofmeta offitu hjá stúlkunum og van-
meta hjá strákunum eru sennilega þær að sú rannsókn notaði 33%
hlutfall líkamsfitu sem viðmið fyrir offitu hjá konum og 25% hjá
körlum, sem eru aðeins lægri (konur) og hærri (karlar) viðmið en
notuð voru í þessari rannsókn. Niðurstöður þessarar rannsóknar
styðja því fyrri niðurstöður23 um að BMI-flokkunin lýsi líkams-
samsetningu ekki vel og að frekar ætti að lýsa auknum líkum á
offitutengdum sjúkdómum og ótímabærum dauða. Ákveðið hlut-
fall líkamsfitu hefur hins vegar ekki verið tengt sjúkdómum og
ótímabærum dauða með óyggjandi hætti, þó svo að það hafi verið
skilgreint eins og í töflu II.
Úthald þátttakenda var gott samkvæmt nýjustu viðmiðunar-
gildum frá ACSM15 sem miðast reyndar við aldurshópinn 20-29 ára
en byggja á gríðarlega stóru úrtaki. Ef miðað væri við 15-20 árum
eldri viðmiðunargildi, annars vegar fyrir 13-19 ára unglinga24 og
hins vegar fyrir 18-23 ára25 ungt fólk, myndi lægra25 eða hærra24
hlutfall stúlkna flokkast með sæmilegt úthald eða betra, en sam-
kvæmt ACSM-viðmiðunargildunum.15 Þau viðmiðunargildi gætu
þó verið ívið of lág þar sem fólk nær hámarkssúrefnisupptöku á
unglingsárunum við lok kynþroskans, stúlkur um 15 ára aldur og
piltar 17-18 ára.25-26 Það gæti hugsanlega einnig útskýrt að hærra
hlutfall drengja en stúlkna hafði mjög gott úthald, vegna þess að
úthaldi stúlknanna gæti hafa hrakað eftir hafa náð hámarki við
lok kynþroskans meðan strákarnir voru sennilega, miðað við
280 LÆKNAblaðið 2012/98