Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN Starfsendurhæfingarsjóðir og atvinnutengd starfsendurhæfing Þorbjörn Jónsson Sérfræöingur í ónæmis- fræði og blóðgjafarfræði og formaður Læknafélags Islands thorbjorQlandspitali. is I maí síðastliðnum mælti velferðarráðherra fyrir frumvarpi til laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfs- endurhæfingarsjóða. Málið er afar viða- mikið og um háar fjárhæðir að tefla. Þess vegna er mikilvægt að vandað sé til inni- halds og allra vinnubragða við undirbún- inginn. Mikili flýtir hefur hefur hins verið á vinnslu þessa máls og vekur það furðu þegar um svo stórt mál er að ræða. Læknar og fjöldamargir aðrir hafa komið á fram- færi athugasemdum sínum við frumvarpið og verða nokkrar þeirra reifaðar hér. Með frumvarpi til laga um starfsendur- hæfingarsjóði og atvinnutengda starfs- endurhæfingu var stefnt að því að koma á fót nýju kerfi sem lyti í raun stjórn atvinnu- lífsins. Kerfið mun því ekki lúta samskonar stýringu og aðrir hlutar heilbrigðiskerfis landsmanna. Það er mikilvægt að gæta þess að til verði heiidstæð starfsendurhæf- ing á íslandi en ekki tvöfalt kerfi, nýtt kerfi til hliðar við þá starfsemi sem fyrir hefur verið. Af slíku getur hlotist ómarkviss ráð- stöfun fjármuna auk þess sem hætta getur verið á því að einstaklingar lendi utan kerf- isins. Þess vegna er nauðsyniegt að skil- greina nákvæmlega hvernig samspil hins nýja starfsendurhæfingarkerfis og hefð- bundinnar læknisfræðilegrar endurhæf- ingar á að vera. Sérstaklega verður að gæta að því að nýja starfsendurhæfingarkerfið drepi ekki niður eldri starfsemi á þessu sviði sem sannað hefur gildi sitt. Til starfsendurhæfingarsjóðanna munu renna mjög miklir fjármunir á ári hverju. Það er því eðlilegt að spurt sé hvort öruggt sé að um skynsamlega ráðstöfun á fjár- munum sé að ræða fyrir þjóðfélagið, á sama tíma og stöðugur niðurskurður hefur verið í fjárveitingum til bæði heilbrigðis- og vel- ferðarmála. Svarið við þeirri spurningu mun tíminn einn leiða í ljós. íslendingar þekkja það vel á eigin skinni að þjónusta heilsugæslustöðva, sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnana hefur farið minnkandi ár frá ári eftir efnahagshrunið 2008 vegna sparnaðar. Það er því grundvallarkrafa að tryggt sé að þeim fjármunum sem til nýja starfsendurhæfingarkerfisins renna sé fag- lega ráðstafað. Það verður hins vegar ekki séð að ákvæði frumvarpsins tryggi nægi- lega að fagleg og læknisfræðileg sjónarmið verði í heiðri höfð þegar kaup á heilbrigðis- þjónustu verða ákveðin. Ekki er heldur gert ráð fyrir að starfsemi starfsendurhæfingarsjóðanna lúti eftirliti landlæknisembættisins. Slíkt eftirlit hlýtur þó að teljast bæði eðlilegt og nauðsynlegt þegar litið er til eðlis starfsendurhæfingar- kerfisins og þess hve stórt í sniðum það verður. Það er líka rétt að hnykkja á því að frum- varpið gerir ráð fyrir að um atvinnutengd réttindi sé að ræða, það er að einstaklingar öðlast réttindi með því að stunda launaða vinnu eða þiggja bætur, svo sem frá sjúkra- sjóðum eða styrktarsjóðum stéttarfélaga, atvinnuleysistryggingasjóði eða fæðingar- orlofssjóði. Starfsendurhæfingarkerfið á að auðvelda mönnum endurkomu inn á vinnumarkaðinn. I grein um markmið kerfisins segir líka að tryggja eigi einstak- lingum með skerta starfsgetu í kjölfar veik- inda eða slysa á aldrinum 16 ára til sjötugs atvinnutengda starfsendurhæfingu. Frum- varpið tryggir ekki ungu fólki sem ber þess merki að verða síðar með skerta starfsgetu slíkan rétt. Úr því þyrfti að bæta. Það hefur vakið athygli greinarhöfundar að núorðið ber á því að ekki sé leitað til aðila með sérþekkingu, eins og Læknafélagsins, þegar heilbrigðismál eru til umfjöllunar á Alþingi Islendinga eða í stjórnkerfinu. Eða hitt að þegar slíks er óskað þá sé of skammur tími gefinn til að yfirfara mál og svara þeim á fullnægjandi hátt. Þannig var það með það mál sem hér er til umfjöllunar. Heilbrigðis- og réttindamál eru í eðli sínu flókin og mikilvæg þeim einstaklingum sem réttindanna eiga njóta. Þess vegna þarf að vanda alla umfjöllun. Það er farsælast að flýta sér hægt þegar um slíkt efni er fjallað! Að lokum þetta, Læknafélag íslands og fjölmargir aðrir sérfróðir aðilar voru ekki beðin um álit á frumvarpi um atvinnu- tengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Þeir þurftu sjálf- ir að fara fram á það. Því verður varla trúað að Alþingi hafi ætlað sér að sniðganga þá sem best þekkja til mála. Það er ennfremur álit mitt og margra annarra að of oft sé lítið mark tekið á þeim umsögnum og athuga- semdum sem stjórnvöldum berast. Of oft virðist eingöngu vera um málamyndasam- ráð að ræða. Alþingi íslendinga ætti ávallt að leggja sig fram um að leita áiits sem flestra sérfróðra aðila þegar lagafrumvörp eru til umræðu og umfjöllunar og tryggja þannig að öll gagnleg sjónarmið komi fram áður en frumvörp verða að lögum. Alþingi og stjórnkerfið þurfa að bæta vinnubrögð sín hvað þetta varðar. Employment-related vocational rehabilitation and rehabilitation funds MD, PhD, Consultant in Immunology and Transfusion Medicine Landspítali University Hospital, Reykjavík LÆKNAblaðið 2012/98 397

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.