Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 50
Ritstjórn vill fá fleiri raddir kolleganna til að hljóma. í þessu skyni hefur
blaðið kallað eftir pistlum frá formönnum sérgreinafélaga og undirdeilda
Læknafélags íslands og Reykjavíkur.
Félag íslenskra meinafræðinga
Guðrún Svanborg
Hauksdóttir
Formaöur
gusvhauk@landspitali.is
Félag íslenskra meinafræðinga var stofnað
í desember árið 1993. Nafn félagsins er í
samræmi við gildandi sérfræðireglugerð.
Samkvæmt henni er 20. sérgreinin meina-
fræöi, og undir henni tilteknar sérgrein-
arnar: blóðmeinafræði, klínísk lífefna-
fræði, meinalífeðlisfræði, meinefnafræði,
ónæmisfræði, sýklafræði, vefjameinafræði
og veirufræði. Það má spyrja sig hvers
vegna þessar sérgreinar skuli allar vera
settar undir einn hatt, í stað þess að vera
skilgreindar sérstaklega eins og aðrar
sérgreinar. Þetta eru allt sjálfstæðar sér-
greinar sem hafa fæstar mikið sameigin-
legt með hinum sérgreinunum fyrir utan
það að vera að mestu unnar á rannsóknar-
stofum, en minna innan um sjúklinga.
Það sama á líklega að mestu við um blóð-
gjafarfræði, eiturefnafræði og lyfjafræði,
en þessar sérgreinar eru tilgreindar sér-
staklega í sérfræðireglugerðinni. Það fer
ekki hjá því að þarna virðist vera gert upp
á milli sérgreina án þess að fyrir því séu
góð rök. Sennilega er þetta draugur for-
tíðar sem verður vonandi kveðinn niður í
næstu sérfræðireglugerð.
Félagar í Félagi íslenskra meina-
fræðinga eru sérfræðingar í þeim greinum
sem falla undir meinafræði, ásamt sér-
fræðingum í blóðgjafarfræði. Þeir eru
nú um 50 talsins, eða um 5% starfandi
lækna á íslandi. Félagið er hagsmunafélag,
einkum faglega. Hagsmunirnir eru marg-
víslegir, þar má meðal annars nefna bæði
sérmenntun og símenntun. Eitt verður þó
að teljast með mikilvægustu hagsmunum
félagsins, en það er að læknir sem er sér-
fræðingur á rannsóknarstofu beri ávallt
faglega ábyrgð á rekstri stofunnar. Því
virðist þó ekki vera svo farið og ekki að
sjá að lög og reglugerðir styðji það. Sá sem
hyggst hefja rekstur skal senda tilkynn-
ingu um það til landlæknis ásamt upp-
lýsingum um reksturinn. Staðfesti land-
læknir að reksturinn uppfylli ákveðnar
lágmarkskröfur og ákvæði heilbrigðis-
löggjafar má hefja starfsemina. Þessar
faglegu lágmarkskröfur snúa að húsnæði
og aðstöðu, tækjum, búnaði og mönnun.
Einungis heilbrigðisstarfsmenn sem hafa
til þess starfsleyfi mega veita þjónustuna.
Heilbrigðisstarfsmaður er „einstaklingur
sem starfar við heilbrigðisþjónustu og
hlotið hefur leyfi heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra til að nota starfsheiti
löggiltrar heilbrigðisstéttar". Nú í maí voru
samþykkt ný lög um heilbrigðisstéttir.
Samkvæmt þeim eru löggiltar heilbrigðis-
stéttir: Áfengis- og vímuvarnaráðgjafar,
félagsráðgjafar, fótaaðgerðafræðingar,
geislafræðingar, hjúkrunarfræðingar,
hnykkjar (kírópraktorar), iðjuþjálfar,
lífeindafræðingar, ljósmæður, lyfja-
fræðingar, lyfjatæknar, læknar, læknarit-
arar, matartæknar, matvælafræðingar,
náttúrufræðingar í heilbrigðisþjónustu,
næringarfræðingar, næringarráðgjafar,
næringarrekstrarfræðingar, osteópatar,
sálfræðingar, sjóntækjafræðingar, sjúkra-
flutningamenn, sjúkraliðar, sjúkranudd-
arar, sjúkraþjálfarar, stoðtækjafræðingar,
talmeinafræðingar, tannfræðingar, tann-
læknar, tannsmiðir, tanntæknar og þroska-
þjálfar. Landlæknir getur veitt einstak-
lingum leyfi til að kalla sig sérfræðinga
innan löggiltrar heilbrigðisstéttar, hafi
ráðherra löggilt það. Nú fá sérfræðileyfi
félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, líf-
eindafræðingar, lyfjafræðingar, sálfræð-
ingar, sjúkraþjálfarar og tannlæknar, auk
lækna.
í sóttvarnarlögum er fjallað um smit-
sjúkdóma og sjúkdóma af völdum eitur-
efna og geislavirkra efna. Samkvæmt þeim
skulu rannsóknarstofur sem fáist við rann-
sóknir á sýnum frá sjúklingum með þessa
sjúkdóma hafa starfsleyfi heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. Þær eiga að hafa
öðlast faggildingu á rannsóknunum, en
hægt er að veita takmarkað og tímabundið
starfsleyfi sé viðhaft virkt gæðaeftirlit.
Það er ekki ótvírætt í lögum eða
reglugerðum að læknir eigi að starfa á
rannsóknarstofum, hvað þá að hann skuli
bera faglega ábyrgð á starfseminni. í
öllum starfsstéttum er fjöldi mjög hæfra
einstaklinga sem standa sig frábærlega í
starfi, en einnig aðrir sem sinna sínu ekki
sem skyldi. Þetta á við um lækna sem
aðra. Það er þó sérstaða lækna að þeir hafa
allir mjög langt nám að baki og breiða
þekkingu á sjúkdómum, ásamt því að hafa
unnið við meðhöndlun sjúklinga í lengri
tíma. Þeir hafa því dýpri skilning á þeim
sjúkdómseinkennum sem leiddu til þess
að rannsóknar var óskað. Læknar geta því
best valið þá rannsókn sem hentar hverju
sinni og túlkað niðurstöðurnar fyrir þann
lækni sem sýnið sendi.
Með nýjum lögum um heilbrigðisstarfs-
menn falla úr gildi læknalög. Þar með
fellur úr gildi ákvæðið sem bannar skottu-
lækningar. Þar segir: „Það eru skottulækn-
ingar er sá sem ekki hefur leyfi samkvæmt
lögum þessum býðst til þess að taka sjúk-
linga til lækninga, gerir sér lækningar að
atvinnu, auglýsir sig eða kallar sig lækni,
ráðleggur mönnum og afhendir þeim lyf
sem lyfsalar mega einir selja." Hlutverk
landlæknis er meðal annars að hafa eftirlit
með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðis-
starfsmönnum. Það er ljóst að landlækni
ber ekki að hafa eftirlit með þeim sem
ekki eru heilbrigðisstarfsmenn eða vinna
við heilbrigðisþjónustu. Er þá enginn sem
hefur þessa eftirlitsskyldu? Nýlega var til
umræðu auglýsing um smásjárskoðun á
blóði og í kjölfar þess ráðleggingar varð-
andi heilsufar. Það getur verið að þær ráð-
leggingar byggi á einhverjum rannsóknum
eða fræðum, en er einhver sem gengur úr
skugga um það?
438 LÆKNAblaðið 2012/98