Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 31
UMFJÖLLUN O G GREINAR
gagnagrunn landlæknisembættisins, sem
er öflugt rannsóknartæki
Sjúkdómar tengdir áfengisneyslu
„Það eru einnig ýmis tækifæri hér á landi
til rannsókna á sjúkdómum tengdum
áfengisneyslu. Við ættum að snúa bökum
saman með SAA og rannsaka til dæmis
hversu margir þeirra sem fá áfengistengda
sjúkdóma fara í meðferð. Það er stundum
talað um að fólk verði fyrir lífsreynslu,
svokallaðri „sobering experience" sem
leiðir til þess að það hætti skaðlegum lífs-
háttum. Reyni að fá annað tækifæri til að
lifa lífinu. Ung kona sem kom til okkar
hætti alveg að drekka áfengi þegar hún
fékk lífshættulega áfengistengda lifrar-
bólgu. Þess vegna væri forvitnilegt að vita
hversu stór hluti þeirra sem fá til dæmis
skorpulifur fara í meðferð og hætta alveg
að drekka. Það eru svo fjöldamargir sjúk-
dómar sem tengjast áfengisneyslu beint
„Möguleikarnir eru fjölmargir
og ég tel að rannsóknir hér á
landi eigi góða möguleika til að
eflast íframtíðinni."
eða óbeint, brisbólgur og lifrarsjúkdómar
til dæmis."
Allt hefur kosti og galla
Ef við lítum frá rannsóknunum og að
fjölda meltingarlækna hér á landi, eru þeir
nógu margir? „Já, svo virðist vera. Þeir eru
liðlega 20 talsins og tiltölulega auðvelt að
komast að hjá þeim. En þótt þeim fjölgi
virðist vera nóg að gera hjá öllum. Hér er
blandað kerfi sem er að mörgu leyti gott.
Allir geta pantað tíma hjá meltingarlækni
úti í bæ. Það léttir óneitanlega á Landspít-
alanum, við fáumst frekar við alvarlegri
tilfelli, blæðingar og grun um krabbamein
í meltingarvegi, og á spítalanum er einnig
fylgt eftir sjúklingum eftir lifrarígræðslu,
en léttari tilfellin eru frekar meðhöndluð
á einkastofum. Þetta er auðvitað ekki full-
komið kerfið út frá sjónarhóli Landspítal-
ans, við vildum gjarnan hafa fleiri í 100%
stöðu, en læknarnir segjast ekki lifa á laun-
unum sem fást hjá okkur. Það er því að
mörgu leyti ágætt fyrir sjúklinga að geta
sótt þjónustu utan spítala en gallarnir eru
helst þeir að fólk í hlutastarfi nýtist ekki
eins vel í kennslu og þeir sem eru í fullu
starfi og geta ekki sótt fundi hvenær sem
er. Allt hefur sína kosti og galla. Það er
verið leitast eftir að ráða fleiri í fullt starf
og hér á Landspítala er þróunin í þá átt að
göngudeildarþjónusta hefur farið vaxandi,
nú er mælt með að allir sjúklingar sem
hafa verið lagðir inn komi í að minnsta
LÆKNAblaðið 2012/98 419