Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR Heilkornið og hollustan - talað við Laufeyju Steingrímsdóttur ■ ■ ■ Gunnþóra Gunnarsdóttir „Við viljum draga heilkornið inn í holl- ustuumræðuna og vekja meiri athygli á því en gert hefur verið. Fólk þarf að vita um áhrif þess á heilsuna og læra að þekkja í hvaða vörum það er." Þetta segir Laufey Steingrímsdóttir, prófessor í nær- ingarfræði, að nýlokinni stórri norrænni næringarráðstefnu í Reykjavík í byrjun júní. Þar var meðal annars kynnt verk- efnið Nordic Health Whole Grain Foods, eða HELGA, eitt þriggja öndvegisverk- efna sem hafa verið styrkt af Norræna rannsóknarsjóðnum á sviði næringar undanfarin ár en Laufey stýrir íslenska hluta verkefnisins. Minnkar líkur á langvinnum sjúkdómum Laufey segir rannsóknir benda eindregið til þess að grófur kornmatur búi yfir mikl- um hollustueiginleikum, ekki síður en til dæmis ávextir og grænmeti og er hún þó síst að draga úr gildi þeirra matvæla fyrir heilsuna. „Stórar og vandaðar faralds- fræðilegar rannsóknir hafa sýnt að rífleg neysla á heilkorni minnkar hættu á hjarta- og æðasjúkdómum álíka mikið og neysla ávaxta og grænmetis. Eins hefur komið í ljós að heilkornið hefur jákvæð áhrif á insúlín- og blóðsykurstjórnun og minnkar áhættu á sykursýki 2," segir hún. „Svo má nefna að neysla á grófu korni veitir meiri saðsemi en fínmalað korn og getur þannig skipt máli fyrir þyngdarstjórnun. Að lokum má bæta við þessa lofræðu um heil- kornið, að faraldsfræðilegar rannsóknir hafa ítrekað tengt neyslu þess við minni líkur á ristilkrabbameinum." Ekki gleyma því sem er hollt hjá okkur Reyndar segir Laufey rannsóknir á grófu korni ekki hafa verið eins margar og öflug- ar og ætla mætti í gegnum tíðina. Astæð- una telur hún þá að bæði í Bandaríkjunum og Suður-Evrópu er lítil hefð fyrir neyslu á grófu korni og þeim matvörum hafi því verið minni gaumur gefinn í rannsóknum. „Grófa kornið er fyrst og fremst einkenni Norður-Evrópu, sérstaklega Norður- landanna. Áhuginn á Miðjarðarhafs- mataræðinu hefur hins vegar breiðst út um alla álfuna og allir þekkja hollustuna í grænmeti, ávöxtum og matarolíu sem einkenna Miðjarðarhafsmataræðið. Við höfum tekið þessari þekkingu fagnandi og borðum miklu meira af grænmeti og ávöxtum en áður og eins hefur notkun á matarolíu stóraukist í stað smjörlíkis eða smjörs. Þetta er allt af hinu góða. Hitt er öllu verra að við höfum tapað sumu af því góða sem einkenndi norræna mataræðið, meðal annars grófa korninu. I staðinn fyrir rúgbrauðið er komið ciabattabrauð og pasta og aðrar vörur úr fínunnu korni, aðallega hvítu hveiti. Það er undir okkur Norðurlandabúum komið að rannsaka hollustuþætti norræna matarins því þó við tökum heilshugar á móti nýjum boðskap megum við ekki gleyma því sem er hollt og gott hjá okkur. Þess vegna var stofnað til þessara þriggja öndvegisverkefna á sviði næringar og hollustu," segir hún og lýsir þeim verkefnum aðeins nánar. „Flest Norðurlöndin eiga fulltrúa í öndvegisverkefnunum og við Islendingar tökum þátt í tveimur þeirra. Inga Þórs- dóttir, deildarforseti og prófessor í nær- ingarfræði, stýrði íslenska þætti verkefnis sem fjallaði um norræna matinn og heilsu- þætti hans en ég stýrði íslenska þættinum í HELGU, sem snýst um hollustu heila kornsins, sögu þess og þátt í matarmenn- ingunni." Hveitið tekur yfir í allri umfjöllun um íslenska matarhefð og matarmenningu hefur lítil áhersla verið lögð á kornið. „Á hinum Norðurlöndunum var ræktað korn, einkum þrjár tegundir, rúgur, bygg og hafrar og þær voru uppi- staðan í fæðu íbúanna," segir Laufey. „Hér voru þessar tegundir innflutningsvara og ég gekk til liðs við norræna rann- sóknarfólkið með þá hugmynd að hér á landi hefði verið lítil neysla á korni allt fram á miðja 20. öld. Svo þegar ég fer að skoða málið með sagnfræðingum, þeim Guðmundi Jónssyni, prófessor í sagnfræði og meistaranema hans, sem heitir Pálmi Gautur Sverrisson, kemur allt annað í ljós. Guðmundur hefur tekið saman innflutn- ing á korni og öðrum matvælum til ís- lands allt frá miðri 18. öld og fram á þá 20. Þar kemur fram að hingað var flutt mjög mikið magn af rúgi og ýmsar frásagnir sýna einnig að rúgur hefur verið stór þátt- ur í fæði fólks bæði til sjávar og sveita. Um aldamótin 1900 var innflutningur á rúgi 40 kg á ári á hvern íbúa og fór upp í 60 kg á árunum frá 1910-15, en til samanburðar er hann núna 3,2 kg á íbúa á ári eða innan við tíundi hluti þess sem áður var. Einnig var töluvert flutt inn af byggi og höfrum og allt eru þetta heilsusamlegar heilkorna Hafrar, bygg og rúgur voru aðal korntegundir Norðurlanda gegnum aldirnar og uppistaðan í fæðu íbúanna. Mynd/Gun. Heila kornið er heilsusamlegt fæði. Mynd/Gun. 426 LÆKNAblaðiö 2012/98 J

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.