Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.07.2012, Blaðsíða 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR Frá móttöku nýkandídata í HlíÖasmáranum, lengst til vinstri er Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags íslands sem tóká móti hópnum. Að læra að nota þekkingu sína Móttaka nýútskrifaðra læknakandídata ■ ■ ■ Mynd og texti Anna Björnsson Það var hátíðleg stund í sal Læknafélags íslands við Hlíðasmára nú nýverið þegar nýútskrifaðir læknakand- ídatar voru formlega boðnir velkomnir í Læknafélag íslands. Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Islands bauð kandídatana velkomna, en auk hans ávörpuðu hóp- inn Guðmundur Þorgeirsson prófessor og forseti lækna- deildar Háskóla íslands, Lilja Sigrún Jónsdóttir formaður Félags kvenna í læknastétt og Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landlæknir og forseti heilbrigðissviðs Háskóla íslands. Um eða yfir helmingur hópsins sem útskrifast hafa undanfarin ár úr læknadeild Háskóla íslands eru konur og Lilja minnti þær konur sem voru að útskrifast nú á að fyrsta konan sem útskrifaðist frá Háskóla íslands lauk einmitt prófi í læknisfræði, Kristín Ólafsdóttir, árið 1917. Sigurður sagði í ræðu sinni að nú stæðu kandídatarnir á hátindi þekkingar sinnar en það sem eftir væri ævinnar myndu þeir læra að nýta þessa þekkingu. Hann minnti þá á að gera það án þess að láta hana stíga sér til höfuðs. Eftir að kandídatarnir höfðu notið veitinga og hlýtt á árnaðaróskir og hvetjandi ávörp skrifuðu þeir undir heitorð lækna, Hippókratesareiðinn, í virðulega bók sem geymir nöfn kynslóða lækna. Helga Kristín Mogensen skrifar undir læknaeiðinn. 428 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.