Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 10

Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 10
E R L E N T Björn Bjarnason, aðstoðar- ritstjóri Morgunblaðsins: „Efast ekki urrveinlægni nýrra ráöamanna" „ÉG ER í STUTTU máli þeirrar skoðunar að einhverjar breytingar séu að verða í Sovétríkjunum og að þær snúist fyrst og fremst um stjórn efnahagsmála og tilraunir til að lífga upp á efnahagskerfið,“ segir Björn Bjarnason en hann fór nýlega til Moskvu( og hitti þar m.a. þau Andrei Sak- harov og Yelenu Bonner að máli). „Vafa- laust hafa hinir nýju stjórnendur þar eystra staðið frammi fyrir þeirri staðreynd að ann- að hvort yrðu þeir að reyna að breyta ein- hverju eða efnahagsstarfsemin færi enn- frekar niður á við. Menn þurfa ekki að dvelja lengi í Sovét- ríkjunum til að átta sig á því að þar ríkir mikill skortur á flestum nauðsynjavörum samanborið við Vesturlönd, svo ekki sé talað um mannréttindi og frelsi. Fyrirmæli um þessar breytingar eru gerð- ar að ofan í stjórnkerfi Sovétríkjanna og vekja efalaust vonir hjá almenningi en það er ekki almenningur sem tekur af skarið í þessum efnum heldur eru það þeir sem kerfinu stjórna og ég á nú eftir að sjá þá afsala sér völdum í hendur fólksins og gera þær breytingar á stjórnkerfinu að aðrir ráði þar meira en þeir sjálfir. Ég er stórlega efins um að þegar sjáist merki um breyting- ar á sjáifu stjórnkerfinu. Það hefur lítið verið slakað á hömlum í Sovétríkjunum. Nokkrum andófsmönnum, eins og Andrei Sakharov, hefur að vísu verið sleppt úr haldi en enn sem komið er felast umbæturnar mest í yfirlýsingum ráða- manna. Orð eru að vísu til alls fyrst og ég efast ekki um að þeir hafa einlægan vilja til að gera einhverjar breytingar en allur raun- verulegur árangur á eftir að koma í ljós.“ hve áberandi eftirlitskerfið er í Moskvu. Svo yfirþyrmandi og þrúgandi fannst mér þetta, að lengi vel komst fátt annað að í vitund minni. Hvílík orka virðist vera sett í þetta! Enda mun það vera svo að drjúgur hluti þjóðarinnar hefur atvinnu af því að fylgjast með samferðamönnunum. Mér birtist þessi rannsóknarmennska með margvíslegum hætti flesta daga, allt frá ná- kvæmri farangursleit á flugvellinum við komuna, — sem virtist þó barnaleikur miðað við það sem sovéskir borgarar þurftu að ganga í gegnum, — endalausar skilríkja- meldingar á hóteli og þeim stofnunum sem ég lagði leið mína á, að ekki sé minnst á útlendingablokkirnar sem voru rækilega vaktaðar svo þangað færu ekki Sovétborgar- ar án „eðlilegra" skýringa. í huganum gerði ég samanburð við Pól- land en þangað kom ég í ársbyrjun 1982, skömmu eftir að herlög voru sett. Mér kom það svo fyrir sjónir, að hið opna Sovét Gor- batsjofs sé enn, að sumu leyti, lokaðra en lokað Pólland Jarúselskis. Þetta var tilfinn- ingin. Allt er þetta eins konar formáli að frásögn um stutta heimsókn til Sovétríkjanna og hvernig ég skynjaði andardráttinn í þjóðfé- laginu. Og sovéskur andardráttur er að breytast. Á því leikur ekki nokkur vafi. Lykilorðið er glasnost, sem merkir „opn- ari umræða". Skömmu fyrir þessa heimsókn mína hafði Gorbatsjof sagt á miðstjórnar- fundi sovéska kommúnistaflokksins, að allt of lengi hefði valdboð að ofan orðið að óumdeilanlegum sannleika. Petta kvað hann, öðru fremur, hafa staðið allri fram- þróun fyrir þrifum. Þessi tónn hefur síðan hljómað og endur- ómað í yfirlýsingum fulltrúa Sovétstjórnar- innar heima og heiman. Þannig sagði Boris Pastukhov, sendiherra Sovétríkjanna í Dan- mörku í grein sem birtist í danska blaðinu Berlingske Tidende fyrir skömmu, „að sann- leikurinn yrði til við umræðu, þegar ólík sjónarmið rækjust á.“ Með öðrum orðum: við finnum ekki hvað er gott og hvað er illt, rétt og rangt með rannsóknaraðferðum vís- indalegs sósíalisma heldur verður að leggja lýðræðislegt mat til grundvallar. Mikil rækt er lögð við að réttlæta þennan þankagang í sögulegu ljósi og virðist sérstak- lega vera reynt að finna honum stoð í verk- um Leníns, hinni heilögu ritningu kommún- ismans. Þannig hafa menn nú grafið það upp, að Lenín hafi notað orðið glasnost 46 sinnum og þykir þar með komin vísindaleg sönnun á réttmæti opnari umræðu. Með öðr- um orðum, með vísindalegum hætti má sanna að vísindin séu úrelt. Mótsagnir er víða að finna*. Þessari nýju glasnosthugsun um að sann- leikurinn eigi ekki að koma að ofan er auð- veldlega hægt að snúa upp í andhverfu sína. Þannig segir Gorbatsjof, að gagnrýnin verði * Til gamans má geta tilvitnunar í Lenín af þcssu tagi: „Glasnost er sverðið sem græðir þau sár sem það sjálft hefur veitt.“ að vera „flokksholl og ábyrg“ og að frétta- menn megi ekki setja sig í dómarasæti. Spurning: „Af hverju?" Svar: „Enginn hefur einkarétt á sann- leikanum." Þótt þessi röksemdafærsla kunni að hljóma undarlega vita sovéskir fréttamenn og aðrir, sem Gorbatsjof beinir þessum orð- um sínum einkum til, nákvæmlega hvað klukkan slær. Þeir vita, að á þessu stigi málsins gæti verið varasamt að rugga bátn- um of mikið. Því misheppnist tilraunin gæti hæglega orðið snarpur afturkippur. Því sé um að gera að styðja Gorbatsjof eftir mætti. Einn nánasti vinur Sakharovs erlendis, Ove Nathan rektor Kaupmannahafnarháskóla, hafði nýlega eftir þessum vini sínum, sem þá var nýkominn til Moskvu úr sex ára útlegð: „Það sem er gott fyrir Gorbatsjof er gott fyrir okkur öll.“ Ekki má gleyma því, að þrátt fyrir hina „opnu“ umræðu er frelsi manna stórlega skert eftir sem áður. Sovéski skákfréttamað- urinn Pimonov, sem giftur er norrænni konu en fær ekki að flytjast úr landi, skrifar í skandinavísk blöð: „Ekkert lát er á ofsókn- um gegn baráttumönnum fyrir mannréttind- um. Þeir eru hundeltir og hnepptir í varð- hald. Líka þetta gerist á opinn hátt.“ Öllum ber saman um að Gorbatsjof sé það lífsnauðsyn að missa ekki fótanna á hinum hála hugmyndagrunni sósíalismans, því greinilega hefur komið fram, bæði í tali hans sjálfs og annarra, að þeir eru margir sem bíða fyrsta tækifæris til að sanna að hér sé villutrúarmaður á ferð, endurskoðunar- sinni sem vilji færa þjóðina af þeirri leið sem í upphafi var mörkuð. Þeir sem eru þannig þenkjandi eru að sjálfsögðu fyrst og fremst skriffinnar kerfis- ins, þeir menn sem fram til þessa hafa verið prókúruhafar sannleikans og þar með valds- ins í sovésku samfélagi. Þessir menn þurfa apn ■ Gorbatsjof: Lykilorðiö er Glasnost. 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.