Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 23
E R L E N T
Páfinn og Chile
Látlausar óeirðirog mótmæli
^ÖR JÓHANNESAR Páls páfa II til
Prjggja landa í Suður Ameríku í aprílbyrjun
stóð í tvær vikur en sex daga heimsókn hans
hl Chilebúa yfirskyggði allt annað. Milljónir
'’úa landsins biðu eftirvæntingarfullir eftir
Pví hvaða boðskap páfi hefði að færa varð-
‘ljidi stjórnmálaástandið í landinu og hvaða
‘uleiðingar heimsókn hans hefði fyrir and-
stóöuna gegn kúgunarstjórn einræðisherr-
‘ll1s Augusto Pinochet. Þjóðlífið ólgaði af
'"otniælum og óeirðum gegn herforingja-
gegn herforingjastjórninni
stjórn Pinochets meðan á heimsókninni
stóð, skilaboðin til páfa voru skýr; Chi-
leanska þjóðin vill losna undan herforingja-
einræðinu og koma á lýðræði í landinu, og
væntir þess að páfinn veiti því stuðning sinn.
Fréttafrásögnum af för páfa ber saman um
að hann hafi staðið undir þeirri kröfu og
ekki látið varnarræður herstjórnendanna
breyta þar nokkru um. Á sama hátt hafi
Pinochet og félögum hans ekki tekist að
nýta sér heimsókn pafa til að styrkja ein-
ræðið í sessi gagnvart sífelldum mótmælum
og þrýstingi stjórnarandstöðunnar. Tímarit-
ið Newsweek segir að í viðræðum Jóhannes-
ar Páls páfa og Pinochet hafi hershöfðinginn
reynt að höfða til andkommúnískra sjónar-
miða páfans til réttlætingar á harðneskju-
legum aðgerðum gegn stjórnarandstæðing-
um. „Jóhannes Páll virtist ekki láta sér segj-
ast með þessum rökum,“ sagði blaðið.
The Economist benti á í frétt meðan á
heimsókninni stóð að páfi hefði þegar látið í
ljós, áður en hann steig út úr flugvél sinni í
Santiago, að mannréttindamál yrðu ofarlega
á dagskrá í Chileförinni og sagði hann við
fréttamenn að Pinochet væri réttnefndur
einræðisherra. í allri Chileferð sinni hvatti
páfi mjög til að lýðræði yrði komið á í
landinu og minnti á að ofbeldi væri öllum
kristnum mönnum andstyggð.
Af tólf milljón íbúum Chile eru tíu millj-
ónir kaþólskrar trúar og er talið að ferðalag
páfa nú geti haft mikilvægar afleiðingar fyrir
stjórnmálaþróunina í landinu og hvort
landsmönnum tekst að feta sömu braut og
Argentína, Bolivia, Brasilía, Ekvador, Perú
og Uruguay þar sem herforingjastjórnir
hafa hvarvetna þurft að víkja fyrir borg-
aralegum stjórnarháttum á seinustu árum.
Stjórn Pinochets forseta steypti lýðræðislega
kjörinni stjórn sósíalistans AÍlende árið
1973 með stuðningi Bandaríkjanna. Allt frá
þeim tíma hefur stjórn hans ekki látið neinn
bilbug á sér finna þrátt fyrir þrýsting frá
Vesturlöndum um að taka upp lýðræðislega
og frjálslynda stjórnarhætti og mótmælum
og uppþotum innanlands hefur allt til þessa
dags verið mætt með mikilli hörku. Stjórn-
arandstæðingar og mannréttindasamtök
saka Pinochetstjórnina stöðugt um grimmi-
leg mannréttindabrot, pyntingar og mann-
dráp. Eftir misheppnað tilræði við Pinochet
í september sl. hefur enn frekar verið hert á
einræðistökunum.
Tímaritið Time greindi frá því að páfi
hefði lýst þeirri von sinni í samræðum við
biskupa kirkjunnar í Santiago að frjálsar
kosningar yrðu haldnar í landinu sem fyrst.
Það gengur þvert á áform hershöfðingjanna
sem ætla að velja forsetaefni úr sínum
röðum í fyrsta lagi árið 1989. í Santiago
hópuðust hundrað þúsund ungir Chilebúar
saman og hrópuðu „Frelsi!" — „Libertad,
libertad!“ í áheyrn páfa. En mestu óeirðirn-
ar sem áttu sér stað meðan á heimsókninni
stóð urðu er páfi messaði í miðborginni á
seinasta degi ferðarinnar. Stjórnarandstæð-
ingar grýttu öryggisverði og lögreglumenn
svöruðu með því að skjóta táragasi að fólk-
inu. Fjöldi manns særðist. Niðurstaðan úr
ferð páfa er þó alls óljós. Andstöðunni hef-
ur vaxið ásmegin en enginn hefur treyst sér
til að spá fyrir um möguleika lýðræðis í
landinu og jafnvel fall hershöfðingjastjórn-
arinnar. Pinochet hefur margsýnt að hann
getur miskunnarlaust barið niður andóf í
landinu en Chileför páfa sýnir þó ennfrekar
sívaxandi einangrun einræðisstjórnarinnar
bæði innanlands sem á alþjóðavettvangi.
23