Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 24

Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 24
E R L E N T veldalínur; mujaheddín-skæuliðar þar í landi fá vopnasendingar frá vestrinu í gegn- um Pakistan. Helsprengjan í Pakistan Ummæli Zia ul-Hak vekja MARGIR HAFA haldið því fram um noKk- urt árabil að Pakistanir væru fullfærir um að framleiða kjarnorkusprengju. Pakistanir hafa hins vegar vísað þeim orðrómi á bug hingað til. Fyrir nokkru gerðist forseti Pak- istans, Zia ul-Hak, hins vegar opinskár í yfirlýsingum sínum við bandarísk stórblöð. Yfirlýsingar hans hafa hleypt ugg í brjóst margra, og vinir hans í Washington harma ummæli hans. Fréttaritari eins stórtímaritsins spurði Zia hvort nokkuð væri til í þeim orðrómi að Pakistanir gætu smíðað kjarnorkusprengju á innan við mánuði. Zia svaraði því til, að Pakistanir gætu smíðað sprengju hvenær sem þeim dytti slíkt í hug. Hann sagði að Pakistan hefði yfir að ráða allri þeirri þekk- ingu sem þyrfti til að smíða sprengju og því væri þeim ekkert að vanbúnaði. Zia sagði reyndar einnig, að Pakistanir hefðu ekki smíðað sprengju og hefðu slíka smíði ekki í hyggju. Hann hélt því fram að kjarnorku bæri eingöngu að nota í friðsam- ugg legum tilgangi. Pakistanir hefðu engan áhuga á því að nota kjarnorku í öðrum tilgangi. Þessi ummæli eru þau hin sömu og Indverjar nota gjarnan, en þeir hafa yfir að ráða allri þeirri þekkingu sem til þarf við smíði kjarnorkusprengju. Og þegar heyrðist af yfirlýsingum Zia hljóp mörgum hernaðar- hauknum í Nýju Dehlí kapp í kinn. Heyrð- ust þaðan hávær mótmæli og urðu margir til þess að lýsa því yfir að nú ættu Indverjar ekki að halda að sér höndum lengur. Rajiv Gandhi vísar hins vegar öllu slíku harðlega á bug. Indverjar og Pakistanir hafa löngum eldað grátt silfur saman, eins og kunnugt er. Pakistanir þykjast enn eiga harma að hefna eftir að Indverjar studdu A-Pakistani í því að stofna sjálfstætt ríki, Bangla-Desh, en það gerðu þeir með dyggilegum herstuðn- ingi svo úr varð blóðug styrjöld. Ekki bætir það sambúðina að Indverjar hafa nána sam- vinnu á mörgum sviðum við Sovétmenn en Pakistanir hafa hallað sér að vestrinu. Styrj- öldin í Afganistan endurspeglar þessar stór- Fjaörafok í Washington. Nýjustu um- mæli Zia varðandi getu Pakistana til smíði kjarnorkuvopna ollu nokkru fjaðrafoki í Washington, en þar hafði verið flutt tillaga á þinginu um fjögurra milljarða dollara efna- hags- og hernaðaraðstoð til Pakistana. Bandaríkjamenn hafa það í lögum hjá sér að bannað sé að styðja ríki sem hafa komið sér upp kjarnorkuvopnum, og þótti nú mörgum öldungardeildarþingmanninum að erfitt gæti reynst að styðja Pakistani áfram. Einn þeirra, John Glenn (fyrrum geimfari), hefur lýst yfir miklum áhyggjum sínum vegna jDessa máls. Ef Bandaríkjamenn standa ekki fastir fyrir geti svo farið að allt fari úr bönd- unum. „Ég vil gjarnan hjálpa skæruliðum í Afganistan og styðja Pakistani en ég hlýt einnig að spyrja hvar þetta endi,“ segir Glenn og bætir við að svo geti farið að Indverjar smíði sprengju í kjölfar þessa. Stjórnmálaskýrendur er þó almennt þeirr- ar skoðunar að þetta muni ekki koma í veg fyrir áframhaldandi aðstoð Bandaríkja- manna við Pakistani. Til þess séu hreinlega of miklir hagsmunir í húfi. Bent hefur verið á að Pakistanir hafi einfaldlega gert það sama og ísraelsmenn; talið er sannað að ísraelsmenn hafi bæði getu og gögn til að smíða kjarnorkusprengju en þeir hafa engar yfirlýsingar látið frá sér fara um þetta efni. Ef Pakistönum er hegnt fyrir þetta, á þá ekki slíkt hið sama að gilda fyrir ísraels- menn, spyrja fréttaskýrendur. 24 4

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.