Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Page 28

Þjóðlíf - 01.05.1987, Page 28
I N N L E N T við þvertóku fyrir það að hér gætti kynþátta- andúðar í garð þessara barna. Þau fjölmörgu hjón hér á landi sem ekki hafa getað eignast börn, hafa bundið vonir sínar við þann möguleika að ættleiða barn og varð það því mörgum gríðarlegt áfall þegar ráðuneytið lokaði á það eina samband sem ættleiðendur höfðu við foreldra erlendis sem vildu gefa barn til ættleiðingar. Ekki hefur tekist að mynda önnur slík sambönd, hvorki við Sri Lanka né önnur lönd, sem ráðuneytið fellir sig við, og því hefur óvissa og langur biðtími tekið við. „Fyrir marga sem voru á biðlista þegar lokað var á Sri Lanka varð áfallið ekki ósvip- að því er fólk missir fóstur. Þessi hjón voru farin að undirbúa sig undir að taka barn inn á heimili sitt og ekkert virtist geta komið í veg fyrir það,“ segja foreldri sem hafa verið á biðlista hjá félaginu íslensk œttleiðing frá því í nóvember árið 1985. Forsvarsmenn félagsins benda á að nánast útilokað sé að fá íslensk ungbörn ættleidd. Ættleiðing er- lendra barna sé því eina vonin fyrir þau barnlausu hjón sem reynt hafa árangurslaust að eiga barn og læknavísindin geta ekki hjálpað (sjá viðtal við Jón Hilmar Alfreðs- son lækni um möguleika læknavísindanna til að ráða bót á barnleysi). Samkvæmt lögum geta aðeins hjón fengið heimild til að ættleiða börn. Fremur fátítt var að fólk leitaði út fyrir landsteinana í þessu skyni allt fram til ársins 1977. Þó sýna ættleiðingartölur Hagstofunnar að um fimm börn að meðaltali hafa verið ættleidd frá útlöndum næstu ár þar á undan, en mestmegnis frá Evrópuríkjum og Bandaríkj- unum. Árið 1977 má segja að ættleiðingar ung- barna frá þriðja heiminum hefjist svo nokkru nemur. Það ár eru tíu börn ættleidd og þar af átta börn frá Suður Kóreu. Næsta ár helst enn sambandið við S-Kóreu og fara þá sex hjón út og sækja börn. Eftir það lokast samband íslenskra ættleiðenda við landið en nokkur Norðurlönd hafa þó haldið sambandi við S-Kóreu og ættleitt börn það- an í verulegum mæli allt fram á þennan dag. ÞJÓÐLÍFI er tjáð af kunnugum,að mörg ríki þriðja heimsins hafi lagt bann við ætt- leiðingum barna úr landi. Ástæðurnar eru m.a. þær að stjórnvöldum þyki minnkun að því og lítilsvirðing á alþjóðavettvangi að börn séu gefin til Vesturlanda vegna fátækt- ar og umkomuleysis mæðra í þessum löndum. Ættleiðingartíðnin gengur þannig upp og niður eftir kringumstæðum á hverjum tíma og stundum detta þær svo til alfarið niður á meðan verið er að koma á nýjum sambönd- um. Nokkur börn fengust ættleidd frá Guatemala, Líbanon, Tyrklandi og fleiri löndum fram til ársins 1982 er ættleiðingar stórjukust skyndilega. Þá voru alls ættleidd 43 börn og þar af aðeins þrjú frá Evrópuríkj- um. 27 börn komu það ár frá Indónesíu, sex börn frá Guatemala, þrjú frá Tyrklandi og auk þess nokkur börn frá Kólumbíu, Líban- on og Nicaragua. Ári síðar helst enn gott samband við Indónesíu og eru ættleidd 25 28 börn frá því landi en þá fer smátt og smátt að lokast á þessa leið og ári síðar eru aðeins fjögur börn sótt til Indónesíu. Fá ættleiðing- arleyfi voru veitt 1984 á meðan verið var að koma á nýjum samböndum, en áhugi barn- lausra hjóna á að ættleiða börn hafði farið sívaxandi næstu ár á undan. 1984 opnast leið í gegnum Holland við lögfræðing á Sri Lanka sem sá um að útvega hjónum á Vest- urlöndum börn til ættleiðingar. 1985 og 1986 gaf dómsmálaráðuneytið út 104 ættleiðingar- leyfi vegna barna sem sótt voru til Sri Lanka fram til þess tíma er ráðuneytið ákvað að stöðva frekari innflutning barna frá landinu á meðan tengiliðurinn þar væri tekinn til athugunar. í maí var svo tekin sú ákvörðun að heimila ekki frekari ættleiðingar fyrir milligöngu þessa manns. Samkvæmt heimildum ÞJÓÐLÍFS snerist atvikið sem leiddi til stöðvunar ráðuneytis- ins um það, að hjón sem sótt höfðu barn til Sri Lanka komust að því að ættleiðingar- pappírar þeir sem barninu fylgdu pössuðu ekki við fæðingarvottorð barnsins. Þegar þau fóru til landsins til að sækja það barn sem þeim var ætlað var það dáið en þau gátu útvegað sér annað barn í gegnum sama tengilið, og við það víxluðust ættleiðingapappírarnir. Þegar ráðuneytið kynnti sér málið kom í ljós að umræddur tengiliður þótti á ýmsan hátt varasamur og því var ákveðið að heimila ekki frekari ætt- leiðingar á hans vegum. Viðmælendur ÞJÓÐLÍFS sem þekkja til málsins telja sig þó hafa vissu fyrir því að ekkert misferli hafi átt sér stað hvað ættleiðingar barna frá Sri Lanka til íslands varðar. Misferlið tengist ættleiðingum til annarra Ianda en þetta atvik opnaði augu ráðamanna fyrir því að nauð- synlegt væri að herða eftirlitið með þessum málum, eins og fram kemur í viðtali við Önnu Guðrúnu Björnsdóttur,lögfræðing í dómsmálaráðuneytinu, hér í blaðinu. Sá mikli fjöldi hjóna sem nú bíður þess að ættleiðingar komist á skrið á ný hefur gerst æ óþolinmóðari, enda hafa sum verið á biðlista í hátt á annað ár. í samtölum ÞJÓÐLÍFS við nokkur hjón kom fram að þeim finnst ráðu- neytið lítið vilja sinna þessum málum. Sú yfirlýsing var gefin fyrir ári að endurskoða ætti reglur um ættleiðingar erlendis frá og munu vera uppi hugmyndir um að löggilda félag þeirra sem hyggjast ættleiða böm í líkingu við það sem gildir á Norðurlöndun- um. Enn er lítið sem ekkert farið að móta þessar hugmvndir og félagsmönnum í ís- lenskri œttleiðingu finnst lítið samráð við þá haft um málið. Viðkvæði allra var á þá lund að enn væri haldið í vonina um að málið leystist og trygg sambönd kæmust á við ein- hver lönd þar sem ættleiðingartengsla væri von. Nokkrum hjónum hefur þó tekist að endurnýja eldri sambönd við Líbanon, Gu- atemala og nú síðast Tyrkland og sótt þang- að börn, en að sögn Engilberts Valgarðs- sonar, formanns félagsins íslensk œttleiðing, er ekki von til að þau sambönd geti gefið af sér nema örfá börn á ári — í besta falli tvö eða þrjú börn frá hverju landi. Samtökin hafa reynt mikið til að komast aftur í tengsl við milligönguaðila erlendis en dómsmálaráðuneytið ekki metið þau sam- bönd sem fullnægjandi. „Ef takast á að anna þeirri þörf sem hér hefur skapast verða góð sambönd að komast á því nú bætast milli 50 og 60 hjón á skrá hjá okkur á hverju ári,“ segir Engilbert í samtali við ÞJÓÐLÍF og bætir því við að þeim finn- ist ekki síður mikilvægt en embættismönnum ráðuneytisins að þau sambönd reynist pott- þétt og uppfylli öll lagaleg skilyrði, bæði hér á landi og í heimalöndum barnanna. Málið er augljóslega mjög viðkvæmt. Þeg- ar ÞJÓÐLÍF leitaði til fólks sem bíður þess að komast út og sækja sér börn til ættleiðing- ar kom í ljós, að fæstir vildu úttala sig um málið. Kváðust óttast að allt umtal yrði til þess að málið kæmist í enn meiri hnút en það er nú þegar í. Forsvarsmenn íslenskrar œtt- leiðingar segja að um leið og eitthvað fréttist um að líkur geti verið að skapast á því að sambönd opnist fyrir ættleiðendur sé þegar mjög mikið leitað til samtakanna um upplýs- ingar. Þess á milli bíður fólk og vonar, en það sé greinilegt að stór hópur fólks eigi þá ósk heitasta að geta komist út og eignast ættleidd börn og er reiðubúið að leggja mik- ið á sig til þess. Samtökin tslensk œttleiðing hafa til þessa ekki haft það á sinni könnu að útvega hjón- um börn til ættleiðingar heldur hafa þau aðstoðað hjón við að komast í kynni við þá aðila í heimalöndum barnanna sem hafa með þau mál að gera, koma á slíkum sam- böndum og veita aðrar upplýsingar og hjálp. Að sögn Engilberts Valgarðssonar var fé- lagið sett á laggirnar haustið 1983 með sam- einingu tveggja ættleiðingarfélaga sem þá voru starfandi, Ísland-Guatemala sem starf- aði á Akureyri og Ísland-Kórea sem starfaði í Reykjavík, en þessi félög höfðu aðstoðað við ættleiðingar frá þessum löndum. Félagið kom á sambandinu við Sri Lanka, sem nú er rofið. Ætlun félagsins var að viðhalda sam- böndum sem nægðu til að anna þeirri þörf sem hér hefur skapast fyrir ættleiðingar. „Eftir að það eina samband sem við höfðuni var rofið höfum við reynt að afla okkur annarra sambanda víða um lönd og skrifað fjölda bréfa og verið í sambandi við lögfræð- inga víða til að koma þessu í gang, en það gengur treglega. Yfirleitt er mikið um ætt- leiðingar frá þriðjaheimsríkjum á hinum Norðurlöndunum, en okkur hefur ekki tek- J

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.